Fréttablaðið - 29.07.2017, Side 27
Atvinnuauglýsingar job.visir.isSölufulltrúar Hrannar Helgason, hrannar@365.is 512 5441
Viðar Ingi Pétursson, vip@365.is 512 5426
ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR?
Í starfinu felst afgreiðsla til viðskiptavina, dagleg
umhirða og þrif stöðvarinnar. Móttaka og leiðsögn til
viðskiptavina, mat á stærð og eðli farma auk aðstoðar
við flokkun. Einnig felst í starfinu innheimta á gjaldi
vegna gjaldskylds úrgangs, móttaka á skilagjalds-
skyldum umbúðum og greiðslu fyrir þær, auk
annars sem tilheyra starfinu.
Um vaktavinnu er að ræða og er starfshlutfall um 85%.
Reynsla af afgreiðslu- og þjónustustörfum er kostur.
Leitað er að hraustum einstaklingum sem hafa
hæfni í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund.
Áhugi og/eða þekking á umhverfismálum og gott vald
á íslensku er kostur.
Vinsamlega sækið um á www.sorpa.is/storf.
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2017.
Upplýsingar um umsóknir veitir Ragna I. Halldórsdóttir
í gegnum rafpóstinn ragna.halldorsdottir@sorpa.is.
Í starfinu felst vinna á stórum vinnuvélum, tilfærsla
og flutningur á förmum og flokkun á gólfi. Viðkomandi
þarf að sjá um þrif og umhirðu á vélum.
Um vaktavinnu er að ræða á dagvinnutíma
og er starfshlutfall 100%.
Viðkomandi þarf að hafa vinnuvélaréttindi
á gröfu og hjólaskóflu.
Góði hirðirinn óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf.
Starfið felur í sér aðstoð við viðskiptavini, afgreiðslu
á kassa, uppstillingu í verslun, gámalosun, þrif og
almenna lagervinnu.
Unnið er á tvískiptum vöktum, kl. 8:00–16:00
og kl. 10:00–18:00. Laugardagsvinna 11:30–16:00,
1–2 laugardaga í mánuði.
Starfsmaður á endurvinnslustöð Vélamaður í móttöku- og flokkunarstöð Starfsmaður í Góða hirðinum
SORPA óskar eftir góðu fólki
Innflutningur – Tollskýrslugerð
Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, óskast fyllt út á vef félagsins www.toyota.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir á netfanginu fanny@toyota.is. Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2017.
Starfssvið
• Tollafgreiðsla
• Frágangur skjala
• Almenn bókhalds- og skrifstofustörf
Vegna aukinna umsvifa leitar Toyota á Íslandi að starfsmanni í framtíðarstarf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Vinnutími er virka daga frá kl. 8–16 eða 9–17
Toyota á Íslandi er innflytjandi Toyota bifreiða, vara- og aukahluta. Starfsmenn fyrirtækisins byggja gildi sín og viðmið í starfi á The Toyota Way:
stjórnunar-, þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota. Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota á Íslandi.
Hverri áskorun er tekið fagnandi hendi og leita starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir í öllu því sem viðkemur starfsemi
fyrirtækisins og þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess.
Hæfniskröfur
• Reynsla af tollskýrslugerð skilyrði
• Reynsla af bókhaldsstörfum æskileg
• Nákvæmni í vinnubrögðum
• Rík þjónustulund
• Framúrskarandi samskiptahæfni