Fréttablaðið - 28.11.2015, Page 66
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður í samvinnu við Lífeyrissjóð Vestmannaeyja og stéttarfélögin í Vestmannaeyjum leitar
að ráðgjafa í um 50% stöðu með starfsstöð í Vestmannaeyjum. Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og
einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði.
Helstu verkefni
• Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu
• Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum
• Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK
• Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfsendurhæfingu og vinnustaði
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar,
iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar
• Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar
• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
• Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfni og kostnaðarvitund
• Góð þekking á vinnumarkaði
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og rit
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa
með árangursríkri þjónustu á sviði starfsendurhæfingar. Ráðgjafar VIRK starfa
hjá stéttarfélögum samkvæmt samningi við VIRK. Gildi VIRK eru fagmennska,
virðing og metnaður.
Nánari upplýsingar er að finna á virk.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2015.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda ítarlega ferilskrá á
netfangið audur@virk.is.
Nánari upplýsingar veita Auður Þórhallsdóttir hjá VIRK og Haukur Jónsson
hjá Lífeyrisjóði Vestmannaeyja.
Ábyrgðarfulltrúi Toyota á Íslandi
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á netfangið atvinna@toyota.is, merkt Ábyrgðarfulltrúi. Umsóknarfrestur er til 7. desember.
Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir á netfangið fanny@toyota.is
Starfssvið
• Umsjón með ábyrgðarmálum Toyota á Íslandi
• Daglega samskipti við TME (Toyota Motor Europe) vegna ábyrgðarmála
• Yfirferð og frágangur á ábyrgðarumsóknum allra viðurkenndra þjónustuaðila Toyota á Íslandi
• Senda reikninga og öll fylgigögn til ábyrgðardeildar TME
• Fara daglega yfir endursendingar á ábyrgðarmálum frá TME og bregðast við ábendingum
• Árlegar úttektir á ábyrgðarmálum hjá viðurkenndum þjónustuaðilum Toyota á Íslandi
• Skilgreining og uppsetning á þjónustuþáttum í Navision XAL og viðhald á þjónustukerfinu
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• Tæknimenntun æskileg
• Mjög góð enskukunnátta
• Miklir skipulagshæfileikar og nákvæmni
• Góð þekking á Excel og Word
• Þekking á Navision XAL kostur
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Toyota á Íslandi leitar að öflugum einstaklingi í starf ábyrgðarfulltrúa.
Toyota á Íslandi er innflytjandi Toyota bifreiða, vara- og aukahluta. Starfsmenn fyrirtækisins byggja gildi sín og viðmið í starfi á The Toyota Way:
stjórnunar-, þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota. Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota á Íslandi.
Hverri áskorun er tekið fagnandi hendi og leita starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir í öllu því sem viðkemur starfsemi
fyrirtækisins og þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess.