Fréttablaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 14
dýrasta lið NBa-söguNNar
Eftir að NBa-meistararnir í
Cleveland Cavaliers gengu frá
nýjum fjögurra ára samningi við
J.r. smith um helgina er ljóst
að byrjunarlið félagsins er það
dýrasta í sögu NBa-deildarinnar.
leikmennirnir fimm sem munu,
ef allt er eðlilegt, skipa byrjunar-
lið meistaranna fá samtals 100
milljónir dollara í tekjur þetta
tímabilið.
Þetta eru þeir leBron James, Kyrie
irving, Kevin love, tristan thomp-
son og smith.
launaþakið í NBa-deildinni er 94
milljónir dollara þetta tímabilið
en það er fyrir allan leikmanna-
hópinn. öllum liðum er heimilt að
fara yfir launaþakið en greiða fyrir
það svokallaðan lúxusskatt.
Enn er óljóst hvað eigendur
Cavaliers munu greiða í laun og
lúxusskatt þetta tímabilið en lík-
legt er að það verði ekki undir 160
milljónum dollara.
dan gilbert, sem keypti félagið
fyrir áratug, hefur ávallt sagt að
hann ætli að gera allt sem hann
geti til að færa borginni meistara-
titil og það gerði hann á síðustu
leiktíð, er hann borgaði samtals 54
milljónir dollara í lúxusskatt.
til samanburðar má nefna að
byrjunarliðið hjá Cleveland kostar
meira en allur leikmannahópur
átján liða í NBa-deildinni.
Í dag
18.15 Meistaramessan Sport
18.40 Leverkusen - Tottenh. Sport 2
18.40 Lyon - Juventus Sport 3
18.40 Leicester - FCK Sport 4
18.40 Real Madrid - Legia Sport 5
20.45 Meistaramörkin Sport
glódís og sara mætast
íslensku landsliðskonurnar glódís
Perla Viggósdóttir og sara Björk
gunnarsdóttir mætast í 16 liða
úrslitum meistaradeildar Evrópu
í fótbolta, en dregið var í höfuð-
stöðvum uEFa í Nyon í gær.
Wolfsburg, lið söru Bjarkar, er eitt
það besta í Evrópu en það tapaði
úrslitaleiknum í maí fyrr á þessu
ári. Eskilstuna, sem glódís leikur
með, hafnaði í öðru sæti á eftir
rosengård í svíþjóð á síðustu leik-
tíð en sara spilaði þá með sænska
liðinu.
svíþjóðarmeistarar rosengård,
sem slógu Breiðablik úr keppni í
32 liða úrslitum, mæta slavia Prag
frá tékklandi.
leikirnir fara fram 9.-17. nóvem-
ber.
Drátturinn í 16 liða
úrslitum:
Paris saint-
germain - BiiK
Kazygurt
Barcelona -
twente
slavia Prag -
rosengård
manc-
hester City
- Bröndby
Brescia - Fortuna
Hjörring
lyon - Zürich
Eskilstuna - Wolfs-
burg
rossijanka - Bayern
münchen
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r14 s p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
Markaþurrð í uppgjöri gömlu stórveldanna á Anfield í gær
Það var hart barist á Anfield í gær og kom það nokkuð niður á gæðum leiksins sem var ekki sérstaklega skemmtilegur. Marouane Fellaini og Sadio
Mane bítast hér um boltann. Snilldartilþrif David de Gea í marki Man. Utd. stóðu upp úr i leiknum. FRéTTabLaðið/geTTy
sport
FótboLtI Fréttablaðið er búið að
reikna út áhorfendafjöldann í Pepsí-
deild karla í sumar út frá opinberum
tölum á leikskýrslum á vef Knatt-
spyrnusambands íslands en í heild-
ina mættu 127.740 áhorfendur á leik-
ina 132. Þetta er fækkun um 18.758
frá því á síðasta sumri en að meðal-
tali mættu 968 áhorfendur á hvern
leik í Pepsídeild karla í sumar.
Þetta er í annað sinn á síðustu
fjórtán árum og í annað sinn í tólf
liða deild sem áhorfendur eru
færri en 1.000 að meðaltali á leik.
mætingin á leiki í Pepsídeild karla
hefur farið jafnt og þétt minnkandi
undanfarin ár eins og sést.
Frá stofnun tólf liða deildar árið
2008 hefur mætingin minnkað næst-
um því ár frá ári fyrir utan til dæmis á
síðustu leiktíð þegar aukningin var
gífurleg. sumarið 2014 mættu aðeins
923 að meðaltali á hvern leik sem
er versta mæting í tólf liða deild og
versta mæting í heildina frá árinu
2000 þegar 899 mættu að meðaltali
á hvern leik í tíu liða deild.
mætingin var mjög góð í fyrra en
alls mættu 1.107 að meðtali á hvern
leik. Hrunið var mikið í sumar eins
og fram hefur komið. Bæði árið 2014
og aftur í ár var stórmót að trufla
deildina en truflunin hefur aldrei
verið jafnmikil og núna þegar hlé
þurfti að gera á Pepsídeildinni
vegna þátttöku íslands.
Versló-þynnka, ekki eM-þynnka
mikið var rætt og ritað í sumar um
að Evrópumótið hafði slæm áhrif á
deildina en íslandsmótið dofnaði
allsvakalega þegar strákarnir okkar
voru að heilla heiminn í Frakk-
landi. talað var um Em-þynnku en
mætingin var samt ekkert svo slæm
strax eftir Evrópumótið ef litið er á
mætingu á leikina eftir verslunar-
mannahelgina. Hún var langverst á
meðan ísland var að spila.
Fréttablaðið skipti mætingunni í
sumar upp í fjóra flokka; Fyrir Em, á
meðan á Em stóð, eftir Em og fram
Mætingin á
niðurleið
Í annað sinn á þrettán árum var meðalmæting á
leiki í Pepsídeildinni undir 1.000. Mikið
fall á meðan á EM stóð. Mætingin minnkaði
að verslunarmannahelgi og eftir
verslunarmannahelgina. sé þetta
sett upp svona sést að áhuginn var
mikill á deildinni og fór hún af stað
með látum. alls mættu 1.235 á leik-
ina 42 sem voru spilaðir fyrir Em.
Fallið var gríðarlegt ef litið er
á leikina tólf sem spilaðir voru á
meðan á Em stóð en aðeins mættu
516 að meðaltali á þá leiki. Em-
þynnkan var svo ekkert sérstaklega
mikil en deildin náði sér ágætlega í
gang því 919 mættu að meðaltali á
leikina 18 sem voru spilaðir eftir Em
og fram að verslunarmannahelgi.
Það var eftir verslunarmanna-
helgina sem mótið dofnaði hvað
mest. Fótboltaáhugamenn virtust
ekki ná sér eftir hana og mættu
aðeins 886 að meðaltali á leikina
60 sem voru spilaðir það sem eftir
var af mótinu þrátt fyrir að gríðarleg
spenna væri bæði um Evrópusæti og
í fallbaráttunni en allt þetta réðst í
lokaumferðinni.
Árbæingar traustir
íslandsmeistarar FH voru með bestu
mætinguna í sumar en alls mætti
1.541 að meðaltali á hvern leik
hjá Hafnarfjarðarliðinu sem varð
meistari annað árið í röð og í átt-
unda sinn á síðustu þrettán árum.
Kr var í öðru sæti með 1.163 áhorf-
endur að meðaltali á leik en næst
komu stjarnan og Breiðablik.
Þrátt fyrir að vera í fallbaráttu frá
fyrstu umferð til þeirrar síðustu og
falla á endanum í fyrsta sinn eftir
16 ára samfellda veru í efstu deild
voru stuðningsmenn Fylkis traustir
sínum mönnum og var Fylkir eitt af
fimm liðum með yfir 1.000 áhorf-
endur að meðaltali í leik.
Eyjamenn (651) og ólafsvíkingar
(501) draga meðaltalið mikið niður
en neðsta reykjavíkurliðið var
Þróttur þar sem 740 manns mættu
að meðaltali á leikina ellefu á Þrótt-
arvelli. skaginn var efstur lands-
byggðarliðanna með 820 áhorfend-
ur að meðaltali á leik. tomas@365.is
1250
1100
1200
1050
1150
1000
950
'08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16
✿ Aðsókn í 12 liða deild frá upphafi
✿ Áhorfendafjöldi í pepsídeild karla 2016
l Meðalfjöldi áhorfenda á leik l Fjöldi leikja
✿ Fjöldi áhorfenda eftir liðum
1 FH 1541
2 KR 1163
3 Stjarnan 1115
4 Breiðablik 1112
5 Fylkir 1098
6 Fjölnir 968
7 Víkingur R 967
8 Valur 938
9 ÍA 820
10 Þróttur 740
11 ÍBV 651
12 Víkingur Ó 501
Fyrir eM eM eftir eM Ágúst og sept.
1235
42
516
12
919
18
886
60
Liverpool - Man. Utd 0-0
efri
Man. City 19
Arsenal 19
Tottenham 18
Liverpool 17
Chelsea 16
Neðri
Hull City 7
Middlesbr. 6
Stoke 6
Swansea 4
Sunderland 2
enska úrvalsdeildin í fótbolta