Fréttablaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 52
Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðar
efnalitlar fjölskyldur fyrir jól
Heilsueflandi samvera er alveg málið!
Hjálparstarf kirkjunnar vinnur nú að stærsta verkefni
sínu á árinu hér á Íslandi en það er sérsök aðstoð við
efnalitlar fjölskyldur í desember vegna jólahalds.
Markmiðið er að gera fólki kleift að gleðjast með sínum
nánustu yfir hátíðirnar. Aðstoðin tekur mið af
aðstæðum hvers og eins og er fyrst og fremst í formi
inneignarkorta í matvöruverslanir sem verða gefin út
eigi síðar en 18. desember.
Tekið verður á móti umsóknum frá barnafjölskyldum á
höfuðborgarsvæðinu á skrifstofu Hjálparstarfsins,
Háaleitisbraut 66 í Reykjavík 3., 4., 7. og 8. desember
kl. 11:00–15:00. Prestar á landsbyggðinni taka við
umsóknum í heimasókn til og með 11. desember. Með
umsóknum verða að fylgja gögn um tekjur og útgjöld
frá síðasta mánuði en fólk sem hefur fengið Arion
inneignarkort í matvöruverslanir hjá Hjálparstarfinu
eftir 1. júlí síðastliðinn getur sótt um á vefsíðunni
www.help.is/verkefni innanlands/umsóknareyðublað.
Á svæðum þar sem öðrum hjálparsamtökum er til að
dreifa einskorðar Hjálparstarfið aðstoðina við barna
fjölskyldur sem búa við kröpp kjör. Þar sem
Hjálparstarfið er eitt að störfum er einstaklingum
einnig veitt sérstök aðstoð fyrir jól. Gott samstarf um
jólaaðstoð er milli Hjálparstarfs kirkjunnar,
Hjálpræðis hersins, Mæðrastyrksnefndar og Rauða
krossins á Eyjafjarðarsvæðinu, í Árnessýslu og á
höfuð borgarsvæðinu.
Alls bárust 1.455 umsóknir fyrir jól 2014 og í heild er
áætlað að um 4.000 einstaklingar hafi notið aðstoðar
þá. Fjölmörg fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar
veita styrki til verkefnisins ár hvert og vinnuframlag
sjálfboðaliða við skráningu umsókna fyrir jól er jafn
framt ómetanlegt.
Í október 2015 fóru Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálp
ræðisherinn í Reykjavík af stað með námskeið sem
ber nafnið Heilsueflandi samvera. Námskeiðið er
ætlað konum og er markmið þess að efla félagslega,
andlega og líkamlega heilsu í góðra kvenna hópi.
Námskeiðið sem er einu sinni í viku hefur farið vel af
stað en það stendur fram í apríl á næsta ári. Á
haustönn var byrjað á sjálfstyrkingu undir hand
leiðslu sr. Petrínu Mjallar Jóhannesdóttur og svo er
föndrað fyrir jólin, meðal annars búin til kerti og
kertastjakar. Eftir áramót verður farið í matreiðslu á
hollum og ódýrum heimilisréttum ásamt því að fara í
gönguferðir um Reykjavík, skoða söfn og föndra enn
meira. Konurnar sem taka þátt í námskeiðinu hafa
náð sérstaklega vel saman og eru spenntar fyrir
framhaldinu, þær segja samveruna „alveg málið“.
Hjálparstarf kirkjunnar starfar í anda hugmynda
fræði um valdeflingu og leitast við að styðja fólk við
að ná valdi yfir aðstæðum sínum, bæta félagslega
stöðu sína og almenn lífsgæði. Eitt meginmarkmið
Hjálparstarfsins er að draga úr hættunni á félags
legri einangrun þeirra sem til stofnunarinnar leita.
Aðferðin til þess að ná markmiðinu er að bjóða upp
á sjálfstyrkingar og færninámskeið, skipulögð
sumarfrí fyrir efnalitlar barnafjölskyldur og
skipulagða samveru með ræktun grænmetis í
matjurtagörðum, styrki vegna skólagöngu barna,
unglinga og fólks í endurhæfingu og vegna íþrótta
iðkunar barna og tómstundastarfs þeirra. Hjálpar
starfið leggur áherslu á að hjálpa fólki til sjálfs
hjálpar þannig að það finni styrk sinn og geti notað
hann til að taka ákvarðanir um eigið líf. Bætt sjálfs
mynd stuðlar að meiri virkni sem svo aftur styrkir
sjálfsmyndina enn frekar.
Laugardagur 19. desember
opið kl. 13:00–16:00
Mánudagur 21. desember
opið kl. 08:00–17:00
Þriðjudagur 22. desember
opið kl. 08:00–17:00
Þorláksmessa 23. desember
opið kl. 08:00–18:00
Aðfangadagur 24. desember
opið kl. 10:00–12:00
Mánudagur 28. desember
lokað
Þriðjudagur 29. desember
opið kl. 10:00–16:00
Miðvikudagur 30. desember
opið kl. 08:00–16:00
Gamlársdagur 31. desember
lokað
Mánudagur 4. janúar
lokað
Skrifstofa Hjálparstarfs kirkjunnar, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, er opin um jól og áramót 2015 sem hér segir:
„Kertastjakar úr salti er það heitasta í dag,“ segja þátttakendur á námskeiðinu Heilsueflandi samvera og framleiða þá í
ýmsum gerðum.
Sjálfboðaliðar gegna veigamiklu hlutverki í desember við að skrá umsóknir um aðstoð, flokka fatnað og aðstoða fólk sem
leitar til Hjálparstarfsins.
6 – Margt smátt ...