Fréttablaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 6
BROT TFAR ARSP JALD FRÁ: OLÍS TIL: Ú TLAN DA FLUG : OL3 26 HLIÐ : 4 22A 22B SÆTI Fyrir þig o g vin þinn – ef þ ú vin nur 100.0 00 V ildarp unkta Icela ndair Hvar er þessi mynd tekin? Taktu þátt í myndaleik á olis.is. Þú gætir verið á leið með vini út í heim fyrir Vildarpunkta Icelandair. vinur við veginn Indónesísk kona krýpur fyrir framan Baiturrahman-moskuna í Banda Aceh meðan böðulinn hefur pískinn til höggs. Sjö pörum var gert að þola á bilinu tíu til 25 högg fyrir að eiga í sambandi utan hjónabands. Aceh-hérað er eina hérað Indónesíu þar sem sjaría lög hafa verið tekin upp. Hýðingum á almannafæri hefur farið fjölgandi í héraðinu á árinu en það er ein tegund refsinga sem talað er um í lagabókstafnum. Fréttablaðið/EPa Húsnæði á gamla varnarsvæðinu er keypt upp í stórum stíl vegna stækkunar Kefla- víkurflugvallar. Fréttablaðið/HEiða sveitarstjórnarmál Flugþjónustu- fyrirtækin Airport Associates og IGS Ground Services (IGS) hafa á þessu ári keypt fimm fjölbýlishús á Ásbrú, fyrrum svæði bandaríska varnar- liðsins við Keflavíkurflugvöll, til að leysa húsnæðismál starfsfólks síns. Fjölgun starfsfólks hjá félögunum báðum á næstu árum verður leyst með því að fá starfskrafta erlendis frá – sem er að sögn vandalaust. Að mæta húsnæðisþörf þeirra þúsunda starfsmanna sem hingað munu koma til starfa á Keflavíkurflugvelli er hins vegar flóknara viðfangsefni. Eins og Fréttablaðið sagði frá fyrir helgi er því spáð að fjölgun starfa á Keflavíkurflugvelli næstu tvo áratug- ina jafngildi að meðaltali einu álveri árlega – eða rúmlega 400 manns. Rætist þessi spá verður það gríðar- lega flókið verkefni fyrir sveitarfélög- in á Suðurnesjum, og landsmenn alla, að mæta þeirri fólksfjölgun sem um ræðir, sem er án fordæma. Sigþór Kristinn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Airport Associates, telur verkefnið alls ekki svo stórt að það sé óviðráðanlegt. Þau störf sem verða til verði mönnuð af útlending- um því ekki sé lengur hægt að reiða sig á íslenskt vinnuafl; það sé einfald- lega ekki lengur til staðar á svæðinu. „Glíman verður að leysa húsnæðis- málin,“ segir Sigþór en fyrirtæki hans hefur keypt tvö fjölbýlishús á Ásbrú á þessu ári fyrir starfsfólk sitt. „Ef við hefðum ekki keypt húsnæðið á Ásbrú þá hefðum við ekki komið okkar fólki í leiguhúsnæði og því sjálfhætt.“ Sigþór vísar til frétta um að verið sé að ganga frá stórri eignasölu á Ásbrú – þar sem ónefnt félag hyggst kaupa af ríkinu flestar þær fast- eignir sem þar eru til sölu. Frétta- tíminn greindi frá sölunni nýlega. Sigþór lítur vonaraugum til þessara áforma og þar verði hægt að fá hús- næði fyrir starfsmenn fyrirtækisins á næstu árum. Húsnæði sé í raun ekki í boði annars staðar á Suðurnesjum en á gamla varnarsvæðinu fyrir þá fjölgun sem þegar er orðin og fram undan sé, segir Sigþór. Fjölgun starfa á Keflavíkurflug- velli hjá flugþjónustufyrirtækinu IGS verður einnig leyst með erlendu vinnuafli. Engin vandkvæði eru á því að fá hæft starfsfólk, til dæmis frá Póllandi, staðfestir Gunnar S. Olsen, framkvæmdastjóri IGS Ground Services (IGS), en 150 manns komu þaðan til vinnu í ár. Félagið hefur keypt þrjú fjölbýlishús, sem hýsa 222 starfsmenn sem leysir húsnæðis- vanda IGS næstu tvö til þrjú árin. „Að leita út fyrir landsteinana er eina lausnin sem við sjáum, það er mjög erfitt að fá vinnuafl héðan af Suðurnesjunum,“ segir Gunnar. Námsfólk leysir ekki vanda fyrir- tækjanna lengur því ferðamönnum hefur fjölgað mikið fyrir og eftir hinn hefðbundna annatíma yfir sumarið. „Húsnæði er annað vandamál á svæðinu. Það var ekki um annað að ræða en að kaupa húsnæði til að tryggja að þetta erlenda vinnu- afl okkar hefði einhvers staðar aðstöðu.“ svavar@frettabladid.is Kaupa blokkir undir erlenda starfsmenn Tvö fyrirtæki sem sinna flugþjónustu á Keflavíkurflugvelli hafa keypt samtals fimm fjölbýlishús fyrir starfsmenn. Öll eru þau á Ásbrú þar sem húsnæði er eftirsótt. Leiguhúsnæði er ekki að hafa á Suðurnesjum. Fjölgun starfsmanna verður leyst með erlendu vinnuafli. Það var ekki um annað að ræða en að kaupa húsnæði til að tryggja að þetta erlenda vinnuafl okkar hefði einhvers staðar að- stöðu. Gunnar S. Olsen, framkvæmdastjóri IGS Refsað fyrir hórlífi Bandaríkin Ráðgjafarfyrirtækið Democracy Partners borgaði fólki fyrir að mæta á kosningafundi Donalds Trump og valda þar upp- þoti og ofbeldi. Fyrirtækið vinnur með forsetaframboði Hillary Clin- ton og á í daglegum samskiptum við hennar teymi. Í myndbandi, sem tekið var upp með falinni myndavél og hópur blaðamanna undir nafninu Project Veritas birti í gær, lýsir starfsmaður Democracy Partners, Scott Foval, því meðal annars að hann hafi borgað fólki sem á við geðræn vandamál að stríða fyrir athæfið. Þá sjást þeir Foval og stofnandi Democracy Partners, Bob Creamer, útskýra hvernig fyrirtækið hefur milligöngu um samskipti á milli framboðs Clinton og Priorities USA, svokallaðs Super PAC, óháðs kosn- ingasjóðs sem styður Clinton. Slík samskipti eru ólögleg. Sjóðirnir mega þiggja mun hærri fjárstyrki en opin- ber forsetaframboð. Peningarnir fara mestmegnis í auglýsingar. – þea Stuðningshópur Clinton stærir sig af uppþotum Öryggisverðir stöðva mótmælanda á kosningafundi Donalds trump í Chi- cago. NorDiCPHotos/aFP 1 8 . o k t ó B e r 2 0 1 6 Þ r i Ð j U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.