Fréttablaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 8
Læ kja rg at a ✿ Götulokanir í miðbænum Laugavegur Austurstræti Kirkjuvegur Sæbraut Va tn ss tíg ur Skólavörðustígur Lofa samráði Reykjavíkurborg segir að samráð verði haft við hags- munaaðila um tíma- bundna innréttingu á göngugötum. Þótt þrír af hverjum fjórum aðspurð- um borgarbúum í skoðanakönnun Gallup séu ánægðir með að götum í borginni sé lokað fyrir bílaumferð eru skoðanir verslunarmanna ólíkar. Fréttablaðið spurði nokkra verslunar- menn út í afstöðu þeirra. „Mér líst ekkert á þetta. Ég er alveg á móti þessum lokunum,“ segir Helgi Sigurðsson sem hefur verið gullsmið- ur í hartnær 50 ár og rekur verslun neðarlega á Skólavörðustígnum. Hann segir að verslunarreksturinn haldi sér á lífi. Verslunin minnki ef gatan er lokuð fyrir bílaumferð. Sveinbjörg Rósa, starfsmaður Heilsuhússins, er miklu ánægðari. Hún segist sjá mikinn mun á Lauga- vegi eftir því hvort gatan er opin eða lokuð. Mun meira líf sé þegar lokað er fyrir bílaumferð. Hún býst við að það verði eins á aðventunni. Framtíðarfyrirkomulag göngugatna í Reykjavík var ákveðið á borgarráðs- fundi í fyrradag, en tilraunir hafa verið gerðar með göngugötur í miðborginni frá 2011. Pósthússtræti og Kirkjustræti verða göngugötur frá 1. maí til 1. októ- ber ár hvert, en vöruafgreiðsla heim- iluð alla virka morgna. Hafnarstræti verður göngugata að austanverðu frá Pósthússtræti en bílaumferð heimil í Hafnarstræti frá Tryggvagötu. Lauga- vegur verður göngugata við Vatnsstíg að gatnamótum Bankastrætis og Þing- holtsstrætis. Skólavörðustígur verður göngugata við Bergstaðastræti og niður úr. Einnig hefur verið ákveðið að lokað verði fyrir bílaumferð á laugardögum og sunnudögum í desember fram á aðfangadag og frá klukkan þrjú á Þor- láksmessu. Enginn einhugur um takmörkun umferðar í miðborg Reykjavíkur „Mér líst ekkert á þetta,“ segir gullsmiður á Skólavörðustíg sem hefur rekið verslun í 47 ár. Starfsmaður Heilsuhússins segir miklu meira líf á Laugaveginum þegar lokað er fyrir umferð. Götur verða lokaðar um helgar í desember fram að jólum. 76% borgarbúa eru sátt við að götum sé lokað á sumrin. „Mér finnst það í rauninni ekki skipta miklu máli af því að það er svo lítið af stæðum hérna. Fólk er aðallega gang- andi hérna,“ segir Bergþór Másson, starfsmaður veitingastaðarins ÓSushi í Pósthússtræti. „Það er náttúrlega bara mín skoðun og ég get ekki talað fyrir fyrirtækið,“ bætir Bergþór við. Hann bætir þó við að þetta geti skipt meira máli fyrir þá sem eru staðsettir á Laugavegi. Skiptir ekki máli „Þetta gerir ekkert fyrir verslunina,“ segir Guðríður Friðriksdóttir, starfs- maður Nordic Store á Skólavörðustíg. Hún segir að þegar Skólavörðustígur- inn sé lokaður líti fólk á hann sem afþreyingargötu en ekki sem verslunar- götu. „Það kaupir ís og tekur myndir af kirkjunni,“ segir hún. Fólkið sé hins vegar síður í verslunarhugleiðingum. „Það verður karnívalstemning en það dregur úr búðarápinu,“ segir Guðríður. Gerir ekkert fyrir verslun „Mér líst ekkert á þetta. Ég er alveg á móti þessum lokunum. Það er bara eitt orð yfir það,“ segir Helgi Sigurðsson, gullsmiður á Skóla- vörðustíg. Hann hefur verið starf- andi í 47 ár og segist vera elsti starf- andi úrsmiður á landinu. Hann segir verslun minnka ef gatan er lokuð. Helgi segist hafa rætt lok- unina við fólk, meðal annars aðra blaðamenn. En segir borgarstarfs- menn ekki hafa rætt neitt við sig um þessa lokun. „Þeir valta bara yfir okkur,“ segir Helgi. Á móti lokunum „Mér finnst það flott. Ég hef gaman af því,“ segir Rafn Ingi Rafnsson, starfsmaður Spúútnik, um lokun fyrir bílaumferð í miðbænum. „Það er meiri traffík af fólki,“ segir Írena Sveinsdóttir, samstarfsmaður hans. Þau telja bæði að það komi meira fólk þegar lokað er fyrir bílaumferð. „Okkur finnst það allavega. Fólk er meira að stoppa við og meira af íslendingum,“ segir Írena. „Það eru svo þröngar gangstéttirnar fyrir allt þetta fólk þegar það eru komnir allir þessir útlendingar,“ segir Rafn Ingi. Gangstéttirnar of þröngar „Fyrri tillagan var að það ætti að loka frá 18. desember. En nú er búið að breyta því af því að við fórum á fund, kaupmennirnir, og fengum þetta niður í að hafa bara lokað frá Þorláksmessu í stað þess að hafa lokað frá átjánda,“ segir Sigurþór Þórólfsson. Sigurþór er eigandi herrafata- verslunarinnar Karlmenn. Sigur- þór segir að lokunin yfir sumar- mánuði sé ágæt. Borgaryfirvöld séu þó sífellt að teygja hana of langt fram á vorið of og langt fram á haustið. Hann vill hafa lokunina frá miðjum júní og fram í septem- ber, en ekki frá maí og fram í októ- ber. „Þeir eru að smá lengja þetta í báða enda.“ Sífellt lengra seilst í lokunum „Ég er mjög ánægð með það. Mér finnst stemningin á Laugaveginum vera skemmtilegri á sumrin,“ segir Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir, starfsmaður Heilsuhússins á Lauga- vegi. Hún segir að það sé jákvætt að það sé lokað fyrir bílaumferð neðar- lega á Laugaveginum en það megi ekki loka fyrir bílaumferð ofarlega í götunni. „Af því að þá er verri aðgangur fyrir birgja og flutningur á vörum erfiðari,“ segir Sveinbjörg Rósa. Hún segist sjá mikinn mun á Laugavegi eftir því hvort hann er opinn eða lokaður og það sé mun meira líf þegar lokað er fyrir bíla- umferð. Hún býst við að það verði eins á aðventunni. „Það er mikið af ferða- mönnum um helgar,“ segir hún. Stemningin skemmtilegri Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is 2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.