Fréttablaðið - 28.11.2015, Side 69
Matráður óskast í 75% starf
Fjársýsla ríkisins óskar eftir að ráða matráð í mötuneyti
frá og með 5. janúar 2016 eða eftir samkomulagi.
Ætlast er til að matráður taki sér orlof allan júlí á hverju ári.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Sótt er um starfið á starfatorg.is
Umsóknarfrestur er til og með 14.12.2015
Nánari upplýsingar veitir
Pétur Ólafur Einarsson - petur.einarsson@fjs.is - 545 7531
Ragnheiður Kr Gunnarsdóttir - ragnheidur.gunnarsdottir@fjs.is - 545 7530
Helstu verkefni og ábyrgð
Halda eldhúsi, búri og matsal hreinu og snyrtilegu
Eldamennska og innkaup á aðföngum, auk umsjónar
með tækjum og búnaði í eldhúsi
Sjá um uppvask, þrif og frágang eftir máltíðir dagsins
og aðstoða við kaffiveitingar á fundum og öðrum
uppákomum
Hæfnikröfur
Stundvísi
Nýjungagirni
Skipulagshæfni
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og reynslu
sem matráður
Helstu verkefni og ábyrgð
• Uppfylla kennsluskyldu sína innan fræðasviðs
lyflækninga, þ.m.t. klíníska kennslu á LSH.
• Gegna starfi forstöðumanns fræðasviðs lyflækninga
innan Læknadeildar samkvæmt skipan deildarráðs.
• Vinna að uppbyggingu og þróun almennra lyflækninga
við LSH með áherslu á kennslu, vísindi og þróun
klínískrar þjónustu í samráði við aðra yfirlækna,
framkvæmdastjóra sviðsins og framkvæmdastjóra
lækninga.
• Stuðla að því að greining og meðferð sjúkdóma taki mið
af gagnreyndri læknisfræði og hagkvæmni í rekstri.
• Vinna að bættri öryggismenningu og öflugu gæðastarfi
á LSH.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Doktorspróf eða próf sem jafnað verður til doktorsprófs,
eða jafngild hæfni að mati dómnefndar.
• Sérfræðileyfi í lyflækningum.
• Veruleg rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði
og frumkvæði í rannsóknum.
• Góð reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klíniskri,
og leiðbeiningu til æðri háskólagráðu.
• Stjórnunarreynsla og hæfni til þess að afla styrkja til
rannsóknarstarfa.
• Hæfni til að geta veitt fræðasviði forstöðu samkvæmt
reglum Læknadeildar.
• Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Gert er ráð fyrir að starfið verði veitt frá 1. apríl 2016.
Ráðning í yfirlæknisstarf er til 5 ára í senn. Ráðning í
prófessorsstarfið verður til fimm ára með möguleika á
ótímabundinni ráðningu við Háskóla Íslands að þeim tíma
liðnum.
Upplýsingar veita Magnús Karl Magnússon, forseti
Læknadeildar (s. 525 4879, magnuskm@hi.is) og Hlíf
Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs
LSH (s. 543 6870, hlifst@landspitali.is).
Umsóknarfrestur er til og með 21. des. 2015.
Sjá nánar: www.starfatorg.is
Laust er til umsóknar starf prófessors í lyflækningum á fræðasviði lyflækninga við Læknadeild HÍ sem er samhliða starfi yfirlæknis á lyflækninga
sviði á LSH. Sótt skal um bæði störfin þar sem þau verða veitt einum og sama umsækjandanum.
PRÓFESSOR OG YFIRLÆKNIR Í LYFLÆKNINGUM
SAMHLIÐA STARF VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS OG LANDSPÍTALA
Dögun Capital auglýsir fyrir viðskiptavini
sína eftirfarandi stöður lausar til umsóknar
Hlutastarf - Vélstjóri
Óskum eftir að ráða vélstjóra í hlutastarf.
• Vinnutími mjög sveigjanlegur.
• Laun árangurstengd.
• Skilyrði að viðkomandi hafi bíl til umráða.
Vinsamlegast sendið póst, merkt VÉLSTJÓRI,
á radningar@doguncapital.is ef áhugi er á að leita frekari
upplýsinga um starfið.
Hlutastarf - Efnafræðingur
Við leitum eftir að ráða efnafræðing í hlutastarf, fyrir viðskipta-
vin okkar.
• Starfið felst í bakteríumælingum og þrifaráðgjöf.
• Laun árangurstengd.
• Vinnutími mjög sveigjanlegur.
• Skilyrði að viðkomandi hafi bíl til umráða.
Listhafendur vinsamlegast sendið póst á:
radningar@doguncapital.is merkt EFNAFRÆÐINGUR.
Hlutastarf - Fjarvinnsla
Við leitum að starfsmanni í hlutastarf.
• Mjög sveigjanlegur vinnutími
• Um er að ræða starf sem er árangurstengt.
• Góðrar tölvukunnáttu krafist.
• Umtalsverðir tekjumöguleikar.
Áhugasamir vinsamlegast sendið ferilsskrá á netfangið
radningar@doguncapital.is, merkt FJARVINNSLA.