Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Blaðsíða 4

Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Blaðsíða 4
„Íslenska kýrin og Egils maltið.“ Þannig hljóðaði upphaf ljósvakaauglýsingar fyrir vin- sælan drykk fyrir nokkrum árum. Hlustendum brá nokkuð við því þar var komin þekkt rödd Guðna Ágústssonar þá- verandi landbúnaðarráðherra sem auglýsti maltið með skír - skotun til mjólkur en Guðni hefur löngum verið þekktur sem einn öflugasti talsmaður íslensks land- búnaðar. Sumum þótti lítt við hæfi að landbúnaðarráðherra tæki að sér að tala inn á auglýs- ingar og auglýsa malt hálfvegis í nafni mjólkur og á endanum var upplýst að þarna færi Guðni ekki sjálfur heldur tvífari hans og margra annarra í gegnum tíðina Jóhannes Kristjánsson sem er þekktur fyrir frábæra eftirhermuhæfileika sína. Hvort þessi auglýsing Ölgerðar- innar var upphafið að samstarfi þeirra síðar má láta liggja á milli hluta en þeir hafa oft komið fram saman og skemmt fólki með gamansögum og eftirhermum. Guðna er létt um að segja frá og Jóhannes er fljótur að bregða sér í alls kyns líki – einkum þekktra manna. „Það er ekki nóg að Jóhannes hermi eftir mönnum heldur er eins og hann fari inn í þá og taki persónuleika þeirra og jafnvel útlit á sig. Verði eins og þeir í framan. Hann er undra- maður,“ segir Guðni þegar þeir félagar komu til spjalls á kaffi Örnu á Eiðistorgi á dögunum en þeir eru að hefja nýja seríu skemmti- þátta sinna. Þeir tóku sig til eftir margra ára áskoranir margra að fara saman og skemmta fólki og nú hafa þeir haldið 20 sýningar fyrir fullu húsi voru m.a. í Salnum í Kópavogi og Landnámssetrinu í Borgarnesi og fóru austur fyrir fjall og vestur á firði. Þeir segja að alls staðar bíði fólk eftir að þeir komi. Jóhannes hefur komið og skemmt í flestum samkomuhúsum landsins og þar hélt Guðni sínar háalvarlegu ræður, en nú er það sagnalistin sem ræður för. „Það er auðvitað yndisleg tilfinning að fólkið klappi okkur upp tvisvar og þrisvar í lok sýninganna og hlæi allan tímann,“ segja þeir. Nú segjast þeir ætla að mála Hafnarfjörð rauðan og verði með nokkrar sýningar á næstu vikum í Bæjarbíói. Höfum báðir gaman af þessu Það er erfitt að átta sig á hvor er hvað originalinn og eftirherman þegar rætt er við þá samtímis því stundum tekur eftirherman orðið af originalnum án þess að tekið verði eftir. Þeim verður litið út um gluggann á Eiðistorginu og horfa á Esjuna. Dást að henni sem þeir mega enda báðir sveitamenn í eðli sínu. Annar komin úr flötum Flóa en hinn undan fjöllum á Ingjaldssandi vestur þar sem vetur eru langir. „Já – þetta er skemmtilegt verkefni segja þeir báðir með rödd originalsins. Eftir velgengnina í fyrra, athyglina sem við fengnum og áhuga fólks á að koma og fylgjast með okkur kvöldstund ákváðum við að halda áfram og efna til svona uppistands í vetur. Við höfum báðir gaman af þessu og vorum ánægðir með að öðrum fannst líka gaman af því,“ segja þeir. En spurning er um hver á hvað ef greina á þá í sundur. Kenndi fyrir Ólaf Ragnar Jóhannes á sér langa sögu sem skemmtikraftur í gervum ýmissa þjóðþekktra manna. Hann var minntur á 60 ára afmæli Halldórs Blöndal fyrrum þingmanns og ráðherra sem haldið var í íþróttahúsinu á Akureyri. Þar stóð Jóhannes í pontu margraddað- ur og setti á sig svip stjórnmála- manna. Úr munni hans lofuðu margir afmælisbarnið en löstuðu einnig og að hverju lofi eða lasti loknu svaraði Halldór sem þá var samgönguráðherra – einnig úr munni Jóhannesar og hældi mönnum eða skammaði þá eftir þörfum. Þarna líkömumst margir í persónu Jóhannesar – menn eins og Steingrímur Hermanns- son fyrrum forsætisráðherra og einnig næsta eftirlæti Jóhannesar á eftir Guðna sem er Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum forseti Íslands og Halldór skemmti sér sjálfur manna best undir ræðuhöldun- um. Jóhannes er gamall nemandi Ólafs úr stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. Sagan segir að hann hafi einhverju sinni kennt fyrir hann. „Já - það er rétt. Það gerðist að Ólafur mætti of seint til kennslu sem sjaldan kom fyrir. Eitthvað var minnst á hvort ég vildi kenna fyrir hann og ég lét hafa mig í að fara upp að púlti og hefja fyrirlest- ur. Ég var búinn að tala þarna í nokkrar mínútur þegar Ólafur birtist. Hann lét ekki fara mikið fyrir sér en þegar ég stoppaði og ætlaði til sætis sagði hann,“ og þarna kom rödd Ólafs Ragnars alveg óvænt úr barka Jóhannes- ar, „nei – haltu bara áfram. Þú ert alveg með þetta.“ Oft tekið feil á okkur Guðni segir að oft hafi verið tekið feil á þeim félögum á förnum vegi og ekki síður í símtölum. Menn vissu aldrei hvor var hver. Guðni rifjar upp að hann hafi eitt sinn þurft að ná tali af Jóhannesi og hringt heim til hans. „Árelía móðir Jóhannesar svaraði og ég spurði eftir Jóa sem ekki var heima við. Hún trúði mér ekki og hélt að þetta væri hann að leika á sig. Þetta gekk svona um stund þangað til að hún sagði „Jói minn láttu ekki svona við hana mömmu þína“ hún vissi ekki að það var orginalinn sem var í símanum en ekki sonur hennar. Ég má líka þakka fyrir að Margrét tæki ekki feil á okkur.“ En eru þeir skyldir. „Nei við erum mjög fjarskyldir,“ segir Guðni. „Það er eitthvað annað sem tengir okkur saman. Ég bjó við það að menn bæði úr pólitíkinni og vinir mínir voru oft á varðbergi þegar ég hringdi og eru það enn, en þá spurðu þeir gjarnan hvort þetta væri orginalinn eða eftirherman sem á hinum enda línunnar var.“ 4 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2017 Yfir Vesturbænum býr blæja paradísar Jóhannes Kristjánsson og Guðni Ágústsson í góðu yfirlæti í kaffikrók á Kaffi Örnu á Eiðistorgi. - segja þeir Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson sem ætla að skemmta fólki með gaman- sögum og eftirhermum eins og þeim einum er lagið í vetur Skeljagrandi 1 · 107 Reykjavík Sími 899 3417 · www.tolvuland.is PC og Apple tölvuviðgerðir Fullkomið tölvuverkstæði og margra ára reynsla og þekking fagmanna

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.