Vesturbæjarblaðið - Jun 2015, Page 8

Vesturbæjarblaðið - Jun 2015, Page 8
Góð mæting var á íbúafundi sem Hverfisráð Vesturbæjar stóð fyrir 28. maí sl. Á fundinum gátu íbúar Vesturbæjar komið með tillögur af því hvernig þeir vilji sjá strætó aka um hverfið. Margar hugmyndir voru ræddar og unnið á borðum þar sem fólk gat teiknað inn sínar óskir um það hvernig það vildi sjá strætóaksturinn um Vesturbæinn. Í framhaldinu vann Hverfisráð Vesturbæjar úr þeim hugmyndum sem settar voru á blað og mun koma þeim áleiðis til borgaryfirvalda og stjórnar Strætó bs. Vesturbæjarblaðið hitti Sverri Bollason formann hverfisráðsins á kaffihúsinu við Hagamel á dögunum og ræddi strætómálið við hann. Sverrir kvaðst mjög ánægður með mætinguna og þær umræður og hugmyndavinu sem fram fór á fundinum. Hugmyndin að baki honum hafi verið að heyra í fólki og leita eftir sjónarmiðum þess um hvað því fyndist vanta til þess að gera kerfið skilvirkara og bætt þjónustuna. Bætt tenging á milli skóla-, íþrótta- og tómstundasvæða „Mér finnst væntingarnar í garð Strætó einkum þær að bæta tengingar á milli skólasvæða, sundsvæða- og íþróttasvæða og félagsmiðstöðvanna – þeirra staða þar sem æskulýðsstarfið fer fram. Mannaferðir á milli þessara staða er að miklu leyti um miðjan dag og því utan háannatíma Strætó þegar fólk er að fara til vinnu á morgnana og heim er líða tekur á daginn. Við verðum að horfa til þess að krakkar og unglingar þurfa á þessu samgönguneti að halda. Við þurfum að létta ýmiskonar skutli með krakkana af foreldrum sem oft fer fram á vinnutíma. Yngri krakka eru lægri í loftinu og skreflengdin styttri hjá þeim er fullorðnum. Þar að auki eru þau oft að bera allt að þriðjung þyngdar sinnar í skólatöskum á bakinu sem getur verið erfitt fyrir þau ekki síst þegar viðrar illa eins og oft getur gerst. Þetta gerir þeim erfiðara að fara gangandi á milli staða heldur en okkur fullorðan fólkinu. Þar að auki lít ég það sem uppeldislegt atriði að venja krakka við að nota almenningssamgöngur – að nota strætó vegna þess að fólk sen hefur alist upp við almenningssamgöngur sem börn nota þær miklu frekar þegar kemur fram á fullorðinsárin. Reynslan sýnir að fólk sem notar Strætó og þekkir samgöngukerfið er oft mun jákvæðara en þeir sem lítið þekkja til þess. Því fólki hætti oftar til þess að sjá ljón í veginum á öllum leiðum.“ Auka þarf þjónustu við Örfirsey og Seltjarnarnes S v e r r i r s e g i r á k v e ð n a r óskir hafa komið fram um að auka þjónustu Strætó við þá sem leið eiga í verslana- og athafnabyggðina í Örfirsey. „Hvaða skoðun sem menn hafa á því hvort rétt hafi verið að reisa verslanabyggð á þessu svæði þá er hún komin og því þarf að gæta þess að samgöngur séu greiðar, almenningssamgöngur s e m a ð r a r. E i n n i g k o m u fram hugmyndir um að bæta a lmenningssamgöngur v ið Seltjarnarnes þá einkanlega Gróttusvæðið. Ég held að það komi til af því krakkar og ungmenni úr Vesturbænum stunda fimleika hjá Gróttu og vilja gjarnan geta tekið Strætó út eftir til þess að stunda æfingar.“ Þurfum að nálgast íbúana „Eins og þjónustu Strætó við Vesturbæinga er háttað í dag þá er hún misjöfn eftir því hvar þeir búa. Melarnir og Hagarnir eru í nokkuð góðum tengslum við leiðir Strætisvagnanna en öðru máli gegnir um gamla Vesturbæinn á milli Hringbrau- tar og Mýrargötu. Ég tel að við verðum að hugsa á hvern hátt sé hægt að nálgast íbúana á þessu svæði og hvaða leiðum þurfi að breyta í því efni.“ Sverrir kveðst telja að Vesturgata þoli einhverja umferð almenningsvagna en hún var lengi umferðaræð þeirra þegar tvisturinn ók eftir henni. „Ég minnist eldri konu sem kom á fundinn til okkar og benti á þann vanda sem eldra fólk býr við af þessum sökum. Fyrir þá sem búa næst miðbænum er eina stop- pistöðin við ráðhúsið og einu strætóleiðirnar um Hofsvallagötu og Suðurgötu í vesturátt. Fólk þarf því að ganga talsverðan spöl til þess að taka strætó á þessum stöðum og þótt gönguferðir séu af hinu góða eins og hver önnur hreyfing þá þarf þjónustan að vera nærri íbúunum. Íbúar í Skerjafirði eru áhugasamir um að að bæta þjónustuna einkum er varðar tengingu við Mela- og Hagaskólann og hefur það mál lengi verið á dagskrá íbúa þar.“ Þörf fyrir innanhverfis Strætó Sverrir segir spurningu um hvort koma þurfi upp innanhver- fisvagni sem fari ákveðnar leiðir um Vesturbæinn. „Þetta er eitt af því við þurfum að skoða því slík leið myndi örugglega nýtast vel en vantar sárlega. Þá er staðreyndin sú að stofnleiðirnar eitt, þrjú og sex fara ekkert inn í íbúðahverfin í Vesturbænum en gætu nýst mjög vel. Kerfið sem notað er í dag er miðað við að vagnarnir komist hratt yfir og séu sem skemmstan tíma á leiðinni en að notendurnir þurfi að ganga eða skipta frekar. Það var nauðsynlegt að skipta út gamla leiðakerfi SVR sem var bara sama kerfið en árlega var teygt á því. Nýtt kerfi kom til sögunnar og ný hugsun fylgdi því. En hugsanlega þyrftum við að snúa aðeins aftur til einhverra þeirra gæða sem gamla leiðakerfið hafði. Ný innanhverfisleið gæti komið til móts við þessar þarfir. Við höfum fengið fullt af efni í hendurnar um hvaða staðir skipta íbúana máli. Næsta skref er að kynna það sem fram kom á fundinum f y r i r b o rg a r f u l l t r ú u m o g stjórn Strætó bs.“ 8 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2015 Þurfum að bæta þjónustuna í Vesturbænum Vesturbæingar teikna upp sína óskaleiðir með Strætó á íbúafundinum í Vesturbænum. Sverrir Bollason formaður Hverfisráðs Vesturbæjar. Stóru strætisvagnarnir fara ekki lengur inn í gamla Vesturbæinn. Þessi tegund bíla er orðin áberandi í ferðaþjónustunni. Ganga oft undir heitinu „mini bus“ og eru notaðir til þess að ferðast með fámennari hópa, sem hótelskutlur og til fleiri nota. Spurning er um hvort þeir geti leyst þann vanda sem kann að skapast ef hverfisvögnum verður komið á fót og stóru vagnarnir nýtast illa til þeirra verkefna. Nesvegur 100 Símar 562-1070, 896-4243 Opið virka daga kl. 10 - 18:30 MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA VERIÐ VELKOMIN FERSKUR FISKUR DAGLEGA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Útfararþjónusta síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.