Fréttablaðið - 18.10.2016, Síða 16
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana.
Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis:
Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349
Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir,
solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr
Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358
Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is,
s. 512 5457 | Jóhann Waage, johann-
waage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur
H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
starri freyr
jónsson
starri@365.is
The Sóley’s boys er ekki heiti á
nýjasta íslenska drengjabandinu
heldur er um að ræða hóp „þrosk-
aðra“ og skemmtilegra karla sem
tóku þátt í Hátíð gullna aldurs-
ins í Slóveníu fyrr í þessum mán-
uði. Umrædd hátíð, sem heitir
Golden Age Gym festival, er hald-
in annað hvert ár og ætluð fólki
sem er komið yfir fimmtugt og
vill skemmta sér saman, dansa og
stunda alls kyns hreyfingu.
Meðlimir hópsins hafa flestir
stundað leikfimi saman um 25-30
ára skeið undir styrkri stjórn Sól-
eyjar Jóhannsdóttur danskenn-
ara. Einn þeirra er Björn Sveins-
son sem kom inn í hópinn fyrir um
tíu árum. „Ég sá auglýsingu í blaði
um baktíma fyrir karla sem inni-
hélt teygjur og þrek. Það var ein-
mitt það sem mig vantaði þá. Hún
er m.a. með öflugar styrktaræf-
ingar fyrir kvið og bak og góðar
þrekæfingar og svo er yfirleitt
endað á góðri slökun.“
Fyrir nokkrum árum frétti einn
hópmeðlima af þessari hátíð og
kynnti fyrir Sóleyju og hinum körl-
unum. „Ekki voru nú allir hrifn-
ir af hugmyndinni en það endaði
þó með því að hluti af hópnum tók
þátt fyrir fjórum árum í Montecat-
ini Terme á Ítalíu sem var einstak-
lega skemmtileg upplifun. Fyrir
síðustu áramót var tekin ákvörð-
un um að taka þátt í hátíðinni í Sló-
veníu og hafist var handa við að
undirbúa atriði til sýningar.“
Makarnir Með
Þema sýningaratriðanna í ár var
Eurovision-söngvakeppnin þann-
ig að lögin sem notuð voru þurftu
að tengjast keppninni á einhvern
hátt. „Fyrir valinu varð sigurlag-
ið frá 2001 sem var framlag Eista.
Atriði okkar var samblanda af
danssporum og leikfimiæfingum.
Óhætt er að segja að það hafi sleg-
ið í gegn en atriðið var valið sem
eitt af þremur „wild card“ atriðum
á sérstakri sýningu sem stjórn há-
tíðarinnar hélt.“
Karlarnir voru þó ekki einir á
sviðinu því makar þeirra voru með
í för. „Sóleyju datt í hug fyrir fjór-
um árum að taka konurnar okkar
með í atriðið. Þar sem þetta gekk
svo vel upp fyrir fjórum árum
var ekki spurning um að gera það
aftur í ár. Og auðvitað voru þess-
ar elskur frábærar skrautfjaðrir í
annars vel heppnað atriði okkar.“
Fram undan eru frekari æfing-
ar undir styrkri stjórn Sóleyjar að
sögn Björns. „Það þarf að halda
okkur í góðu formi, styrkja upp-
handleggi, læri og aðra vöðva.
Svo vonum við nú að þessi blessaði
„six-pack“ fari að láta sjá sig. Svo
er auðvitað stefnt á sjötta mótið
sem haldið verður í Pesaro á Ítal-
íu að tveimur árum liðnum.“
Slógu í gegn
Hópur eldri karla tók þátt í Hátíð gullna aldursins fyrr í mánuðinum og
sló í gegn. Flestir hafa þeir stundað leikfimi saman undanfarin 25 ár.
the sóley’s boys ásamt sóleyju jóhannsdóttur. atriði þeirra var blanda af danssporum og leikfimiæfingum.
björn sveinsson sló í gegn í slóveníu
ásamt félögum sínum. mynd/stefÁn
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Blómapottar Mikið úrval afblómapottum í
öl lum stærðum
og gerðum
TilboðParisarTizkanSKIPHOLTI 29B
20% AFSLÁTTUR
AF YFIRHÖFNUM
NÝ SENDING AF VETRARVÖRUM
YFIRHAFNARDAGAR!
Lægra verð
í Lyfju
lyfja.is
Liðverkir?
9 Inniheldur glucosamin súlfat
9 Duft í skammtapokum
9 Leyst upp í vatni – auðvelt að taka inn
9 Nær bragðalaust – með sætuefnum
9 Einn skammtur á dag
Notkunarsvið: Glucosamin LYFIS er notað til að draga úr einkennum vægrar til meðalsvæsinnar
slitgigtar í hné. Ekki má nota lyfið ef um er að ræða ofnæmi fyrir glucosamini, einhverju öðru
innihaldsefni lyfsins eða fyrir skelfiski, þar sem glucosamin er unnið úr skelfiski og ef um er
að ræða meðfæddan efnaskiptasjúkdóm (fenýlketonmigu). Gæta skal sérstakrar varúðar:
Einstaklingar með sykursýki, astma, alvarlegt lifrar- eða nýrnavandamál, óþol fyrir einhverjum
tegundum sykurs eða eru á natríumskertu fæði skulu leita ráða hjá lækni áður en lyfið er notað.
Einnig þarf að útiloka að um sé að ræða annan liðsjúkdóm. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki liggja
fyrir nægilegar upplýsingar um notkun og því skal ekki nota Glucosamin LYFIS á meðgöngu eða
samhliða brjóstagjöf. Skömmtun: Fullorðnir, einnig aldraðir: Innihald eins skammtapoka á dag,
helst með mat. Algengustu aukaverkanir: Ógleði, kviðverkur, meltingartruflanir, vindgangur,
hægðatregða og niðurgangur. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2014.
Glucosamin LYFIS
Við vægri til meðalsvæsinni slitgigt í hné
1.178 mg glucosamin – 30 skammtapokar
afslátt
ur
20%
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A