Nesfréttir - mar. 2017, Blaðsíða 7
Nes frétt ir 7
www.borgarblod.is
við opnum
í smáralind
í apríl
100% næring 100% hollusta
NÝR RÉTTURPAD THAIxo style
xo opnar í norðurturni smáralindar í apríl
4,5*
FACEBOOK.COM/
XO VEITINGASTAÐUR
4,7*
Leikskóli Seltjarnarness
Innritun fyrir skólaárið 2017-2018
Innritun barna fyrir skólaárið 2017-2018 fer fram í aprílmánuði nk. Til að eiga rétt á
leikskóladvöl þarf barn að eiga lögheimili á Seltjarnarnesi. Sækja skal um leikskóladvöl á
heimasíðu Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is gegnum Mínar síður. Mikilvægt er að
umsóknir hafi borist fyrir 31. mars nk. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða afgreiddar
eftir því sem leikskólapláss losnar.
Nánari upplýsingar og aðstoð við innritun veitir Sonja Jónasdóttir í Leikskóla Seltjarnarness í
síma 5959287. Fyrirspurnir má einnig senda á sonja@nesid.is og leikskoli@nesid.is
Upplýsingar um Leikskóla Seltjarnarness:
http://leikskoli.seltjarnarnes.is/
www.seltjarnarnes.is/thjonusta/menntun/leikskolar/
http://www.seltjarnarnes.is/thjonusta/menntun/leikskolar/innritunarreglur/
Skólaskrifstofa Seltjarnarnesbæjar
Að undanförnu verið
unnið við að taka til á
vinnusvæði umhverfis-
deildar Seltjarnarnesbæjar
við Bygggarða. Gámana
sem þar eru hafa verið flut-
tir til og þeim komið betur
fyrir. Ætlunin er síðan
að lagfæra útlit þeirra að
sögn Gísla Hermannssonar
sviðsstjóra umhverfissviðs
Seltjarnarnesbæjar.
Þessa dagana er unnið að
undirbúningi þess að ráða
sumarstarfsfólk til bæjarins.
Steinunn Árnadóttir sér um það eins og áður en sú breyting hefur verið
gerð varðandi ráðningarnar að Steinunn sér nú um alla sumarstarfsmenn
þjónustumiðstöðvar bæjarins, bæði litlu krakkana sem verða í
vinnuskólanum og einnig aðra sumarstarfsmenn hjá þjónustumiðstöðinni.
Þá verður vinnutími þannig að flokksstjórar mæta til vinnu kl. átta á
morgnana en annað starfsfólk hálfum tíma síðar eða kl. 8.30. Þetta var
reynt á síðasta ári og gaf góð raun. Hlutverk vinnuskólans er tvíþætt.
Annars vegar að kenna krökkunum að taka til starfa en hins vegar að ljúka
ýmsum umhverfisverkefnum – einkum tiltekt og snyrtingu í bænum.
Tiltekt og snyrting
í bæjarfélaginu
Frá vinnusvæði umhverfissviðs Seltjarnar-
nesbæjar þar sem verið er að laga til og
snyrta þessa dagana.