Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Síða 6
6 Breiðholtsblaðið APRÍL 2018
Fjölþing um ljósmyndasýningu Hildar Björnsdóttur verður
haldið í Menningarhúsinu Gerðubergi laugardaginn 5. maí n.k.
en þá tekur Hildur á móti gestum og leiðir þá um sýninguna.
Málþingið hefst kl. 14.
Hildur Björnsdóttir myndlistarkona hefur á undanförnum árum
ferðast víða um Asíu og kynnst fjölbreyttri menningu, trúarbrögðum
og lífsháttum í Tíbet, Víetnam, Kambódíu, Nepal, Indlandi og
Tælandi. Hún safnar í sarpinn með því að taka ljósmyndir, skrifa og
skissa í dagbókina sína. Á sýningunni Fjölþing er að finna listræna
úrvinnslu á þeirri nýju sýn og þekkingu sem Hildur hefur öðlast með
því að komast í kynni við fólk á öllum aldri, búa á meðal þess og
heimsækja staði sem margir bera merki um mannlega þjáningu og
sögulega atburði. Sýningin vekur upp margar spurningar og býður
áhorfandanum í heimspekilegt ferðalag á framandi slóðir.
Monika Jóhanna Karlsdóttir nemandi á
myndlistarbraut bar sigur úr býtum í samkeppni
myndlistarbrautar FB um besta vegglistaverkið á
húsgaflinn við Vesturberg 70 til 74. Vinningsféð
er 50.000 kr. sem verður afhent við útskrift í
Hörpu í maí.
Borgarráð Reykjavíkurborgar veitti FB 200.000
króna styrk til verkefnisins en auk þess styrkir
hússjóður Vesturbergs 70 til 74 uppsetninguna sem
og FB og Litaland. Myndin nefnist Fuglaflæði og er
byggð upp í kringum hugmynd af fuglum á flugi og
stúlku með boga og örvar.
Glæsilegt útilistaverk í BreiðholtiFjölþing um sýningu
Hildar Björnsdóttur
í Gerðubergi
Hildur Björnsdóttir.
Fuglaflæði komið á vegginn
Hugmyndir eru um að færa
pósthúsið í Mjóddinni um
set en þó ekki langt. Reykja-
víkurborg hefur áhuga á að
festa kaup á því húsnæði sem
Íslandspóstur er í Mjóddinni í
sama húsi og Strætó við Þöngla-
bakka. Ef af kaupunum verður
er borgin tilbúin að leigja
póstinum húsnæði þar sem
Kaffi Strætó var til húsa á árum
áður og síðar Garnbúðin Gauja
en það hefur staðið tómt að
undanförnu.
Hugmyndir um kaup á
húsnæði Íslandspósts kemur í
framhaldi af því að nýlega festi
borgin kaup á húsnæði sem
var í eigu Strætó bs. á annarri
hæð hússins. Borgin á því um
21% eignarhluta í húsinu nú
þegar en myndi eignast allt að
79% ef af kaupum á húsnæði
póstsins verður. Stjórnendur
Íslandspósts eru að skoða þetta
mál en árið 2011 var hætt við
að loka pósthúsinu í Mjódd og
sameina starfsemi þess pósthús-
inu við Dalveg í Kópavogi vegna
mótmæla Breiðhyltinga.
Reykjavíkurborg vill kaupa
húsnæði póstsins í Mjóddinni
- býður póstinum húsnæðið þar sem Kaffi Strætó var til leigu
Pósthúsið við Þönglabakka í Mjódd.
Verk Moniku Jóhönnu
á húsgafl inum við
Vesturberg 70 til 74.
Veiðisumarið hefst í Elliðavatni
sumardaginn fyrsta
Elliðavatn sem er á mörkum Reykjavíkur og
Kópavogs er eitt vinsælasta silungsveiðivatn
á Íslandi. Þangað leggja leið sína þúsundir
veiðimanna á öllum aldri – sumir að stíga sín
fyrstu skref í áttina að fangi veiðigyðjunnar, en
aðrir eru komnir á lokasprettinn – en eru samt
ævinlega viljugir til að heimsækja Elliðavatnið
ár eftir ár – enda er aðdráttarafl vatnsins
ómótstæðilegt þeim sem komast í kynni við
leyndardóma þess: Ná að ráða gátuna.
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl hefst veiðin í Elliðavatni enn eitt
árið. Vatnið breiðir út faðm sinn og tekur vel á móti yngri veiðimönnum sem hinum
eldri. Veiðin í Elliðavatni hefur verið mjög góð síðustu sumur og allar líkur á að svo
verði einnig í sumar.
Veiðikortið – sem er stoltur leigutaki og umsjónaraðili Elliðavatns – býður
veiðimenn á öllum aldri hjartanlega velkomna til veiða í Elliðavatni í sumar og
hvetur til þess að menn opni veiðisumarið í vatninu og haldi þannig með viðeigandi
hætti upp á sumarkomuna; í Elliðavatni á sumardaginn fyrsta!
Veiðikortið fæst um allt land, á bensínstöðvum, í veiðibúðum og víðar.
Mjódd • S: 571 3411
www.facebook.com/Módjó-Verslun
Veski og box
með skannvörn
RFID Vörn. Ekki hægt að skanna
korta upplýsingar.
Leðurveskin
frá Adam Carter. C-Secure RIFID kortabox tekur 5 til 7 kort.
C-Secure RIFID kortaveski með Ítölsku leðri
tekur 5 til 7 kort.