Fréttablaðið - 18.10.2016, Qupperneq 8
✿ Orrustan um Mosúl hefst
Hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki, eða Daish, hafa haft borgina Mosúl á sínu
valdi síðan í júní 2014. Íraski stjórnarherinn, hersveitir Kúrda og fjölþjóðalið
undir stjórn Bandaríkjanna leggja nú allt kapp á að hrekja Daish frá Mosúl.
Við berum út áskoranir með markpósti til þeirra sem eru til í nánast hvað sem er
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
16
-2
68
8
–
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
Morgunverðarfundur um mataraðstoð
föstudaginn 21.10. kl. 8:30 á Grand Hótel.
Uppl. og skráning á Facebooksíðu EAPN á Íslandi.
4.300
EUROPEAN ANTI
POVERTY NETVORK
EAPN ÍSLAND
European Anti Poverty Network, Ísland
PEOPLE EXPERIENCING
POVERTY
PEPP ÍSLAND
einstaklingar búa við
sárafátækt á Íslandi!
Írak „Frá okkar sjónarhóli séð er
vernd almennra borgara það mikil-
vægasta í þessari hernaðaraðgerð,“
sagði Filippo Grandi, flóttamanna-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, á
blaðamannafundi í Bagdad í gær
þegar stórsókn hófst gegn víga-
sveitum Íslamska ríkisins í Mosúl í
fyrrinótt.
Íraski stjórnarherinn, Kúrdaher-
inn Peshmerga, tyrkneski stjórnar-
herinn og hersveitir Kúrdasamtak-
anna PKK taka þar höndum saman
ásamt fjölþjóðaliði undir stjórn
Bandaríkjamanna og segjast vissir
um að sigur vinnist á næstu vikum
eða mánuðum.
Íslamska ríkið, eða Daish-sam-
tökin, náðu Mosúl á sitt vald í júní
árið 2014 og hefur haldið þar uppi
ógnarstjórn, rétt eins og víðar í Írak
og Sýrlandi þar sem samtökin hafa
náð nokkuð stóru svæði á sitt vald.
Hjálparsamtök vara við því að
almenningur í borginni og næsta
nágrenni verði í stórhættu. Þar býr
um ein og hálf milljón manna. Búast
megi við að allt að 700 þúsund þeirra
þurfi að flýja að heiman og leita á
náðir hjálparstofnana. Nauðsyn-
legt sé að vera vel undir það búinn,
ekki síst vegna þess að nú er vetur að
ganga í garð.
Nú þegar hafa um 3,3 milljónir
manna hrakist frá heimilum sínum
í Írak vegna borgarastyrjaldarinnar
þar. Þetta er næstum því tíundi hver
íbúi landsins.
Þúsundir Kúrda í Peshmerga-her-
sveitunum hófu sóknina í gær norð-
austan við Mosúl.
Haider al-Abadi, forsætisráðherra
Íraks, skýrði frá þessu í sjónvarps-
ávarpi til þjóðarinnar. Hann sagðist
bjartsýnn.
„Íraski fáninn verður dreginn að
húni í miðri Mosúlborg og í hverju
einasta þorpi og hverju horni mjög
fljótlega,“ sagði hann.
Ashton B. Carter, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði sóknina
marka mikilvæg tímamót í barátt-
unni gegn Íslamska ríkinu.
Stefnt er að því að innrásarliðið
umkringi borgina fyrst, bæði til að
einangra hana og til að koma í veg
fyrir að liðsmönnum Íslamska ríkis-
ins takist að flýja brott. Að því búnu
verði haldið inn í borgina.
gudsteinn@frettabladid.is
Ætla að hrekja Íslamska ríkið frá Mosúl
Hjálparsamtök óttast að flóttafólk frá Mosúl muni skipta hundruðum þúsunda. Hernaðurinn stefni meira en milljón manns í hættu.
Kúrdar komnir í skotgrafirnar skammt frá bænum Besheqa. FréttaBlaðið/EPa
l Íraski stjórnarherinn
l Hersveitir sjía-múslima
l Tyrkneski stjórnarherinn
l Kúrdaher PKK-samtakanna
l Fjölþjóðaherlið undir stjórn
Bandaríkjanna
Saman gegn Daish
1 8 . O k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð