Fréttablaðið - 29.07.2017, Qupperneq 44
Ferðasíðan TripAdvisor útnefndi Balí í byrjun árs sem besta áfangastað í heimi á þessu ári. Margir ferðalangar hafa heillast af eyjunni og eru Íslendingar
svo sannarlega þar í flokki. Davíð
Sigurþórsson kafari, Tobba Marinós-
dóttir fjölmiðlakona og Þórhildur
Þorkelsdóttir fréttamaður segja frá
eyjunni sólríku og gefa góð ráð.
Eins og annar heimur
Davíð Sigurþórsson kafari segir Balí
henta vel bæði reyndum köfurum
og byrjendum og mun stýra fjórtán
daga ferð þangað með ferðaþjónustu-
fyrirtækinu Farvel í október. „Þetta
er eins og að ferðast í annan heim og
ógleymanleg upplifun,“ segir Davíð
um þá reynslu að kafa við strendur
Balí. „Þarna eru ægifögur kóralrif , með
þeim heilbrigðari á heimsmælikvarða,
og skrautfiskar af öllum gerðum.
Hvað finnst honum mest spenn-
andi? „Það er svo margt að sjá, fyrir
utan að þetta eru einhverjar fegurstu
slóðir sem er hægt að kafa á og aðstæð-
ur hinar þægilegustu. Þá er hægt að
kafa að sögufrægum skipsflökum.
Það er magnað að sjá stóra skötu fara
hjá og furðufiskurinn mola mola er
ógleymanleg sjón. Ég held ég geti full-
yrt að hver einasta manneskja verði
fyrir nokkurs konar hugljómun við
það að kafa. Sjá þennan hulda heim
sem við búum þó í,“ segir Davíð sem
Allir falla
fyrir Balí
Eyjan Balí hefur á örfáum árum orðið vin-
sæll áfangastaður Íslendinga. Ferðalangar
fara til Balí til að stunda jóga, kafa, fara í
göngur, slaka á og njóta matar og menningar.
Neðansjávar er margt að sjá.
Tobba Marinós ásamt Karli, manni sínum, og Regínu, dóttur þeirra, á Balí. Þau dvöldu fyrst í mánuð á Balí en eftir heimkomu vildu þau snúa aftur og fóru í tvo mánuði í viðbót.
Þórhildur Þorkelsdóttir fréttakona í Indónesíu.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
talar af reynslu því hann bjó og starf-
aði sem köfunarkennari og fararstjóri
í Suðaustur-Asíu um árabil. „Þetta er
miklu minna mál en fólk heldur og
alveg kjörið að læra að kafa við þessar
aðstæður,“ segir hann frá.
Davíð segir fjölbreytileika Balí lík-
lega það sem heilli ferðalanga mest.
„Það er framandi menningin og lífið
á Balí. Fólkið þarna er einstakt, vin-
gjarnlegt og afslappað. Náttúran er
stórkostleg og þótt Balí sé fjölsóttur
ferðastaður þá eru þarna margar
nánast ósnortnar perlur og verðlagið
frábært. Ég get nefnt sem dæmi strand-
lengjuna Amed sem er á Norðaustur-
Balí. Þar eru nokkur sjávarþorp sem
eru ekki fjölsótt af ferðamönnum,
þar er meginuppistaða ferðaþjónustu
köfun og lítið um djamm eða næturlíf.
Til þess eru aðrir staðir í nágrenninu,“
segir Davíð.
Ubud í uppáhaldi
Þorbjörg Marinósdóttir fjölmiðla-
kona, betur þekkt sem Tobba, er sér-
stök áhugakona um Balí og hefur á síð-
ustu árum orðið ráðgjafi fyrir marga
sem eru að fara þangað. Hún fór fyrst
til Balí í fæðingarorlof árið 2015 ásamt
Karli Sigurðssyni manni sínum og Reg-
ínu dóttur þeirra og áætlar að síðan þá
hafi hún veitt hátt í 200 Íslendingum
ráðgjöf sem vildu ferðast þangað.
„Við fórum fyrst í mánuð og ástæð-
an fyrir því að við völdum Balí var að
mjög margt fólk í kringum okkur sagði
Balí stórkostlegasta staðinn sem þau
höfðu komið á. Þannig að við ákváð-
um að skella okkur þangað þegar
Regína var sex mánaða,“ segir Tobba.
„Svo komum við heim og mér leið
bara alveg ömurlega þannig að við
fórum í það að koma okkur aftur út.
Við fundum okkur verkefni og litla
Þórhildur Þorkelsdóttir fréttakona ásamt vinkonu sinni í
Indónesíu. Þær ferðuðust víða á þremur vikum.
SVO KOMUM
VIÐ HEIM
OG MÉR
LEIÐ BARA
ALVEG
ÖMURLEGA
ÞANNIG AÐ
VIÐ FÓRUM
Í ÞAÐ AÐ
KOMA
OKKUR
AFTUR ÚT.
systir mín kom með til að passa svo
við gátum unnið í okkar verkefnum.
Þá vorum við í tvo mánuði. Þannig að
þegar Regína var eins árs hafði hún
dvalið þrjá mánuði á Balí.
Ég er að fara aftur í október með
skipulagða ferð og það er nánast upp-
selt í hana þannig að það er greinilega
mjög mikill áhugi á Balí,“ segir hún.
Tobba segir að ýmsu að huga ef
ferðast er til Balí, sérstaklega með
börn. Þar sé öðruvísi menning en á
Íslandi hvað börn varðar, það sé til
dæmis sjaldgæft að sjá barnakerrur
eða barnastóla þar sem Balíbúar halda
gjarnan á börnum sínum.
„Við höfum dvalið mest í Ubud sem
er listamannaþorp,“ segir Tobba, sem
hefur gríðarlega góða reynslu af þeim
stað. „Svo höfum við farið á meiri
ferðamannastaði við ströndina og það
er í eina skiptið sem við lentum í því
að vera snuðuð.
Ég er rosalega hrifin af Ubud. Ég er
ekki strandafíkill og þarna ertu með
hreinar og fallegar sundlaugar. Þarna
er æðislegur matur og ofboðslega gott
fólk og fallegir listmunir. Þar er mjög
ódýrt að vera, á besta steikarstaðnum
kostar steikin 1.100 krónur,“ segir
Tobba.
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð