Fréttablaðið - 18.10.2016, Side 2

Fréttablaðið - 18.10.2016, Side 2
Veður Vestanátt með skúrum í dag, en léttir til SA-lands. Hiti 5 til 10 stig, hlýjast á SA- landi. sjá síðu 18 Birta í skammdeginu „Ég er bara með ljós í gluggunum og aðeins úti á palli, set þau til að hafa birtu,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir en skrautlegt hús hennar í Flétturima í Grafarvogi vekur talsverða athygli. Ljósaseríur prýða alla glugga. Sjálf lítur Hjördís ekki á þær sem jólaseríur sem hún hlakkar til að setja upp síðar. „Þegar nær dregur desember tek ég hvítu seríurnar úr gluggunum og set rauðu jólaseríurnar í staðinn,“ segir Hjördís. Fréttablaðið/Eyþór mynd sem þú mátt ekki missa af - v a r i e t y- E n t e r t a i n m e n t w e e k l y “emily blunt gives rachel multiple dimensions” “superb job” “emily blunt is perfect” “solid thriller” “the girl on the train is sexy and brutal” “vivid performances from the cast” NOREGuR Af 620 sem útskrifuðust frá lögregluháskólanum í Noregi í ár höfðu aðeins 59,5 prósent fengið starf hjá lögreglunni fyrir lok júni. Inni í tölunum eru sumarafleysingar og ráðning til bráðabirgða að því er norska ríkisútvarpið segir. Af þeim sem stóðust prófið 2015 var 95,1 prósent starfandi innan lög- reglunnar í júní í ár. Dæmi eru um að nýútskrifaður lögreglumaður hafi boðist til að vinna launalaust. Ekki er ráðið í stað lögreglu- manna sem hætta. – ibs Atvinnuleysi hjá lögregluþjónum Hundruð norskra lögreglumanna eru án vinnu. NOrDiCPHOtOS/aFP samfélaG „Við erum að sjá mjög mörg tilvik um að vændi sé gert út frá leiguíbúðum, til dæmis á vegum Airbnb, hér á landi,“ segir Snorri Birgisson, rannsóknarlögreglu- maður hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Í samtali við Fréttablaðið lýsti leigusali því hvernig það er að tak- ast á við það þegar upp kemst um að vændi hafi verið stundað í íbúð hans. Tvær konur höfðu tekið íbúð- ina á leigu og auglýst sig á vændis- kaupasíðu á netinu. Vændiskaup- endum var vísað í íbúðina og þar fór vændisstarfsemin fram. Þar sem konurnar höfðu ekki gerst brotlegar við lög var ekki hægt að kveðja lög- regluna á vettvang. Leigusalinn taldi einfaldast að láta leigutímann renna út og vera frekar á varðbergi varðandi hverjum hann leigði íbúðina í framtíðinni. Snorri Birgisson segir að lítið sé um að nágrannar og húseigendur tilkynni til lögreglu grun um vændi. Aðallega sé um að ræða erlenda gesti sem stoppi hér á landi í fimm til tíu dag og ferðist svo áfram um Norðurlöndin. Gríðarlega erfitt er að ná til þessara einstaklinga en þeir vilja almennt ekki ræða við lögregluna né veita henni nokkrar upplýsingar enda eru þeir í mjög viðkvæmri stöðu. „Fólk er náttúrulega ekki alltaf meðvitað um í hvaða tilgangi fólk kemur hingað til lands eða áttar sig ekki á að vændi kunni að eiga sér stað,“ segir Snorri Að sögn Snorra Melax, tals- manns Samtaka um skammtíma- leigu á heimilum, hafa engin dæmi um vændi í leiguhúsnæði komið á þeirra borð. „Við viljum frekara samstarf við lögregluna, hafi þetta komið upp í skammtímaleiguhúsnæði, og hvernig hjálpa megi leigusölum að forðast þetta,“ segir Snorri. Á síðustu árum hefur Snorri Birgisson stýrt verkefni undir hand- leiðslu innanríkisráðuneytisins. Verkefnið er fræðsluátak sem búið er að skila töluverðri vitundar- vakningu um mansal og vændi. Það er unnið í samráði við velferðar- ráðuneytið, Starfsgreinasamband Íslands og mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Alls hafa 60 fundir verið haldnir og rúmlega tvö þúsund manns sótt þá. thorgeirh@frettabladid.is Eigendur Airbnb-íbúða kvarta undan vændi Leigusali lýsir erfiðri reynslu af vændisstarfsemi í íbúð hans. Mikið um að vændi sé auglýst í miðborg Reykjavíkur á netinu. Sjaldgæft er að þeir sem selja sig leiti til lögreglu eða veiti upplýsingar. Leigusalar vilja meira samstarfi við lögregluna. ✿ skráðar airbnb-íbúðir í Reykjavík samkvæmt Airdna í september 2015 Virkar Airbnb-íbúðir Skráð leyfi í öllum flokkum Fólk er náttúrulega ekki alltaf meðvitað um í hvaða tilgangi fólk kemur hingað til lands. Snorri Birgisson, rannsóknar- lögreglumaður Hvað er Airbnb? Airbnb er vefsíða þar sem leigja má gistingu. Hún var stofnuð árið 2008 en höfuðstöðvar fyrir- tækisins eru í San Francisco í Kali- forníu. Á síðunni eru yfir 800.000 gistiheimili og íbúðir skráð í 33.000 borgum í 192 löndum. HEimilD: WikiPEDia stjóRNmál Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sendir Pírötum þau skilaboð að ef þeir vilji samræður stjórnarandstöðu um nýja ríkis- stjórn sé eðlilegast að allir flokk- arnir hittist í sameiningu. Píratar ætluðu sér að ræða við hvern flokk í einu á tæplega klukkustundar- löngum fundum á morgun. „Í sjálfu sér er ég jákvæð í garð hugmyndarinnar um að flokkar ræði saman fyrir kosningar um mögulegt samstarf að loknum kosningum,“ segir Katrín. „Hins vegar mun ég óska eftir því við Pírata að við hittumst öll í samein- ingu og förum yfir málin í stað þess að flokkarnir mæti til Pírata hver í sínu lagi.“ Viðreisn, Bjartri framtíð, Sam- fylkingu og VG er boðið til fundar til Pírata á morgun og mun fyrsti flokkurinn mæta til Pírata klukkan tíu og svo koll af kolli. Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, segir flokkinn auðvitað mæta til samtals. Hins vegar sé þetta nokkuð undarleg röðun. „Píratar eru að missa fylgi í skoð- anakönnunum og ætla nú að setja sig í forystusæti og stýra samtalinu á þennan hátt. Ég hefði talið eðli- legra að við mættum öll til samtals á sama tímanum og gætum ráðið ráðum okkar," segir Björt. – sa Fundur verði sameiginlegur katrín Jakobsdóttir, formaður VG. Fréttablaðið/ErNir björt ólafs- dóttir, þing- kona bjartrar framtíðar. 1 8 . O k t ó b E R 2 0 1 6 Þ R I ð j u D a G u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t a b l a ð I ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.