Fréttablaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 8
✿ Orrustan um Mosúl hefst Hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki, eða Daish, hafa haft borgina Mosúl á sínu valdi síðan í júní 2014. Íraski stjórnarherinn, hersveitir Kúrda og fjölþjóðalið undir stjórn Bandaríkjanna leggja nú allt kapp á að hrekja Daish frá Mosúl. Við berum út áskoranir með markpósti til þeirra sem eru til í nánast hvað sem er VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA 16 -2 68 8 – H VÍ TA H Ú SI Ð /S ÍA Morgunverðarfundur um mataraðstoð föstudaginn 21.10. kl. 8:30 á Grand Hótel. Uppl. og skráning á Facebooksíðu EAPN á Íslandi. 4.300 EUROPEAN ANTI POVERTY NETVORK EAPN ÍSLAND European Anti Poverty Network, Ísland PEOPLE EXPERIENCING POVERTY PEPP ÍSLAND einstaklingar búa við sárafátækt á Íslandi! Írak „Frá okkar sjónarhóli séð er vernd almennra borgara það mikil- vægasta í þessari hernaðaraðgerð,“ sagði Filippo Grandi, flóttamanna- fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, á blaðamannafundi í Bagdad í gær þegar stórsókn hófst gegn víga- sveitum Íslamska ríkisins í Mosúl í fyrrinótt. Íraski stjórnarherinn, Kúrdaher- inn Peshmerga, tyrkneski stjórnar- herinn og hersveitir Kúrdasamtak- anna PKK taka þar höndum saman ásamt fjölþjóðaliði undir stjórn Bandaríkjamanna og segjast vissir um að sigur vinnist á næstu vikum eða mánuðum. Íslamska ríkið, eða Daish-sam- tökin, náðu Mosúl á sitt vald í júní árið 2014 og hefur haldið þar uppi ógnarstjórn, rétt eins og víðar í Írak og Sýrlandi þar sem samtökin hafa náð nokkuð stóru svæði á sitt vald. Hjálparsamtök vara við því að almenningur í borginni og næsta nágrenni verði í stórhættu. Þar býr um ein og hálf milljón manna. Búast megi við að allt að 700 þúsund þeirra þurfi að flýja að heiman og leita á náðir hjálparstofnana. Nauðsyn- legt sé að vera vel undir það búinn, ekki síst vegna þess að nú er vetur að ganga í garð. Nú þegar hafa um 3,3 milljónir manna hrakist frá heimilum sínum í Írak vegna borgarastyrjaldarinnar þar. Þetta er næstum því tíundi hver íbúi landsins. Þúsundir Kúrda í Peshmerga-her- sveitunum hófu sóknina í gær norð- austan við Mosúl. Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, skýrði frá þessu í sjónvarps- ávarpi til þjóðarinnar. Hann sagðist bjartsýnn. „Íraski fáninn verður dreginn að húni í miðri Mosúlborg og í hverju einasta þorpi og hverju horni mjög fljótlega,“ sagði hann. Ashton B. Carter, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði sóknina marka mikilvæg tímamót í barátt- unni gegn Íslamska ríkinu. Stefnt er að því að innrásarliðið umkringi borgina fyrst, bæði til að einangra hana og til að koma í veg fyrir að liðsmönnum Íslamska ríkis- ins takist að flýja brott. Að því búnu verði haldið inn í borgina. gudsteinn@frettabladid.is Ætla að hrekja Íslamska ríkið frá Mosúl Hjálparsamtök óttast að flóttafólk frá Mosúl muni skipta hundruðum þúsunda. Hernaðurinn stefni meira en milljón manns í hættu. Kúrdar komnir í skotgrafirnar skammt frá bænum Besheqa. FréttaBlaðið/EPa l Íraski stjórnarherinn l Hersveitir sjía-múslima l Tyrkneski stjórnarherinn l Kúrdaher PKK-samtakanna l Fjölþjóðaherlið undir stjórn Bandaríkjanna Saman gegn Daish 1 8 . O k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.