Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 2
Hann er ekki bara
búinn að klífa eitt
8.000 metra fjall. Hann er
búinn að klífa tvö á mjög
stuttum tíma.
Vilborg Arna
Gissurardóttir,
göngugarpur
og pólfari
Veður
Norðaustankaldi í dag, en allhvasst
eða hvasst undir Vatnajökli. Dálítil
væta norðan og austan til og fremur
svalt í veðri, en annars bjartviðri og
hlýtt. SJÁ SÍÐU 34
Stoltar druslur föndruðu skilti
Undirbúningur hinnar árlegu Druslugöngu var í fullum gangi á Lofti hosteli við Bankastræti þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar þar að garði um
klukkan átta í gærkvöld. Þar mátti sjá heimatilbúin skilti skreytt slagorðum í anda göngunnar og skilaboðum eins og „Minn fokking líkami“ og
„Höfum hátt“. Gangan hefst í dag kl. 14.00 og farið verður frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og á Austurvöll. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
MALLORCA
10. ágúst í 11 nætur
Bókaðu sól á
Netverð á mann frá kr. 70.845 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr.
113.745 m.v. 2 fullorðna í íbúð.
Hotel Sorrento /
Portofino
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
á flugsæti
m/gistingu
FY
RI
R2 1
Frá kr.
70.885
Allt að
39.950 kr.
afsláttur á mann
S A K A M Á L K a r l -
maður sem sætir
á kæ r u ve g n a
gruns um að
hafa brotist inn í
íbúð í Hafnarfirði
og áreitt tólf ára
stúlku kynferðislega í
maí síðastliðnum játaði innbrotið
þegar málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjaness fyrr í mánuðinum.
Hann neitaði hins vegar að hafa
brotið á stúlkunni.
Maðurinn er sakaður um að hafa
brotist inn á heimili fjölskyldu í
Hafnarfirði þann 5. maí síðast-
liðinn, farið inn í svefnherbergi
stúlkunnar og strokið henni um
bak, farið undir nærbol hennar og
niður á mjöðm. Þá er hann sagður
hafa skriðið upp í rúm til stúlkunn-
ar og reynt að strjúka henni meira,
en stúlkunni tókst að lokum að læsa
sig inni á baðherbergi. Maðurinn
var í framhaldinu handtekinn og
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
2. ágúst næstkomandi. Hann var
látinn laus nýverið, en að sögn
Kolbrúnar Benediktsdóttur vara-
héraðssaksóknara voru ekki lengur
skilyrði samkvæmt lögum til þess
að fara fram á áframhaldandi gæslu-
varðhald.
Maðurinn er einnig grunaður um
blygðunarsemisbrot en hann er sak-
aður um að hafa farið upp að bað-
herbergisglugga þann 4. maí síðast-
liðinn og horft á konu þar sem hún
stóð fáklædd og berbrjósta. Þá var
maðurinn grunaður um tvö önnur
brot, kynferðisbrot og tilraun til
húsbrota, sama dag og hann braust
inn til fjölskyldunnar. Hann sætti
gæsluvarðhaldi frá handtöku 5. maí.
Aðalmeðferð málsins verður þann
28. ágúst næstkomandi. – sks
Játar að hafa
brotist inn
Lögreglan handtók
manninn í byrjun maí en
honum var nýverið sleppt úr
gæsluvarðhaldi.
SAMFÉLAG „Vonandi kemst hann
til landsins sem fyrst. Ég veit hann
langar heim,“ segir Hjördís Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Lífs, styrktarfélags kvennadeildar
Landspítalans, um John Snorra
Sigurjónsson. Hann komst upp á
topp eins illkleifasta fjalls veraldar,
K2, fyrstur Íslendinga í gær. Safnaði
John Snorri styrkjum fyrir félagið á
meðan á göngu stóð.
Hjördís telur að John Snorri eigi
um tveggja vikna ferðalag fram
undan. Hann er væntanlegur niður
í grunnbúðir K2 í dag, sem er óvænt
að sögn Hjördísar. „Þeir ætluðu sér
að fara niður í skrefum.“
Fljótlega eftir komuna í grunn-
búðirnar mun John Snorri halda
niður fjallið með föruneyti sínu.
Tekur þá við fimm til sex daga
ganga niður í byggð. „Þegar þangað
er komið þurfa þeir að koma sér í
flug áleiðis til Íslands. Þetta verður
um það bil tveggja vikna ferðalag,“
segir Hjördís.
Í samtali við fréttastofu í gær
sagði John Snorri að ferðalagið
niður fjallið væri í raun erfiðasti
hluti leiðangursins. „Þegar maður
er á leiðinni niður þá snýr maður
baki í fjallið og þá er miklu erfiðara
að vera var um sig varðandi snjóflóð
og grjóthrun.“
Hjördís segir söfnunina hafa
tekið kipp síðustu klukkutímana
áður en tindi var náð. Þá hafi hún
einnig aukist eftir því sem John
Snorri færðist nær toppi fjallsins.
Styrktarféð verður nýtt í samráði við
deildarstjóra kvennadeildarinnar
og nefnir Hjördís að til dæmis gæti
það verið nýtt í skoðunarbekki og
skoðunarljós. Hjördís sagðist þó
ekki geta gefið upp hversu mikið
hefði safnast.
Annar ofurhugi og fjallgöngu-
garpur, Vilborg Arna Gissurardótt-
ir, sagði vægt til orða tekið þegar
Fréttablaðið spurði hana hvort um
mikið afrek væri að ræða. „Þetta er
gríðarlega mikið afrek,“ sagði Vil-
borg sem hefur sjálf meðal annars
klifið Everestfjall.
„Það sem ég vil líka leggja áherslu
á, og finnst hafa gleymst í umræð-
unni, er að hann er ekki bara búinn
að klífa eitt 8.000 metra fjall. Hann
er búinn að klífa tvö á mjög stuttum
tíma,“ segir Vilborg.
thorgnyr@frettabladid.is,
adalheidur@frettabladid.is
Hlakkar til heimkomu
eftir afrekið mikla á K2
John Snorri Sigurjónsson komst upp á topp hins ógnarháa fjalls K2 í gær. Ferða-
lagi hans er þó hvergi nærri lokið. Langar til að komast heim en John Snorri á
um tveggja vikna ferðalag fram undan. Pólfari segir afrekið gríðarlegt.
John Snorri Sigurjónsson varð fyrstur Íslendinga upp á K2. MYND/KÁRI SCHRAM
NÁTTÚRA Lítið jökulhlaup hófst í
Múlakvísl í gærkvöldi.
„Yfir síðustu klukkustundir virðist
hafa aðeins aukist í ánni en raf-
leiðni hefur haldist stöðug frá því í
morgun. Við erum óviss hvort þetta
muni fjara út eða verða að stærra
jökulhlaupi,“ sagði veðurfræðingur
á Veðurstofu Íslands þegar Frétta-
blaðið náði tali af honum á tíunda
tímanum í gærkvöldi.
„Þetta er eitthvað sem við þurfum
að fylgjast með. Það eru engin merki
um að þetta verði stórt eins og er,
við verðum bara að hafa augun á
mælunum okkar,“ sagði veðurfræð-
ingurinn.
Aukin hætta er á jökulhlaupi í
Múlakvísl og á Mýrdalssandi eftir
snarpan jarðskjálfta í Kötlu í fyrra-
kvöld. Almannavarnir hafa þegar
lokað áningarstað við Múlakvísl og
takmarkað umferð á gamla veginum
um Mýrdalssand. – þea
Hlaup hafið í
Múlakvísl
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð