Fréttablaðið - 18.10.2016, Page 13

Fréttablaðið - 18.10.2016, Page 13
Það er jákvætt að loks sé verið að hækka þakið á greiðslum úr fæðing- arorlofssjóði svo einhverju nemur, en sú aðferð að hækka greiðslur á einu bretti um 130 þúsund og miða þá breytingu við ákveðinn dag er vægast sagt furðuleg. Það hlýtur alltaf að vera meginmarkmið stjórnvalda að tryggja eins og kostur er jafnræði meðal þegna landsins. Það er ein forsenda þess að þokkaleg sátt ríki í samfélaginu. Þess vegna er þessi ráðstöfun svo óskiljanleg. Hvaða sanngirni er í því að foreldri barns sem fæðist 15. október fái mörg hundruð þúsund hærri greiðslur úr sameiginlegum sjóðum en ef barnið hefði fæðst degi fyrr? Ég hef einhvers staðar séð því svarað að svona hafi þetta alltaf verið gert en það er auð- vitað ekkert svar. Aðferðin verður síst betri þótt henni hafi áður verið beitt. Ég gef mér að ríkisstjórnin hafi á upphafsmetrum sínum gert áætlun um það hve- nær og hversu mikið ætti að hækka greiðslur úr fæðingar- orlofssjóði á kjörtímabilinu þótt ekkert sé fjallað um það í stjórnarsáttmálanum. Svona ákvörðun er auðvitað ekki tekin á hlaupum og ég ímynda mér að það sé auð- vitað bara helber tilviljun að þessi mikla hækkun komi til tveimur vikum fyrir kosn- ingar. Þess vegna væri gott að þeir sem bera ábyrgð á málinu myndu útskýra hvers vegna greiðslur hafi ekki verið hækkaðar jafnt og þétt yfir kjörtímabilið? Það væri að mínu mati eðlilegri leið og sanngjarnari. Fólk á aldrei að fá á tilfinninguna að ákvarð- anir stjórnvalda mismuni fólki á tilviljanakenndan hátt. Það er þó tilfellið hér því miður. Foreldrum mismunað Brynhildur Pétursdóttir þingkona Bjartrar framtíðar Háskólamenntun, vísindi og tækni eru grunnstoðir þekk-ingarsamfélaga. Háskólar leika sannarlega lykilhlutverk í þróun íslensks samfélags með margvíslegum hætti. Háskólamenntun leggur grunn að bættum lífsgæðum fólks, allt frá því að auka atvinnumöguleika þess og tekjur til þess að stuðla að betri and- legri og líkamlegri heilsu. Samfélag og atvinnulíf tekur hröðum breytingum, m.a. vegna örrar tækniþróunar sem kallar á sífellt meiri sérþekkingu og vel menntað vinnuafl. Háskólar þurfa að vaxa og þróast til að mæta þessum þörfum samfélagsins og stuðla að fram- sæknu atvinnulífi. Háskólarannsóknir hafa bæði sam- félagslegt og hagrænt gildi. Menntun, rannsóknir og nýsköpun auðga líf okkar og stuðla að farsælla samfélagi. Ekki verður tekist á við flóknar og brýnar áskoranir samtímans, svo sem loftslagsbreytingar eða lífsstílssjúk- dóma, án aðkomu háskólanna. Þá er nýsköpun, sem er einn helsti vaxtar- broddur samfélaga, órjúfanlega sam- ofin rannsóknum og starfi háskólanna. Fjárfesting í vísindum og tækni skilar sér í auknum langtíma hagvexti þjóða. Tækifærin eru til staðar Framsæknar þjóðir gera sér vel grein fyrir mikilvægu hlutverki vísinda, tækni og háskólamenntunar. Fjárfesting í þekkingarkerfi háskólanna er grunnstef í framtíðarsýn þeirra. Bandaríkin hafa verið leiðandi í fjárfestingu hins opin- bera á sviði vísinda og tækni. Nýlega hafa önnur ríki sótt markvisst á, svo sem Japan, Kína og Ástralía. Á sama hátt stefna ríki Evrópusambandsins á að auka framlög til vísinda og tækni. Markmið þessara þjóða er einfalt: að treysta sam- keppnishæfni sína til framtíðar. Þessar þjóðir keppa að því að vera leiðandi í framþróun sem byggist á þekkingu og tækni enda er ljóst að mestu möguleikar á bættum lífskjörum og auknum hag- vexti byggjast á virkjun hugvits, þekk- ingar og tækni. Tækifærin hér á landi eru augljós. Þrátt fyrir bága fjárhagsstöðu hafa háskólar landsins sýnt eftirtektarverðan árangur í rannsóknum. Við eigum vísindamenn sem afla hundraða milljóna króna úr erlendum samkeppnissjóðum á hverju ári. Slíkur árangur skilar Háskóla Íslands um þriðjungi af rekstrartekjum skólans, en árið 2015 voru sértekjur skólans hátt í sex milljarðar króna. Mikilvægi öflugra rannsóknarhópa fyrir uppbyggingu þekkingar í landinu er augljós. Að auki skapa þeir störf og starfsumhverfi fyrir vísindafólk á heimsmælikvarða sem gerir Ísland að eftirsóknarverðu samfélagi. Það ríkir hins vegar hörð samkeppni milli þjóða um færasta fólkið. Ætlar Ísland að sitja eftir? Í ljósi alls þessa er illskiljanlegt að íslensk stjórnvöld hafi ekki sett auk- inn slagkraft í fjármögnun vísinda- og háskólakerfisins. Þrátt fyrir að ákveðin skref hafi verið stigin í rétta átt er óra- langt í land, bæði hvað varðar framlög til háskólakerfisins og nýsköpunar. Í orði hafa verið sett fram metnaðar- full markmið, til dæmis í núgildandi stefnu Vísinda- og tækniráðs, sem ráð- herrar eiga sæti í, og í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en engar efndir er að finna í fjármálaáætlun hins opinbera til næstu fimm ára. Með sama áframhaldi teflum við háskólamenntun og lífsgæðum kom- andi kynslóða í tvísýnu, drögum úr möguleikum vísindafólks okkar til að stunda framúrskarandi rannsóknir og hægjum á nýsköpun hér á landi. Með því að fjárfesta í háskólum, vísindum og nýsköpun til jafns við nágrannaþjóðir okkar fjárfestum við í framtíð þjóðar- innar. Framsæknar þjóðir fjárfesta í þekkingu Steinunn Gestsdóttir aðstoðarrektor kennslumála og þróunar við Há- skóla Íslands Svona ákvörðun er auðvitað ekki tekin á hlaupum og ég ímynda mér að það sé auðvitað bara helber tilviljun að þessi mikla hækkun komi til tveimur vikum fyrir kosningar. Með sama áframhaldi teflum við háskólamenntun og lífs- gæðum komandi kynslóða í tví- sýnu, drögum úr möguleikum vísindafólks okkar til að stunda framúrskarandi rannsóknir og hægjum á nýsköpun hér á landi. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Mitsubishi ASX 4X4 er litla leynivopnið frá Mitsubishi. Hann býr yr miklum styrk og aksturseiginleikum sem njóta sín vel bæði á mölinni og malbikinu. Svo er hann líka rúmgóður og tæknilega vel búinn. Gíraðu þig inn á líð og láttu það leika við þig á nýjum Mitsubishi ASX. Mitsubishi ASX Intense Dísil Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá: 4.990.000 kr. FYRIR HUGSANDI FÓLK MITSUBISHI ASX 4X4 GÍRAÐUR FYRIR LÍFIÐ s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 8 . o k T ó B e R 2 0 1 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.