Fréttablaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 4
16. febrúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LÖGREGLUMÁL
Maður barði konu
Maður á fimmtugsaldri lagði hendur
á fyrrverandi sambýliskonu sína á
fertugsaldri í Kópavogi aðfaranótt
sunnudags. Maðurinn var farinn af vett-
vangi þegar lögreglu bar að og meiðsli
konunnar ekki sögð þess eðlis að hún
hafi þurft að leita læknis. Ekki kemur
fram í tilkynningu lögreglu hvort mað-
urinn hafi verið handtekinn.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Lyfjaval.is • sími 577 1160
20%
afsláttur
af öllum pakkni
ngum
Afslátturinn gildir í febrúar.
Lyfjaauglýsing
SAMFÉLAG Fjáröflunarátak
Barnaheilla og veitingastaða, Út
að borða fyrir börnin, fór af stað
í fimmta sinn í gær og stendur til
15. mars.
Veitingastaðirnir sem styðja
átakið gera það með því að láta
hluta af verði valinna rétta renna
til verkefna sem snúa að vernd
barna gegn ofbeldi.
Í fréttatilkynningu frá stjórn
Barnaheilla kemur fram að aldrei
hafi fleiri veitingastaðir tekið
þátt í átakinu, en þeir séu 25 í ár.
- ngy
Gegn ofbeldi í fimmta sinn:
Út að borða
fyrir börnin
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
ÁFRAM KAFLASKIPT Í dag má búast við SV-átt og éljum sunnan- og vestantil
og kólnandi veðri. Lægir í kvöld en hvessir af suðaustri með úrkomu eftir hádegi á
morgun. Úrkomulítið verður norðaustanlands næstu daga. Hlýnar á miðvikudag.
-3°
8
m/s
-3°
5
m/s
-2°
9
m/s
1°
16
m/s
Hægur
vindur í
fyrstu en
hvessir af
suðaustri
er líður á
daginn.
Víða
3-10 m/s,
hvass ast
A-til.
Gildistími korta er um hádegi
-7°
22°
0°
8°
17°
-1°
7°
2°
2°
20°
9°
14°
20°
10°
8°
4°
2°
5°
-2°
9
m/s
-1°
13
m/s
-2°
12
m/s
-1°
11
m/s
-2°
8
m/s
-1°
9
m/s
-10°
12
m/s
-1°
4°
-2°
1°
-3°
3°
-4°
1°
-3°
2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á
fimmtugsaldri var handtekinn
í Hafnar firði aðfaranótt sunnu-
dags eftir að hafa ráðist á son
sinn á unglingsaldri.
Unglingspilturinn var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild en
hann var skorinn á höndum.
Fleiri börn voru á heimilinu en
lögregla flokkar málið sem heim-
ilisofbeldi. Faðirinn varði nótt-
inni í fangageymslum og beið
yfirheyrslu þar til „ástand hans“
gæfi tilefni til. Honum var sleppt
úr haldi í gær, en félagsþjónusta
Hafnarfjarðar metur hvort hafa
þurfi frekari afskipti af fjölskyld-
unni. - ktd, bo
Handtekinn í Hafnarfirði:
Faðir skar son
á unglingsaldri
21,3 prósent kvenna á vinnumarkaði
störfuðu árið 2014 hjá stofnunum
eða fyrirtækjum tengdum kennslu-
eða fræðslustarfsemi, en aðeins
5,9 prósent karla á vinnumarkaði
störfuðu í þessum geira atvinnu-
lífsins.
Árið 1999 unnu tæplega 9 prósent
kvenna á vinnumarkaði við þessi
störf en tæplega 5 prósent karla.
LANDHELGISGÆSLAN Varðskipið Týr kom til
hafnar í Augusta á Sikiley með 284 flóttamenn
um borð um kvöldmatarleytið í gær.
Skipverjar á Tý björguðu 184 flóttamönnum
úr tveimur gúmmíbátum djúpt norður af Líbíu
laugardagskvöld. Þá voru teknir um borð til
aðhlynningar 100 flóttamenn sem ítalskt varð-
skip hafði bjargað.
Á meðan skipverjar Týs unnu við að bjarga
71 karli, tveim konum og einu barni úr fyrri
gúmmíbátnum, barst neyðarkall frá öðrum
litlum gúmmíbát. Þar voru um borð 92 karlar
og 18 konur, þar af ein barnshafandi.
Landhelgisgæslan segir alla flóttamennina
284 hafa verið íi góðu skjóli innandyra um borð
í Tý, en fólkið hafi verið skelkað eftir að hafa
siglt á þessu erfiða hafsvæði á litlum opnum
bátum.
Einar Heiðar Valsson, skipherra á Tý, sagði í
samtali við fréttastofu að verkefnið væri mikil
reynsla fyrir áhöfnina. ,,Þetta er yfirleitt ekki
enskumælandi fólk og samskiptin því erfið en
það hefur þó gengið tiltölulega vel,“ sagði Einar
um samskipti áhafnarinnar við flóttafólkið.
Samkvæmt upplýsingum Gæslunnar hefur
fjölda fólks hafa verið bjargað á svæðinu síð-
ustu daga. Svo virðist sem mikið flæði flótta-
fólks sé nú frá Líbíu áleiðis til Ítalíu. - ngy
KONU
HJÁLPAÐ
UM BORÐ
Varðskipið
Týr verður
áfram við
björgunar-
störf á
næstunni.
MYND/LHG
Varðskipið Týr sinnti björgunaraðgerðum djúpt norður af Líbíu og bjargaði hundruðum flóttamanna:
Flóttamönnum bjargað við strendur Líbíu
LÖGREGLUMÁL Kona, sem grun-
uð er um að hafa banað sambýlis-
manni sínum á heimili þeirra við
Skúlaskeið í Hafnarfirði á laugar-
dag, var í Héraðsdómi Reykjaness
í gær úrskurðuð í vikulangt gæslu-
varðhald.
Talið er að banamein mannsins
hafi verið stungusár, en lögregl-
unni barst tilkynning um manns-
lát í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í
gegnum neyðarlínuna, 112, rétt
fyrir klukkan þrjú á laugardag.
Þegar lögreglan kom á vettvang
stuttu síðar voru þar fyrir hin
grunaða, sem er pólskur ríkis-
borgari fædd 1959, og hinn látni,
sambýlismaður hennar, einnig
pólskur ríkisborgari fæddur 1974.
Maðurinn var með eitt stungusár
vinstra megin á brjóstholi og var
úrskurðaður látinn á vettvangi.
Sjónarvottur sagði Fréttablaðinu
í gærkvöldi að konan hefði verið
leidd út í járnum um tveimur
tímum eftir að lögregla og sjúkra-
bílar komu á vettvang.
Ekki hafa fengist upplýsing-
ar um hvers konar eggvopni var
beitt við verknaðinn, hnífi, skær-
um eða öðru. Að sögn Kristjáns
Inga Kristjánssonar, aðstoðaryfir-
lögregluþjóns hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu sem stýr-
ir rannsókninni, hefur lögregl-
an ekki þurft að hafa afskipti af
þessu fólki áður.
Ekki liggur fyrir hvort þau
hjúin hafi verið í óreglu en rann-
sókn málsins er á frumstigi.
Tæknideild lögreglunnar var við
rannsóknir á vettvangi í allan
gærdag.
Þá sagðist Kristján Ingi, í sam-
tali við fréttastofu, ekki geta tjáð
sig um hvort ætlað banavopn hefði
fundist. Eins kom fram í máli hans
að dánarorsök mannsins yrði ekki
endanlega staðfest fyrr en að lok-
inni krufningu.
Sömuleiðis vill Kristján Ingi
ekki gefa upp hvort konan hafi
verið undir áhrifum áfengis eða
fíkniefna á verknaðarstundu, en
tekin voru blóðsýni úr henni eftir
handtöku. Hún var yfirheyrð á
lögreglustöðinni á Hverfisgötu
fram eftir kvöldi á laugardag og
í gær. Gæsluvarðhaldsúrskurð-
ur Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
konunni rennur út 23. febrúar,
en hún gæti átt yfir höfði sér allt
að sextán ára fangelsi verði hún
ákærð og fundin sek um mann-
dráp af ásetningi.
Þetta er fyrsta manndrápsmál-
ið hér landi á þessu ári. Eitt slíkt
mál kom upp í fyrra. Þá var ungur
maður handtekinn eftir að eigin-
kona hans fannst látin á heim-
ili þeirra í Stelkshólum. Hann er
grunaður um að hafa þrengt að
öndunarvegi hennar þannig að
hún hlaut bana af. Ákæra hefur
enn ekki verið gefin út í því máli.
andri@frettabladid.is / thorbjorn@frettabladid.is
LEIDD FYRIR DÓMARA Kona sem grunuð er um að hafa orðið sambýlismanni sínum að bana um helgina var færð fyrir dómara
við Héraðsdóm Reykjaness klukkan þrjú í gærdag þar sem kveðinn var upp yfir henni gæsluvarðhaldsúrskurður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kona á sextugsaldri í gæslu-
varðhaldi fram yfir helgi
Lögregla hefur hvorki haft áður afskipti af konu sem grunuð er um að hafa banað sambýlismanni sínum með egg-
vopni um helgina, né manninum sem ráðinn var bani. Konan var á staðnum þegar lögregla mætti á laugardag.