Fréttablaðið - 28.11.2015, Qupperneq 8
Læ
kja
rg
at
a
✿ Götulokanir í miðbænum
Laugavegur
Austurstræti
Kirkjuvegur
Sæbraut
Va
tn
ss
tíg
ur
Skólavörðustígur
Lofa samráði
Reykjavíkurborg
segir að samráð
verði haft við hags-
munaaðila um tíma-
bundna innréttingu
á göngugötum.
Þótt þrír af hverjum fjórum aðspurð-
um borgarbúum í skoðanakönnun
Gallup séu ánægðir með að götum
í borginni sé lokað fyrir bílaumferð
eru skoðanir verslunarmanna ólíkar.
Fréttablaðið spurði nokkra verslunar-
menn út í afstöðu þeirra.
„Mér líst ekkert á þetta. Ég er alveg
á móti þessum lokunum,“ segir Helgi
Sigurðsson sem hefur verið gullsmið-
ur í hartnær 50 ár og rekur verslun
neðarlega á Skólavörðustígnum.
Hann segir að verslunarreksturinn
haldi sér á lífi. Verslunin minnki ef
gatan er lokuð fyrir bílaumferð.
Sveinbjörg Rósa, starfsmaður
Heilsuhússins, er miklu ánægðari.
Hún segist sjá mikinn mun á Lauga-
vegi eftir því hvort gatan er opin eða
lokuð. Mun meira líf sé þegar lokað er
fyrir bílaumferð. Hún býst við að það
verði eins á aðventunni.
Framtíðarfyrirkomulag göngugatna
í Reykjavík var ákveðið á borgarráðs-
fundi í fyrradag, en tilraunir hafa verið
gerðar með göngugötur í miðborginni
frá 2011. Pósthússtræti og Kirkjustræti
verða göngugötur frá 1. maí til 1. októ-
ber ár hvert, en vöruafgreiðsla heim-
iluð alla virka morgna. Hafnarstræti
verður göngugata að austanverðu frá
Pósthússtræti en bílaumferð heimil í
Hafnarstræti frá Tryggvagötu. Lauga-
vegur verður göngugata við Vatnsstíg
að gatnamótum Bankastrætis og Þing-
holtsstrætis. Skólavörðustígur verður
göngugata við Bergstaðastræti og
niður úr.
Einnig hefur verið ákveðið að lokað
verði fyrir bílaumferð á laugardögum
og sunnudögum í desember fram á
aðfangadag og frá klukkan þrjú á Þor-
láksmessu.
Enginn einhugur um takmörkun
umferðar í miðborg Reykjavíkur
„Mér líst ekkert á þetta,“ segir gullsmiður á Skólavörðustíg sem hefur rekið verslun
í 47 ár. Starfsmaður Heilsuhússins segir miklu meira líf á Laugaveginum þegar
lokað er fyrir umferð. Götur verða lokaðar um helgar í desember fram að jólum.
76%
borgarbúa eru sátt við að
götum sé lokað á sumrin.
„Mér finnst það í rauninni ekki skipta
miklu máli af því að það er svo lítið af
stæðum hérna. Fólk er aðallega gang-
andi hérna,“ segir Bergþór Másson,
starfsmaður veitingastaðarins ÓSushi
í Pósthússtræti. „Það er náttúrlega
bara mín skoðun og ég get ekki talað
fyrir fyrirtækið,“ bætir Bergþór við.
Hann bætir þó við að þetta geti skipt
meira máli fyrir þá sem eru staðsettir
á Laugavegi.
Skiptir
ekki máli
„Þetta gerir ekkert fyrir verslunina,“
segir Guðríður Friðriksdóttir, starfs-
maður Nordic Store á Skólavörðustíg.
Hún segir að þegar Skólavörðustígur-
inn sé lokaður líti fólk á hann sem
afþreyingargötu en ekki sem verslunar-
götu. „Það kaupir ís og tekur myndir af
kirkjunni,“ segir hún. Fólkið sé hins
vegar síður í verslunarhugleiðingum.
„Það verður karnívalstemning en það
dregur úr búðarápinu,“ segir Guðríður.
Gerir ekkert
fyrir verslun
„Mér líst ekkert á þetta. Ég er alveg
á móti þessum lokunum. Það er
bara eitt orð yfir það,“ segir Helgi
Sigurðsson, gullsmiður á Skóla-
vörðustíg. Hann hefur verið starf-
andi í 47 ár og segist vera elsti starf-
andi úrsmiður á landinu. Hann
segir verslun minnka ef gatan er
lokuð. Helgi segist hafa rætt lok-
unina við fólk, meðal annars aðra
blaðamenn. En segir borgarstarfs-
menn ekki hafa rætt neitt við sig
um þessa lokun. „Þeir valta bara
yfir okkur,“ segir Helgi.
Á móti
lokunum
„Mér finnst það flott. Ég hef gaman
af því,“ segir Rafn Ingi Rafnsson,
starfsmaður Spúútnik, um lokun
fyrir bílaumferð í miðbænum. „Það
er meiri traffík af fólki,“ segir Írena
Sveinsdóttir, samstarfsmaður hans.
Þau telja bæði að það komi meira
fólk þegar lokað er fyrir bílaumferð.
„Okkur finnst það allavega. Fólk er
meira að stoppa við og meira af
íslendingum,“ segir Írena. „Það eru
svo þröngar gangstéttirnar fyrir allt
þetta fólk þegar það eru komnir allir
þessir útlendingar,“ segir Rafn Ingi.
Gangstéttirnar
of þröngar
„Fyrri tillagan var að það ætti að
loka frá 18. desember. En nú er búið
að breyta því af því að við fórum á
fund, kaupmennirnir, og fengum
þetta niður í að hafa bara lokað frá
Þorláksmessu í stað þess að hafa
lokað frá átjánda,“ segir Sigurþór
Þórólfsson.
Sigurþór er eigandi herrafata-
verslunarinnar Karlmenn. Sigur-
þór segir að lokunin yfir sumar-
mánuði sé ágæt. Borgaryfirvöld
séu þó sífellt að teygja hana of
langt fram á vorið of og langt fram
á haustið. Hann vill hafa lokunina
frá miðjum júní og fram í septem-
ber, en ekki frá maí og fram í októ-
ber. „Þeir eru að smá lengja þetta í
báða enda.“
Sífellt lengra
seilst í lokunum
„Ég er mjög ánægð með það. Mér
finnst stemningin á Laugaveginum
vera skemmtilegri á sumrin,“ segir
Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir,
starfsmaður Heilsuhússins á Lauga-
vegi. Hún segir að það sé jákvætt að
það sé lokað fyrir bílaumferð neðar-
lega á Laugaveginum en það megi
ekki loka fyrir bílaumferð ofarlega í
götunni.
„Af því að þá er verri aðgangur fyrir
birgja og flutningur á vörum erfiðari,“
segir Sveinbjörg Rósa. Hún segist sjá
mikinn mun á Laugavegi eftir því hvort
hann er opinn eða lokaður og það sé
mun meira líf þegar lokað er fyrir bíla-
umferð. Hún býst við að það verði eins
á aðventunni. „Það er mikið af ferða-
mönnum um helgar,“ segir hún.
Stemningin
skemmtilegri
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@365.is
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð