Fréttablaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 34
Það er svo góður andi í húsinu, það er það besta við húsið,“ segja hjónin Hafdís Þorleifsdóttir og Haukur Ingi Jónsson sem
búa í fallegu bakhúsi við Vestur-
götu í Reykjavík ásamt hundinum
sínum, Róberti. Húsið var byggt
árið 1896 og er hluti af Hlíðarhús-
unum.
„Við fluttum inn í húsið árið 2002.
Ég heillaðist af því þegar ég sá það
en Hafdís var alls ekki á því til að
byrja með að flytja úr Breiðholti
þar sem við bjuggum og niður í bæ.
Hún sannfærðist hins vegar þegar
við skoðuðum það,“ segir Haukur.
Árið 2012 réðust hjónin í miklar
endurbætur á húsinu og stækkuðu
það um fjörutíu prósent.
Hjónin reka verslunina Gyllta
köttinn í Austurstræti og Stofuna
kaffihús í kvosinni. Það er því
stutt fyrir þau að fara í vinnu. Þau
segja að þeim líði afskaplega vel í
húsinu og búast ekki við að flytja
þaðan. „Nei, við munum alltaf vera
hér. Verðum gömul hérna,“ segir
Haukur.
Gamalt hús með sál
Hafdís Þorleifsdóttir og Haukur Ingi Jónsson búa í tæplega 120 ára
gömlu húsi í Vesturbænum þar sem gamlir munir fá að njóta sín.
Hafdís og Haukur inn í stofu á uppáhaldsstað Hafdísar. Stólarnir eru úr Fríðu
frænku og myndirnar líka. Hundurinn Róbert situr fyrir framan þau á pullunni
sinni. FRéttablaðið/GVa
Eldhúsborðið og stólarnir koma úr Fríðu frænku. „Hérna kemur fjölskyldan saman og borðar. Hérna er líka mikið setið og rætt,
kvölds og morgna. Margar hugmyndir ræddar,“ segir Haukur. litlu stytturnar í glugganum eru frá ömmu Hafdísar.
Kjallari hússins var grafinn upp af fyrri eiganda og þá kom í ljós þessi aldagamla
hleðsla sem hefur fengið að halda sér. Hjónin kalla þetta horn kósíhellinn en þar
kemur fjölskyldan gjarnan saman og horfir á sjónvarpið. „Þetta er í raun húsbónda-
herbergi en fjölskyldan dvelur þarna mörgum stundum,“ segir Haukur.
Hjónarúmið sem er í spænskum stíl hefur gengið kynslóða fram af kynslóð. afi og
amma Hauks áttu rúmið sem móðir hans erfði svo og síðan Haukur. „Við létum
taka það allt í gegn fyrir 15 árum síðan, fengum nýjar dýnur og pússuðum upp og
bárum á rúmgaflinn.“ Stóllinn er úr Fríðu frænku en sú búð var í miklu uppáhaldi
hjá hjónunum. „Við vorum reglulegir gestir hjá Önnu,“ segir Hafdís en í dag reka
hjónin einmitt kaffihúsið Stofuna sem er í sama húsnæði og Fríða frænka var í.
Fyrstu skautarnir hans Hauks hafa
fengið annað hlutverk og eru núna
veggskraut í húsbóndaherberginu í
kjallaranum.
ljósið á ganginum er í miklu uppáhaldi
hjá Hauki sem er mikill áhugamaður
um ljós og var búinn að safna að sér
ljósum áður en húsið var stækkað.
Pallurinn fyrir utan hús þeirra hjóna er mikið nýttur á sumrin. „Það er algjör pottur
hérna á sumrin,“ segir Haukur. Húsið var byggt árið 1896.
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r34 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð