Fréttablaðið - 18.10.2016, Page 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Hljómsveitin varð til þegar við
sátum saman á kaffihúsi í fyrravetur.
Guðlaugu Fríðu langaði til þess að
taka þátt söngkeppninni Rófunni
í Hagaskóla, sem er undankeppni
fyrir Samfés. Okkur gekk alveg frá-
bærlega og lentum í öðru sæti“ segir
Ragnheiður María Benediktsdóttir,
en saman skipa þær vinkonurnar
hljómsveitina Rugl, sem kemur til
með að hita upp fyrir eitt stærsta
atriði á tónlistarhátíðinni Iceland
Airwaves, sem fram fer í nóvember.
Fljótlega eftir undankeppni Sam-
fés fengu stelpurnar mikla hvatningu
til þess að taka þátt í Músíktilraun-
um. Þær fengu talsverða athygli fyrir
atriði sitt sem hafnaði í úrslitum,
og er óhætt að segja að boltinn hafi
farið að rúlla eftir það.
„Við ákváðum bara að slá til, þetta
var reynsla og virkilega skemmti-
legt að taka þátt. Þegar við vorum að
ganga frá dótinu okkar eftir keppn-
ina, kom Grímur Atlason, fram-
kvæmdastjóri Airwaves, og spurði
okkur hvort við værum til í að koma
fram á Airwaves,“ segja þær glaðar.
Rugl kemur til með að spila tals-
vert mikið á Airwaves í ár bæði á
dagskránni sjálfri og hinni svoköll-
uðu off-venue dagskrá, sem fram fer
samhliða hátíðinni.
„Við erum að fara að hita upp
fyrir PJ Harvey, þetta er bara alveg
geggjað,“ segir Ragnheiður.
„Ég man eftir því að hafa verið
stödd á tónleikum með hljóm-
sveitinni Hjaltalín og hugsaði með
mér, að þegar ég yrði stór ætlaði ég
að spila á þessari hátíð. Mig grun-
aði ekki að það kæmi að því svona
snemma, þetta var svo fjarlægur
draumur,“ segir Guðlaug.
En hvernig tónlist spilið þið?
„Tónlistin sem við spilum er eigin-
lega svona hálfgert indípopp, það fer
eftir árstíðum, okkur þykir frekar erf-
itt að útskýra nákvæmlega hvernig
tónlist þetta er sem við spilum.
Við syngjum báðar og spilum svo á
hljómborð og gítar. Eins og staðan er
núna hittumst við alla daga og æfum.
Við erum mjög spenntar og teljum
næstum því niður dagana,“ segja þær
stöllur. gudrunjona@frettabladid.is
Þetta var fjarlægur
draumur
Þær Ragnheiður María Benediktsdóttir og Guðlaug Fríða Helga-
dóttir Folkmann stofnuðu hljómsveitina Rugl snemma á þessu ári.
Þær koma til með að hita upp fyrir PJ Harvey á Iceland Airwaves.
Hljómsveitina Rugl skipa þær, Ragnheiður María Benediktsdóttir og Guðlaug Fríða
Helgadóttir Folkmann. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR.
Yoko Ono, 13 daga danshátíð
Yoko Ono 13 daga danshátíð. Reykjavík 2016 © Yoko Ono Dance Company. Listasafn Reykjavíkur.
níundi dagur síðdegis
hristu
farðu og heilsaðu eins mörgum
og þú getur með handabandi, skrifaðu
nöfnin þeirra niður. reyndu í
lyftunni, lestinni, rúllustiganum,
á götunni, salerninu, uppi á fjalli
í myrkri, í dagdraumum
ofar skýjum, o.s.frv. til að handabandið
verði notalegt skaltu halda á blómi eða
þvo höndina og nota vellyktandi o.s.frv.
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r26 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð