Breiðholtsblaðið - nov. 2018, Side 7
7BreiðholtsblaðiðNÓVEMBER 2018
VIÐ HÖFUM OPNAÐ NÝJA
OG ENDURBÆTTA NETTÓ Í MJÓDD!
Opið allan sólarhringinn - Verið velkomin! www.netto.is
Karlar í skúrum er nýtt verkefni sem Rauði
krossinn er að hleypa af stokkunum í Breiðholti.
Ætlunin er að hefja starfsemina í Gerðubergi á
fimmtudögum milli kl. 10 og 12 en verið er að leita
eftir framtíðar húsnæði þar sem aðstaða verður
fyrir fjölbreyttari starfsemi. Kynningarfundur
verður haldinn í Gerðubergi næst komandi
fimmtudag 22. nóvember kl. 10 fyrir hádegi og eru
karlar og þá einkum þeir sem komnir eru að eða á
eftirlaunaaldur hvattir til þess að mæta.
En hvað eru karlar í skúrum. “Þetta er
samfélagslegt verkefni sem er opið fyrir alla karla
18 ára og eldri en er einkum nýtt fyrir karla sem eru
komnir á eftirlaunaaldur og karla sem hafa lausan
tíma að deginum. Hugmyndin er að skapa notalegt
umhverfi fyrir karla sem vilja koma saman og huga
að einhverjum áhugamálum sínum,” segir Hörður
Sturluson, forsvarsmaður verkefnisins. Hann segir
að um sjálfsprottið verkefni sé að ræða þar sem
karlarnir koma sjálfir með hugmyndir að verkefnum
bæði sem unnt sá að vinna saman að og einnig
þar sem hver og einn geti unnið sem einstaklingar.
Engin skylda sé þó að koma með hugmyndir að
verkefninu eða fást við sérstök viðfangsefni. Menn
geti líka komið saman til að fá sér kaffisopa og ræða
menn og málefni. Er þetta séríslenskt fyrirbæri.
“Nei, alls ekki,” segir Hörður. “Þetta er nær tveggja
áratuga gömul hugmynd sem byrjaði í Ástralíu undir
heitinu Men in Sheds” sem við höfum yfirfært á
íslensku sem “karlar í skúrum”. Þetta verkefni hefur
notið mikilla vinsælda víða og sem dæmi má nefnda
að um 420 verkefni eða skúrar eru starfræktir á
Írlandi. “Þetta er annar skúrinn sem við erum að
stofna hér á lendi en einn hefur starfað í Hafnarfirði
um tíma og nú nýta sér um 35 karlar þennan
félagsskap og aðstöðu sem um er að ræða,” segir
Hörður. En hvað gera karlarnir einkum í skúrunum.
Við hvað eru þeir að fast. Hörður segir að þar kenni
margra grasa. “Sumir eru að vinna með timbur.
Smíða og skera út. Þeir hafa rennibekk til afnota
sem er nauðsynlegur fyrir smíðavinuna. Aðrir eru
að tálga til dæmis fugla og að smíða púsluspil fyrir
leikskólana í nágrenninu sem þeir gefa. Sumir koma
einkum til þess að finna sér félagsskap í notalegu
umhverfi.” Hörður segir karlana stjórna skúrunum
sjálfir og þurfi að leysa ágreiningsmál komi þau upp.
Aðeins séu tvær reglur í skúrastarfinu. Önnur að
félagsskapurinn sé opinn fyrir alla karlmenn sem
orðnir eru 18 ára og hin að ekkert áfengi sé haft um
hönd í skúrunum. “Menn eru ekki að koma þangað
til þess að þjóra eða yfir höfuð að hafa áfenga drykki
um hönd.” Ekki er búið að ákveða opnunardag í
Breiðholtinu og segir Hörður það fara nokkuð eftir
því hvernig gangi að fá hentugt húsnæði þar sem
hægt sé að vinna með verkfærum jafnframt því að
spjalla saman en vonandi dragist það ekki lengi.
Karlar í skúrum
Hörður Sturluson forsvarsmaður “karla í skúrum”.
- áhugavert verkefni fyrir karla að hefjast í Breiðholti
klipp-art
h á r g r e i ð s l u s t o f a n
Kæru Breiðhyltingar
Hólagarði • Sími: 5572653
Við á Klippart bjóðum
Hófí velkomna til starfa.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Rannveig, Svea og Hófi