Vesturbæjarblaðið - jun 2015, Qupperneq 12
12 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2015
Míla hefur nú lokið við að
uppfæra Ljósveitubúnað sinn
í götuskápum í vesturbænum
og þar með hafa heimili sem
tengjast götuskápum möguleika
á allt að 100 Mb/s tengingu með
Ljósveitu Mílu. Það svæði sem
nú hefur verið uppfært er allt
Höfuðborgarsvæðið, Akranes,
Hveragerði og Þorlákshöfn. Þar
með hafa alls um 89 þúsund
heimili nú möguleika á 100
Mb/s tengingu með Ljósveitu.
Til viðbótar hafa um 30 þúsund
heimili aðgang að Ljósveitu með
allt að 70Mb/s tengingu. Þetta
gerir stöðu Íslands gríðarlega
sterka í samanburði við önnur
lönd.
Í nýrri skýrslu starfshóps
innanríkisráðherra „ Ís land
ljóstengt“ kemur fram það
markmið að allir landsmenn
skuli hafa aðgang að 100Mb/s
tengingu árið 2020. Þingsálykt-
unartillaga um fjarskiptaáætlun
sem samþykkt var á Alþingi setur
100Mb/s markið fyrir árið 2022.
Samkvæmt Jóni R. Kristjáns-
syni framkvæmdastjóra Mílu þá
er þetta stór áfangi. Breytingin
er veruleg þó að fæstir muni
taka eft ir henni þar sem
notkunarþörf heimila almennt
er mun minni en 100 Mb/s.
Það endurspeglast í markmiði
starfshóps innanríkisráðherra
um að þessum áfanga skuli
náð 2020. “Engar framkvæmdir
fylgja þessari uppfærslu, hvorki
í götu, á húsnæði notenda
eða lóð. Þessi aukning hefur
sömuleiðis ekki áhrif á verð
þjónustunnar frá Mílu” segir
Jón. Aðeins þarf að skipta um
búnað í götuskápum Mílu og
er þeirri aðgerð lokið á ofan-
greindum svæðum. Langflestir
notendur þjónustunnar verða
lítið varir við þessa útskiptingu
og núverandi þjónusta mun virka
áfram. Þjónustuveitendur sjá
um að uppfæra eða skipta um
endabúnað(router) viðskiptavina
til að virkja þjónustuna.
Míla þjónustar alla
Hingað til hefur umræða um
100Mb/s verið tengd ljósleiðara.
Er þá Ljósveita það sama og
ljósleiðari? „Ljósveita er bæði
ljósleiðari alla leið inn á heimili
og ljósleiðari með koparenda þar
sem búnaður er notaður til að ná
100Mb/s flutningsgetu. Nýjasta
tækni gerir það að verkum að
kapalgerð skiptir hér ekki máli.”
segir Jón.
Míla hefur lagt áherslu á að
tryggja öllum notendum á ofan-
greindum svæðum góðan hraða
en velur sér ekki ákveðnar götur
eða hverfi. Sömuleiðis er vert að
benda á að Ljósveita Mílu er opið
aðgangsnet fyrir öll fyrirtæki með
fjarskiptaleyfi.
Mikilvægur áfangi og
trygg framtíð
Nú er mikilvægum áfanga
náð en verkefninu er ekki lokið.
Þetta hefur verið umfangsmikið
verkefni sem hófst árið 2009 með
Ljósveituvæðingu sem stendur
enn yfir víða um land.
Nú þegar búið er að tryggja
allt að 100Mb/s til allra notenda
Ljósveitu á ofangreindu svæði,
er næsta skref Mílu að tengja
ljósleiðara og blása ljósleiðara í
fyrirliggjandi rör samhliða þeirri
tengingu sem þegar er til staðar.
Þetta verkefni er þegar hafið og
mun því fylgja lítið jarðrask sem
lágmarkar bæði tilkostnað og
óþægindi fyrir notendur. Þannig
mun Míla tryggja til framtíðar að
þegar á þarf að halda verða allir
notendur á ofangreindu svæði
með tengingu sem uppfyllir
þeirra þarfir á hagstæðu verði.
Míla kynnir 100Mb/s tengingar
Jón R. Kristjánsson
framkvæmdastjóri Mílu.
100 Mb/s um Ljósveitu aðgengileg í
vesturbæ Reykjavíkur
Bike Cave –
nýtt kaffihús
við Einarsnes
Bike Cave opnaði nýlega í
Skerfafirðinum við Einarsnes
36 þar sem Skerjaver var á
sínum tíma en sú verslun lokaði
2007. Bike Cave er kaffihús,
veitingastaður og bar fyrir allt
venjulegt fólk sem hefur gaman
af því að setjast niður og njóta
lífsins á kósý stað.
Eigendur hins nýja staðar
leggja upp með að hafa mat og
drykki á mjög sanngjörnu verði
og eingöngu er matreitt úr úrvals
hráefni. Kaffivélin skaffar gott
kaffi úr baunum frá Kaffitári og
með því er hægt að fá einhverjar
bestu vöfflur á Íslandi. Þá er hægt
að leigja vespur í Bike Cave sem
er ótrúlega skemmtileg tilbreyting
og eiginlega nýjung í kaffihúsarek-
stri hér á landi. Þá er sjálfsþjó-
nustuaðstaða fyrir hjólafólk,
allt frá þríhjólum til mótorhjóla
og möguleiki er á aðstoð við
viðgerðir. Bike Cave er opið er
alla daga vikunnar frá 8 til 23.
Heimasíðan er www.bikecave.is
þar sem má sjá nánar hvað boðið
er upp á í þessu gamla og
vinalega húsi.
Vespurnar standa tilbúnar fyrir fram Bike Cave við Einarsnesið.