Breiðholtsblaðið - nov. 2018, Side 12
12 Breiðholtsblaðið NÓVEMBER 2018
-
New classes start January 14th
Morning and evening classes
Level 1–5
LEARN ICELANDIC AT MÍMIR
Sign up at
www.mimir.is
e-mail us
mimir@mimir.
is• Courses at Höfðabakki 9 and Öldugata 23 (city centre).
• We offer various courses for different needs.
• We offer experience, quality, fun and good teachers.
Hraunberg ísbúðin okkar hefur
tekið á sig nýtt útlit eftir gagngerar
breytingar á undanförnum mánuðum.
“Við höfum bætt við matseðilinn
okkar og bjóðum nú upp á salatbar,
samlokubar og boozt ásamt því að vera
enn með okkar vinsælu hamborgara og
báta á góðu verði.
Erum daglega með góð tilboð af
matseðli. Kjörís er nú kominn aftur til
okkar í Hraunberg og á fimmtudögum
bjóðum við upp á tvo fyrir einn af ís -
greitt fyrir þann dýrari. Endilega fylgist
með tilboðunum okkar á facebooksíðu
Hraunberg sjoppu og verið velkomin í Hraunberg - ísbúðina okkar í
Breiðholti,” segir Helga Björg Gunnarsdóttir í Ísbúðinni.
Nýtt útlit eftir gagn-
gerar breytingar hjá
Ísbúðinni Hraunbergi
Eins og sjá má hafa miklar breytingar verið gerðar á Ísbúðinni.
Frístundamiðstöðin
Miðberg hélt sína árvissu
Hrekkjavökuhátíð mánudaginn
22. október síðastliðinn.
Skemmtunin, sem er haldin í
haustleyfi grunnskólanna, hefur
fest sig rækilega í sessi sem einn
vinsælasti viðburður ársins hjá
börnunum í hverfinu.
Hátíðin var að þessu sinni
haldin í húsnæði Miðbergs
og Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Meðal fastra liða má
nefna draugahúsið geysivinsæla,
andlitsmálningu og grímugerð,
draugadiskótek og ógeðiskassa,
þar sem þeim sem þorðu bauðst
að dýfa höndunum í kassa
með alls kyns miður geðslegu
innihaldi. Auk þessa var í ár boðið
upp á útieldun á torginu, þar sem
hægt var að baka brauð á priki og
búa til poppkorn yfir 22 Breiðholt
Hrekkjavaka
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum var mikið um dýrðir
á Hrekkjavökuhátíðinni og
skemmtu börn, foreldrar,
starfsfólk og aðrir viðstaddir
sér konunglega. Margir lögðu og
mikinn metnað í skrautlega og
skemmtilega búninga sem hæfa
tilefninu. Starfsfólk Miðbergs
þakkar öllum sem litu við kærlega
fyrir frábæran dag.
Hrekkjavökufjör í Miðbergi
Verið að farða krakka í öllum regnbogans litum.
Hvað skyldu þessair krakkar vera að gera?.
Gervin og búningar voru fjölbreytileg.
Forseti Bandaríkjanna var mættur á svæðið -
eða þannig.