Fréttablaðið - 29.07.2017, Side 24

Fréttablaðið - 29.07.2017, Side 24
Vændishús og ljóðskáld eiga ýmislegt sameiginlegt. Hvort tveggja eru gamlar starfsgreinar sem fást við mikla nánd, fantasíur og sóðalegar hugmyndir sem opinberast í ein- rúmi,“ segir leikkonan Nanna Gunnars. Í kvöld ætlar hún að breyta Iðnó í eldrautt pútnahús með skáldlegu ívafi. „Frá ómunatíð hafa ljóð verið notuð til tjáningar á löngunum mannsins og innstu þrám. Á sama hátt hafa vændiskonur fyrri tíma og vorra verið skáldum innblástur og yrkisefni. Við ætlum að fanga þessi áhrif en einblína á nándina með kynæsandi blæ, beru holdi, ögrandi kabarettdansi og burl- esque-skopstælingum. Með því móti frelsum við líkamann og erum stolt af honum, því það er ekkert ljótt við að vera léttklæddur. Það getur hins vegar vakið kyn- ferðislegar kenndir sem og kitlað skopskynið, en sjálfsást og líkams- virðing spilar þar stærstu rulluna.“ Rauða skáldahúsið reis fyrst í heimsborginni New York árið 2008 og hefur síðan farið sem eldur í sinu um heiminn. Umgjörðin er leikhúsþema fíns vændishúss í anda Parísar um 1920 þar sem alls kyns listamenn fara á stjá. Viðburðurinn byggir á fyrirmyndinni „The Poetry Broth- el“ þar sem brotnir eru veggir á milli ljóðs og leiklistar, leikara og áhorfenda. „Það var ljóðskáldið Stephanie Berger sem átti hugmynd að þessu upplifunarleikhúsi heimsins, og ég sló til þegar Meg Matich, eitt af skáldum okkar í kvöld, bað mig um að hjálpa sér við að setja upp sams konar ljóðapútnahús í Reykjavík. Meg er með MFA-gráðu í ljóðlist frá Columbia-háskóla og er hér á landi til að yrkja og þýða íslensk ljóð yfir á ensku með styrk frá Fulbright. Hún hafði tekið þátt í slíkri veislu í New York og vildi sjá meira gerast í íslensku ljóðasenunni,“ upplýsir Nanna, sem útskrifaðist úr leiklistarskóla í Lundúnum 2012, þar sem hún komst í kynni við óvenjulegar nálganir í leikhúsheiminum. „Rauða skáldahúsið er upplif- unarleikhús þar sem áhorfandinn þarf ekki að sitja niðurnegldur á sama stað heldur getur labbað á milli atriða, talað við leikarana, hlegið, sungið og dansað að vild. Segja má að hann verði hluti af sköpunarverkinu, en hann má vera þar allt eins og leikmunur því það er engin kvöð að spila af fingrum fram frekar en fólk vill.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Fantasíur og rómantík Dyr að skáldlega pútnahúsinu í Iðnó opnast að kvöldi Druslugöng- unnar sem fram fer í dag, en það er skemmtileg tilviljun. „Með Druslugöngunni er reynt að skipta út merkingu orðsins „drusla“ en ég held að við náum aldrei að skipta út merkingu orðs- ins „hóra“. Í stað þess reynum við að vekja fólk til umhugsunar með annars konar nálgun,“ segir Nanna sem lofar dulúðugu og fjörugu and- rúmslofti í Iðnó í kvöld. „Hér verður daðrað og duflað innan um eldheitar fantasíur og rómantík. Sumum þykir það afar ögrandi á meðan aðrir njóta til hins ítrasta. Fólk er vitaskuld for- vitið og vill vita um hvað málið snýst, en fæstir vilja hugsa um ljótu hlutina þegar þeir skemmta sér. Við höfum glamúrinn því í farar- broddi og heiðrum hugblæ Rauðu myllunnar (f. Moulin Rouge) og Parísar eftir 1900 þegar vændishús voru goðsagnakennd og töfrar áttu sér stað innanhúss.“ Í þeim sama anda verður hægt að fá einkalestur ljóðskálda í ein- rúmi dívans og kertaljóss, upplifa nánd tarotspákonu og nornarinnar Snæuglu, sem fer afsíðis með þá sem vilja spyrja út í ástina, og fá teiknaðar af sér myndir, eins og tíðkaðist meðal frönsku elítunnar forðum, eða þá líkamsmálun úr hendi Violet Fire. „Frönsk vændishús eftir alda- mótin 1900 voru athvörf lista- manna og vísar frægt atriði úr kvikmyndinni Titanic til þess veruleika, þar sem persóna Kate Winslet segir við persónu Leon- ardos DiCaprio: „Draw me like one of your French girls.“ Þann ævin- týraheim munum við endurskapa, nema hvað við sleppum kynlífs- greiðanum, en í stað hans geta menn borgað fyrir hugaróra,“ segir Nanna og brosir. Bannað að káfa! Yfir þrjátíu listamenn koma fram í listaveislu Rauða skáldahússins í kvöld. Aðalskáld kvöldsins er Kristín Eiríksdóttir, en önnur skáld eru Elías Knörr, Ingunn Lára, Kailyn Phoenix, Lommi, Meg Matich, Solveig Stjarna Thorodd- sen og Þorvaldur S. Helgason. Þá sýna María Callista, Gógó Starr, Ungfrú Hringaná, Ginger Biscuit og Bibi Bioux eggjandi dans með Reykjavík Kabarett. Hljómsveit- irnar eru tvær: Gleðikonur og The Keystone Swingers, með Viggu Ásgeirsdóttur sem gestasöngkonu. „Að hverfa inn í pútnahús skáldanna verður algjör veru- leikaflótti! Enda hvenær fær fólk tækifæri til að klæða sig upp í glitrandi kjóla og korselett án þess að fá á sig athugasemdir annarra. Við hvetjum gestina til að klæða sig upp á en það er engin skylda. Margir vilja reyndar nýta tækifærið til að klæða sig á ögrandi hátt og þessi viðburður er einstaklega skemmtilegur fyrir fólk sem hefur áhuga á dragi eða að leika sér með kynhneigð sína, óháð kynvitund,“ segir Nanna sem skiptir um nafn í kvöld og kemur fram sem Madame Karítas sem stjórnar gleðinni með list- ræna stjórnandanum Jessicu LoMonaco og leikstjóranum Meg Matich, í samstarfi við Reykjavík Kabarett. „Ástir og ævintýri liggja alltaf og alls staðar í loftinu og ég veit að einhverjir hafa byrjað að deita eftir viðburði sem þessa. Maður fær enda mikla nánd með fólki og ef einhverjir straumar myndast er alveg hægt að biðja um númerið eftir sýningu. Bara ekkert káf á meðan sýningu stendur!“ segir Nanna og skellir upp úr. Rauða skáldahúsið stendur yfir frá klukkan 20 til 23 í Iðnó í kvöld. Sjá nánar á Facebook undir Rauða skáldahúsið. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Framhald af forsíðu ➛ Nanna ílengdist í Lundúnum þegar hún varð ástfangin af breska hljóðhönnuðinum og listræna tölvuhönnuðinum Owen Hindley. Þau fluttu til Íslands í fyrra og stofnuðu leikhópinn Huldufugl, sem stendur að gleðinni í Iðnó í kvöld. MYNDIR/LAUFEY ELÍASDÓTTIR Nanna kemur fram sem Madame Karítas í Rauða skáldahúsinu í Iðnó í kvöld og segir það verða algjöran veruleikaflótta að hverfa inn í pútnahús skálda. ALLTAF VIÐ HÖNDINA Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum ... allt sem þú þarft Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni á Vísi og í Fréttablaðs-appinu 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.