Nesfréttir - mar. 2017, Blaðsíða 11

Nesfréttir - mar. 2017, Blaðsíða 11
Nes ­frétt ir 11 ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK Ný heimasíða: www.systrasamlagid.is www.facebook.com/Systrasamlagid Sími: 511 6367 Í traustum höndum á Óðinsgötu 1 AFGREIÐSLUTÍMI: Mán. - fös.: 9 - 18. Laugardagar: 10 - 16. MANDUKA skara fram úr! PRO, PROlite eKO, eKOlite, eKO fisléttar og fylgihlutir. NÝTT. Látúns lyklakippur Feminist, Dude, Vibes og Boss. DRAUMA- SAMFESTINGURINN! 2 litir, 2 snið – allar stærðir Lífræn, sterk “Fair Trade” bómull. Förum dýpra inni í slökun og hugleiðslu. Flothettan nú fáanlegum í fjórum litum/ munstrum: Blá Svört Blá munstruð eftir Sigga Eggerts Blá munstruð eftir Sigga Odds Verð: 16.400 kr. Líka í netsölu á www.systrasamlagid.is HUGLEIÐSLA ÁRSINS ER FLOT! Orðin er föst og vinsæl venja að lesa alla 50 Passíusálma séra Hallgríms Péturssonar upp í Seltjar- narneskirkju á Föstudaginn langa, sem nú er 14. apríl. Lesturinn hefst kl. 13 og lýkur um kl. 18. Hópur karla og kvenna á öllum aldri les. Fögur tónlist verður flutt í hléum á milli lestra. Allir eru velkomnir í kirkjuna til að njóta lestursins og tónlistarinnar á þessum að margra mati mikilvægasta degi kirkjuársins, þegar minnst er krossfestingar Krists. Fólk getur staldrað við lengur eða skemur eftir því sem hverjum hentar. Kaffiveitingar verða í safnaðarheimili kirkjunnar. Einstæður snilldarkveðskapur Passíusálmarnir eru einstæður snilldarkveðskapur hins stórmerka prests sr. Hallgríms Péturssonar sem uppi var á árunum 1614 til 1674, mannsins sem Hallgrímskirkja á Skólavörðuhæð og kirkjur víðar á landinu bera nafn af. Í sálmunum rekur sr. Hallgrímur píslargöngu Krists, hugleiðir hana. Margir af þeim lærdómum sem hann dregur af ferli frelsarans eiga fullt og brýnt erindi við þjóð okkar enn í dag. Sálmarnir hafa öldum saman verið í miklu uppáhaldi hjá þjóðinni, fólk margra kynslóða lært suma þeirra utanbókar. Meðal erinda úr Passíusálmunum sem oft eru sungin við messur má nefna t.d. Son Guðs ertu með sanni og Víst ertu, Jesús, kóngur klár. Fyrsti sálmurinn hefst með þeim víðkunnu orðum: Upp, upp mín sál og allt mitt geð. Prentaðir 100 sinnum Ekkert rit hefur verið prentað jafnoft á íslensku og eru prentaninar nú orðnar 100 talsins, auk þýðinga og útgáfa á fjölda annarra tungumála. Nýverið kom út einstaklega vönduð útgáfa með ítarlegum skýringum Marðar Árnasonar íslenskufræðings. Í fyrra voru 350 ár liðin frá frumútgáfu Passíusálmanna árið 1666 á Hólum. Sóknarnefnd og Listvinafélag Seltjarnarneskirkju (LVS) standa fyrir flutningi Passíusálmanna nú eins og mörg undanfarin ár. Þess er vænst að sem flestir líti inn. Allir Passíusálmarnir lesnir á Föstudaginn langa Stuðningsfjölskyldur Vilt þú eða þið gerast stuðningsfjölskylda? Við leitum að fólki til að verða stuðningsfjölskylda fyrir 11 ára gamlan, lífsglaðan og skemmtilegan, fatlaðan dreng. Stuðningsfjölskyldan eru helgarforeldrar eina helgi í mánuði. Þetta er gefandi og fjölbreytilegt verkefni unnið í samráði við okkur á félagsþjónustunni og foreldra drengsins. Nánari upplýsingar gefa Jódís Bjarnadóttir félagsráðgjafi í síma 5959100 eða jodisb@seltjarnarnes.is eða Snorri Aðalsteinsson í sama símanúmeri eða á snorri@seltjarnarnes.is

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.