Fréttablaðið - 29.07.2017, Qupperneq 26
Þau stóðu sig
ótrúlega vel. Sátu
ekki og biðu í tíu tíma
heldur hjálpuðu mikið til
við undirbúninginn og
hjálpuðu með ljósin og
fleira í tökum, bara eins
og alvöru kvikmynda-
tökuteymi.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
„Það er auðvitað best að vinna við það sem manni þykir skemmtilegast,“ segir Tómas Nói sem leikstýrði sinni fyrstu sjónvarpsauglýsingu í sumar. MYND/VILHELM
Leikararnir ásamt leikstjóranum, frá vinstri: Jón Bjarni Emilsson, George Ari Devos, Tómas Nói og Erlen Isabella Einars-
dóttir. Á myndina vantar einn leikarann, Kristínu Önnu.
Þetta var allrabesta sumar-vinnan,“ segir Tómas Nói Emilsson, ungur og upprenn-
andi kvikmyndargerðarmaður,
en hann leikstýrði og tók upp
sína fyrstu sjónvarpsauglýsingu í
sumar.
„Þau hjá Emmessís sáu viðtal við
mig í Fréttablaðinu í vor, höfðu
samband og báðu mig um að búa
til auglýsingu fyrir sig. Þau voru
með grófa hugmynd um hvernig
hún ætti að vera en svo átti ég að
sjá um allt saman. Vinna hug-
myndina betur, finna krakka til að
leika, leikstýra og finna tökustað.
Svo þurfti að útvega græjur og
fleira,“ segir Tómas. Þetta hafi verið
hörkuvinna.
„Ég var mikið í útlöndum með
fjölskyldunni í sumar svo ég þurfti
að klára þetta verkefni allt á einni
viku. Það er auðvitað best að vinna
við það sem manni þykir skemmti-
legast en þetta var erfitt – að
undirbúa allt, taka upp og klippa.
Dagarnir voru dálítið langir,“ segir
Tómas en það fylgi kvikmynda-
bransanum. „Já, maður bara redd-
aði þessu,“ segir hann hress.
„Mesti tíminn fór í undirbúning,
tíu tímar á dag í nokkra daga. Aðal-
tökudagurinn var líka tíu tímar,
átta tímar fóru í tökurnar sjálfar
og tveir tímar í að gera tilbúið og
ganga svo frá. Ég talaði við nokkra
krakka sem ég þekki og vissi að
finnst gaman að leika. Þau höfðu
leikið áður en ekki gert neitt
Allra besta sumarvinnan
Tómas Nói
Emilsson fékk
tilboð um sumar-
vinnu sem hann
gat ekki hafnað;
að leikstýra sjón-
varpsauglýsingu.
Hann er reynsl-
unni ríkari og
stefnir ótrauður
á frekari kvik-
myndagerð.
kvikmyndatengt. Meðalaldurinn í
hópnum er tólf og hálft ár en þau
stóðu sig ótrúlega vel. Sátu ekki
og biðu í tíu tíma heldur hjálpuðu
mikið til við undirbúninginn og
hjálpuðu með ljósin og fleira í
tökum, bara eins og alvöru kvik-
myndatökuteymi. Svo tók við
klippivinna sem ég sá alveg um.“
Tómas Nói er ekki ókunnugur
handtökunum á setti en hann
sigraði á stuttmyndahátíðinni í
Bíói Paradís með stuttmynd sína
Stökkið fyrir tveimur árum og
hefur sjálfur leikið í auglýsingu og
í tónlistarmyndbandi. Hann segir
þetta þó fyrsta stóra verkefnið
en vonandi upphafið að því sem
koma skal.
Hver var helsta áskorunin í
verkefninu? „Erfiðast var sennilega
að finna tökustað. Ístrukkur inn átti
að keyra um svo við þurftum stóran
gólfflöt og mikið pláss. Það þýddi
ekkert að vera í lítilli íbúð og ég
eyddi mörgum klukkutímum í að
finna nógu stórt pláss,“ segir Tómas.
„Þetta er það langstærsta sem ég
hef gert og það skemmtilegasta. Ég
lærði helling á þessu og ég vona að
fleiri verkefni fylgi í kjölfarið; tón-
listarmyndbönd eða fleiri auglýs-
ingar. Ég er búinn að smala saman
nokkrum strákum í teymi og einn
er mjög góður klippari. Ég er meira
að segja kominn með smá fyrirtæki
í kringum þetta, Stúdíó Blönduhlíð
og er að setja Facebook-síðu í gang,“
segir Tómas Nói.
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
Vatnaveiðin er
komin í gang!
Ertu klár?www.veidikortid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R