Vesturbæjarblaðið - jun 2015, Qupperneq 8
Góð mæting var á íbúafundi
sem Hverfisráð Vesturbæjar
stóð fyrir 28. maí sl. Á fundinum
gátu íbúar Vesturbæjar komið
með tillögur af því hvernig
þeir vilji sjá strætó aka um
hverfið. Margar hugmyndir
voru ræddar og unnið á borðum
þar sem fólk gat teiknað inn
sínar óskir um það hvernig það
vildi sjá strætóaksturinn um
Vesturbæinn. Í framhaldinu
vann Hverfisráð Vesturbæjar úr
þeim hugmyndum sem settar
voru á blað og mun koma þeim
áleiðis til borgaryfirvalda og
stjórnar Strætó bs.
Vesturbæjarblaðið hitti Sverri
Bollason formann hverfisráðsins
á kaffihúsinu við Hagamel á
dögunum og ræddi strætómálið
við hann. Sverrir kvaðst mjög
ánægður með mætinguna og
þær umræður og hugmyndavinu
sem fram fór á fundinum.
Hugmyndin að baki honum hafi
verið að heyra í fólki og leita
eftir sjónarmiðum þess um hvað
því fyndist vanta til þess að
gera kerfið skilvirkara og bætt
þjónustuna.
Bætt tenging á milli
skóla-, íþrótta- og
tómstundasvæða
„Mér finnst væntingarnar í
garð Strætó einkum þær að bæta
tengingar á milli skólasvæða,
sundsvæða- og íþróttasvæða
og félagsmiðstöðvanna – þeirra
staða þar sem æskulýðsstarfið
fer fram. Mannaferðir á milli
þessara staða er að miklu leyti
um miðjan dag og því utan
háannatíma Strætó þegar fólk
er að fara til vinnu á morgnana
og heim er líða tekur á daginn.
Við verðum að horfa til þess að
krakkar og unglingar þurfa á
þessu samgönguneti að halda.
Við þurfum að létta ýmiskonar
skutli með krakkana af foreldrum
sem oft fer fram á vinnutíma.
Yngri krakka eru lægri í loftinu
og skreflengdin styttri hjá þeim
er fullorðnum. Þar að auki eru
þau oft að bera allt að þriðjung
þyngdar sinnar í skólatöskum
á bakinu sem getur verið erfitt
fyrir þau ekki síst þegar viðrar
illa eins og oft getur gerst. Þetta
gerir þeim erfiðara að fara
gangandi á milli staða heldur en
okkur fullorðan fólkinu. Þar að
auki lít ég það sem uppeldislegt
atriði að venja krakka við að
nota almenningssamgöngur
– að nota strætó vegna þess
að fólk sen hefur alist upp við
almenningssamgöngur sem börn
nota þær miklu frekar þegar
kemur fram á fullorðinsárin.
Reynslan sýnir að fólk sem notar
Strætó og þekkir samgöngukerfið
er oft mun jákvæðara en þeir
sem lítið þekkja til þess. Því fólki
hætti oftar til þess að sjá ljón í
veginum á öllum leiðum.“
Auka þarf þjónustu við
Örfirsey og Seltjarnarnes
S v e r r i r s e g i r á k v e ð n a r
óskir hafa komið fram um
að auka þjónustu Strætó við
þá sem leið eiga í verslana- og
athafnabyggðina í Örfirsey.
„Hvaða skoðun sem menn hafa á
því hvort rétt hafi verið að reisa
verslanabyggð á þessu svæði
þá er hún komin og því þarf að
gæta þess að samgöngur séu
greiðar, almenningssamgöngur
s e m a ð r a r. E i n n i g k o m u
fram hugmyndir um að bæta
a lmenningssamgöngur v ið
Seltjarnarnes þá einkanlega
Gróttusvæðið. Ég held að
það komi til af því krakkar og
ungmenni úr Vesturbænum
stunda fimleika hjá Gróttu og
vilja gjarnan geta tekið Strætó út
eftir til þess að stunda æfingar.“
Þurfum að nálgast íbúana
„Eins og þjónustu Strætó við
Vesturbæinga er háttað í dag
þá er hún misjöfn eftir því hvar
þeir búa. Melarnir og Hagarnir
eru í nokkuð góðum tengslum
við leiðir Strætisvagnanna
en öðru máli gegnir um gamla
Vesturbæinn á milli Hringbrau-
tar og Mýrargötu. Ég tel að við
verðum að hugsa á hvern hátt sé
hægt að nálgast íbúana á þessu
svæði og hvaða leiðum þurfi að
breyta í því efni.“ Sverrir kveðst
telja að Vesturgata þoli einhverja
umferð almenningsvagna en hún
var lengi umferðaræð þeirra
þegar tvisturinn ók eftir henni.
„Ég minnist eldri konu sem kom á
fundinn til okkar og benti á þann
vanda sem eldra fólk býr við af
þessum sökum. Fyrir þá sem búa
næst miðbænum er eina stop-
pistöðin við ráðhúsið og einu
strætóleiðirnar um Hofsvallagötu
og Suðurgötu í vesturátt. Fólk
þarf því að ganga talsverðan spöl
til þess að taka strætó á þessum
stöðum og þótt gönguferðir séu
af hinu góða eins og hver önnur
hreyfing þá þarf þjónustan að
vera nærri íbúunum. Íbúar í
Skerjafirði eru áhugasamir um
að að bæta þjónustuna einkum
er varðar tengingu við Mela- og
Hagaskólann og hefur það mál
lengi verið á dagskrá íbúa þar.“
Þörf fyrir innanhverfis
Strætó
Sverrir segir spurningu um
hvort koma þurfi upp innanhver-
fisvagni sem fari ákveðnar leiðir
um Vesturbæinn. „Þetta er eitt
af því við þurfum að skoða því
slík leið myndi örugglega nýtast
vel en vantar sárlega. Þá er
staðreyndin sú að stofnleiðirnar
eitt, þrjú og sex fara ekkert inn í
íbúðahverfin í Vesturbænum en
gætu nýst mjög vel. Kerfið sem
notað er í dag er miðað við að
vagnarnir komist hratt yfir og séu
sem skemmstan tíma á leiðinni
en að notendurnir þurfi að
ganga eða skipta frekar. Það var
nauðsynlegt að skipta út gamla
leiðakerfi SVR sem var bara sama
kerfið en árlega var teygt á því.
Nýtt kerfi kom til sögunnar og ný
hugsun fylgdi því. En hugsanlega
þyrftum við að snúa aðeins
aftur til einhverra þeirra gæða
sem gamla leiðakerfið hafði. Ný
innanhverfisleið gæti komið til
móts við þessar þarfir. Við höfum
fengið fullt af efni í hendurnar
um hvaða staðir skipta íbúana
máli. Næsta skref er að kynna
það sem fram kom á fundinum
f y r i r b o rg a r f u l l t r ú u m o g
stjórn Strætó bs.“
8 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2015
Þurfum að bæta þjónustuna
í Vesturbænum
Vesturbæingar teikna upp sína óskaleiðir með Strætó á
íbúafundinum í Vesturbænum.
Sverrir Bollason formaður
Hverfisráðs Vesturbæjar.
Stóru strætisvagnarnir fara ekki lengur inn í gamla Vesturbæinn.
Þessi tegund bíla er orðin
áberandi í ferðaþjónustunni.
Ganga oft undir heitinu „mini
bus“ og eru notaðir til þess að
ferðast með fámennari hópa,
sem hótelskutlur og til fleiri
nota. Spurning er um hvort þeir
geti leyst þann vanda sem kann
að skapast ef hverfisvögnum
verður komið á fót og stóru
vagnarnir nýtast illa til þeirra
verkefna.
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Útfararþjónusta síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn