Breiðholtsblaðið - apr 2018, Síða 8
Eyþór Arnalds oddviti framboðs Sjálfstæðismanna við komandi borgarstjórnarkosningar
segir að afnema eigi fast eigna
skatt a eldri borg ara, 70 ára
og eldri óháð tekjum kom ist
Sjálf stæðis flokk ur inn til valda
í borg inni eft ir kosn ing ar.
Eyþór horfir til eldri borgara
í áherslum sínum um stjórn
Reykjavíkurborgar en húsnæðis
umferðar og loftslagsmál eru
honum einnig hugleikin auk þess
að bæta verði aðstöðu foreldra
með ung börn. Hann segir að
ráðast verði að svifryki sem
plága Reykvíkinga með aukinni
hreinsun en einnig að finna
leiðir til að draga úr myndun
þess. Breiðholtsblaðið hitti
Eyþór að máli á dögunum.
Talið barst fyrst að Breiðholtinu
sem Eyþór segir um margt
merkilegt hverfi eða byggð.
Breiðholtið hafi nánast verið
byggt í einu vettvangi fyrir hálfri
öld með verklagi sem ekki hafði
áður sést í Reykjavík. Tilefnið
hafi fyrst og fremst verið að
leysa mikinn skort á íbúðar-
húsnæði sem hafi undið upp
á sig í borginni. “Ég er nánast
jafngamall Breiðholtinu en ólst
upp í Árbænum hinu megin
Elliðaánna fram að fermingaraldri.
Árbæjarhverfið er aðeins eldra
en Breiðholtið og í raun fyrsta
skipulagða úthverfið í Reykjavík
en svo kom Breiðholtið sem strax
varð fjölmennasta hverfi borgar-
innar og er það enn. Það var
mikill samgangur á milli þessara
byggða og því fylgdist ég vel
með Breiðholtinu. Ég byrjaði að
spila á trompet með lúðrasveit
Árbæjar og Breiðholts og kynntist
því mörgum krökkum í gegnum
lúðrasveitarstarfið og eignaðist
vini úr Breiðholtinu. Fellahellir
var fyrsta nútíma félagsmiðstöðin
í Reykjavík. Þetta var menning-
armiðstöð okkar og fóru margir
krakkar úr Árbænum yfir í
Breiðholtið til þess að taka þátt
í félagsstarfinu. Í Fellahelli gafst
krökkunum tækifæri til þess að
búa sér til sína eigin menningu
og hluti af því var tónlistarmenn-
ing. Það hafa margir tónlistar-
menn komið úr Breiðholtinu og
ég er sannfærður um að starfið í
Fellahelli átti þátt í því. Mér hefur
alltaf þótt vænt um Breiðholtið.
Þar átti ég margar góðar stundir
á bernskuárunum.”
Endurnýjum Breiðholtið
Eyþór bjó um tíma í London
sem stendur saman af 32 hverfum
eða borgarhlutum. Hann segir að
hvert hverfi sé ákveðin eining í
stórborginni - eining með sitt
hjarta og að fólk leiti almennt lítið
út fyrir hverfið sitt eftir almennri
þjónustu. Þótt stærðarmunur
á London og Reykjavík sé
mikill þá geti þetta skipulag
hentað ágætlega hér. Efla þurfi
þjónustuna inn í hverfunum,
auka fjölbreytni hennar og skapa
meira innra líf þeirra. “Ef við
litum sérstaklega á Breiðholtið
í því sambandi þá er það kjörin
vettvangur til þess að vinna að
þessu markmiði. Það er afmarkað
af ytr i aðstæðum og með
þjónustukjarna sem er Mjóddin
þar sem umferðaræðar mætast.
Ég sé ýmsa stóra möguleika
fyrir mér í Breiðholtinu, en þar
er uppbygging í Mjódd eitt af
stóru tækifærunum. Mjóddin
er stórt svæði með frábærar
vegtengingar. Það mætti flytja
eitthvað af þjónustustofnunum í
Mjóddina og efla hana líkt og við
Kringlu og Smárann. Blönduð
byggð og jafnvel hótel. Þetta væri
burðarverkefni í að endurnýja
Breiðholtið í heild. Eitt af því
sem mætti byrja á er að opna
sundlaugina í Seljahverfinu fyrir
almenning en hún er aðeins notuð
sem kennslulaug. Mikilvægt er
að efla almenningssamgöngur
innan hverfisins – að tengja
byggðina betur saman ekki
síst þegar kemur að skólum og
íþrótta- og félagsaðstöðu. Eitt
af því sem snertir Breiðhyltinga
alveg sérstaklega eru gatnamótin
þar sem Bústaðavegur inn
mætir Reykjanesbrautinni á
leið sem margir Breiðhyltingar
og aðrir fara jafnvel oft á dag.
Þarna eru varasöm ljósastýrð
gatnamót með vinstri beygjum
sem stöðva umferðarflæðið um
Reykjanesbrautina á nokkra
mínútan fresti. Þetta er mál sem
setið hefur fast um árabil einkum
vegna þess hversu gatnamótin
liggja nærri Elliðaánum. En
þetta þarf að leysa hið fyrsta
hvort sem lausnin finnst með
mislægum gatnamótum eða
eft ir öðrum leiðum. Þessi
gatnamót eins og þau eru tefja
umferðarflæði og hefta þar með
samgöngur Breiðhyltinga við
aðra borgarhluta.”
Lengja þarf opnunartíma
Mjóddarinnar
“Nauðsynlegt er að ef la
Mjóddina sem samgöngumiðstöð
og hafa hana opna lengur á
daginn,” heldur Eyþór áfram. Í dag
lokar flest þar kl.18 en með því að
lengja þennan tíma til klukkan 19
myndu opnast möguleikar fyrir
mannlíf lengra fram eftir kvöldinu.
Þetta á ekki síst við fólk sem
notar almenningssamgöngur. Við
þekkjum að veðrið getur oft verið
hryssingslegt og það er notalegt
fyrir fólk sem er að bíða eftir
Strætó að geta verið inni hvað
þá að rölta um verslanamiðstöð.
Þetta er eitt af þeim tækifærum
sem þarf að nýta til þess að efla
sjálfstæði Breiðholtisns – að gera
það að bæ í borginni.”
Efla hverfisráðin og láta
íbúa kjósa í þau
Eyþór segir enga þekkja
Breiðholtið betur en íbúana sjálfa.
Því sé mikilvægt að þeir hafi meira
um málefni þess að segja en verið
hefur og er. “Eitt af því sem ég tel
mikilvægt er að breyta stjórnkerfi
borgarinnar á þann veg að íbúar
kjósi fólk til starfa í hverfisráðum í
stað þess að stjórnmálaflokkar og
framboðsaðilar velji fólk til setu
þar eins og nú er. Að íbúar kjósi
í hverfisráðin getur verið fyrsta
skrefið að opnara stjórnkerfi.
Síðan þarf að breyta hlutverki
ráðanna og auka verksvið þeirra
og vald. Breiðholtið hefur alla
burði til þess að vera borgarhverfi
eða byggð með sitt hjarta. Þetta
er liðlega 20 þúsund manna
samfélag. Á stærð við Akureyri og
hvergi auðveldlega í borginni að
efla þjónustu og auka íbúalýðræði
en þar.”
Samgöngu- og hús-
næðismál efst í huga
En frá Breiðholtinu yfir í
almennari atriði sem snerta
borgarbúa. Hverju vill Eyþór
standa fyrir. Hann hefur talað fyrir
því að endurskoða aðalskipulag
Reykjavíkur. “Já – það er alveg
rétt. Ég tel mikilvægt að halda
jafnvægi innan borgarinnar. Við
verðum að horfa á bygginga- og
samgöngumálin í einu lagi. Þau
eru svo nátengd. Byggja þarf á
hagkvæmum stöðum í borginni
og gæta þess að verð fari ekki
úr böndunum. Íbúaðverð hefur
8 Breiðholtsblaðið APRÍL 2018
Breiðholt – borgarhverfi með eigið hjarta
Eyþór Arnalds lauk burtfararprófi í sellóleik á sínum tíma og þótt hann hafði ekki haft tónlistina að aðal-
starfi hin síðari ár grípur hann í hljóðfærið. Hér er hann að leika á sellóið fyrir eldri borgara í Seljahlíð á
dögunum.
Eyþór segir enga
þekkja Breiðholtið
betur en íbúana
sjálfa. Því sé
mikilvægt að þeir
hafi meira um
málefni þess að
segja en verið
hefur og er.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Opið: 10-17
alla virka daga
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
- viðtal við Eyþór Arnalds oddvita Sjálfstæðismanna við borgarstjórnarkosningarnar