Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Síða 2

Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Síða 2
2 Breiðholtsblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Landsprent ehf. 4. tbl. 25. árgangur Breiðholtsblaðið er dreift frítt í öll hús í Breiðholti APRÍL 2018 Þótt Breiðholtið sé eitt af hverfum Reykjavíkurborgar þá hefur það flest til að bera að vera sjálfstæður bær – bær í borginni. Byggðin er landfræðilega afmörkuð af náttúrunnar hendi og einnig af umferðaræðum en aðeins ein breiðgata Breiðholtsbrautin ligg- ur í gegnum byggðina. Í Breiðholtinu er Mjóddin eini yfirbyggði miðbæjarkjarninn hér á landi. Breiðholtið er fjölmennasta og einnig fjölbreyttasta byggð landsins afmörkuð og rík af fjölmenningu. Saga Breiðholtsins er sérstök. Upphaf hennar má rekja til kjara-samninga árið 1964 þegar stjórnvöld lands og borgar tóku höndum saman um að draga úr notkun á heilsuspillandi húsnæði í höfuðborginni. Nokkru sem lengi hafði fylgt Reykjavík vegna þess að fólk streymdi þangað víðs vegar af landinu líkt og það gerir enn. B reiðholtið var byggt með miklum hraða. Uppbygg-ing þess tók skemmri tíma en annarra byggða eða innan við áratug. Nokkrir gallar komu vissulega fram við skipulag þess en á sumum þeirra hefur verið unnið í dag. Í upphafi var gert ráð fyrir þjónustukjörnum inn í íbúðabyggðu-num. Því miður var ekki vandað nægilega til bygginga þar á sínum tíma og þær hafa illa staðist tímans tönn. Með miklum breytingum á markaði daglegrar nauðsynjavöru dró úr vægi þessara þjónustukjarna. Verslanir hættu eða hurfu á braut. Nú er önnur öld og önnur sjónarmið. Nú vill fólk í auknum mæli geta nálgast daglegar nauðsynja- vörur og þjónustu í göngufæri frá híbýlum sínum í stað þess að sækja þær í einkabílum að útjöðrum borgarmarka. Hverfalýðræði er nokkuð sem flest bendir til að muni þróast á næstu árum. Breiðholtið er einhver best skipulagða byggðin í höfuðborginni til þess að þróa þá skipun stjórnsýslu. Stjórnskipun þar sem að íbúar kjósa sjálfir í hverfisráð sem hafa síðan ákveðnar fjárheimildir til að sinna nærþjónustu sem þeim er falin. Enn eru ýmis verk að vinna í Breiðholti bæði i umhverfinu og í stjórnsýslunni. Fjölbreytt byggð Nýlega voru almenningssalerni í skiptistöð Strætó í Mjóddinni opnuð að nýju við formlega athöfn en þeirra hafði verið beðið í allnokkrurn tíma. Verkfræðistofan Verkís og einkahlutafélagið Sannir landvættir standa að rekstri og uppbyggingu salernanna. Nýmæli er að nú verða notendur að greiða 200 krónur fyrir salernisferðina og mun þetta vera í fyrsta skipti sem klósettgjald er innheimt hér á landi en það er vel þekkt í mörgum löndum. Ætlunin er að fara af stað með uppbyggingu snyrtiaðstöðu einkum á fjölförnum ferðamannastöðum á næstunni og er skiptistöð Strætó í Breiðholti fyrsti staðurinn þar sem þessi aðstaða er tekin í notkun. Einkahlutafélagið Sannir landvættir munu sjá um rekstur salernisins. Það er í eigu verkfræðistofunnar Verkís og Bergrisa hugbúnaðar ehf. Með stofnun Sannra landvætta er ætlunin að stuðla að uppbyggingu einkarekinna salerna um allt land í samvinnu við landeigendur, sveitarfélög og ríki. Sannir landvættir bjóða upp á fjármögnun, hönnun og framkvæmd við uppbyggingu ferðamannastaða án kostnaðar eða útgjalda fyrir landeigendur. Íslandsbanki er bakhjarl verkefnisins og mun annast fjármögnun. Í kynningu á fyrirtækinu segir að Sannir landvættir hafi mikla sérfræðiþekkingu og annist alla þætti framkvæmda við ferðamannastaði. Má þar nefna atriði eins og skipulag og hönnun, jarðvinnu, gerð bílastæða, salernisaðstöðu, göngustíga, útsýnispalla, starfsmannaaðstöðu, upplýsingaskilti og öryggisráðstafanir. Jafnframt mun fyrirtækið leggja til búnað og hugbúnað til að hefja gjaldtöku af þjónustu á viðkomandi stöðum. Ekki allir sáttir Þótt margir farþegar Strætó muni eflaust fagna því að snyrtiaðstaðan hafi aftur verið opnuð eru ekki allir jafn ánægðir með framtakið. Samtökin Pepp Ísland, samtök fátæks fólks hafa mótmælt gjaldtökunni harðlega og sagt að um græðgisvæðingu sé að ræða sem nú nái til líkamsstarfsemi fólks. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að gjaldheimtan muni lenda á þeim sem síst megi við henni. Börn, ungmenni og tekjulágt fók noti einkum almenningssamgöngur og það eigi að vera sjálfsögð þjónusta við fólk að notendur hafi frían aðgang að snyrtingu þurfi þeir á henni að halda. Þá hefur Breiðholtsblaðið heimildir fyrir því að Sannir landvættir muni einnig taka við rekstri almenningssalernanna í Mjóddinni. Almenningssalernin við Strætó í Mjódd opnuð á ný Tölvur og gögn ehf. þ e k k i n g o g r e y n s l a T& G PC & Mac Þarabakki 3, Mjódd 109 Reykjavík Sími: 696-3436 www.togg.is • Office 365 þjónusta • Gagnabjörgun og afritun • Umsjón tölvukerfa • Vefsíðugerð og umsjón • Tölvuviðgerðir • Tölvur og jaðarbúnaður Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir Pantaðu tiltekt á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í leiðinni Fáðu lyfin send heim með póstinum Pantaðu sendingu á appotek.is Garðs Apótek - um land allt Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar - ekki allir sáttir við gjaldtöku Þær Hanna Mae Isorena Guðjónsdóttir og Hólmfríður Erla Davíðsdóttir, nemendur í 10. MA í Seljaskóla komu færandi hendi til skólastjórnenda og gáfu skólanum verk sem þær unnu á liðinni haustönn. Þær hafa verið við nám í þrívíðri hönnun í vali hjá Dagnýju Sif Einarsdóttur, myndlistarkennara. Þær kalla verkið Sofðu unga ástin mín og sýnir það ungabarn sem liggur á handlegg. Sannkallað hugarfóstur. Verkinu hefur verið komið fyrir í sýningarskáp á gangi skólans. Þarna verður fólk að borga 200 krónur annað hvort með peningum eða korti til að komast á snyrtingu. - en ýmis verk að vinna Hanna Mae Isorena og Hólmfríður Erla með verkið sem sýnir ungabarn liggjandi á handlegg. Færðu skólanum sínum hugarfóstur

x

Breiðholtsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.