Fréttablaðið - 29.07.2017, Side 45
Balí góð fyrir veskið
Hún segir gott fyrir veskið að vera
á Balí. „Það er dýrt að koma sér út
en mjög ódýrt að lifa þarna,“ segir
Tobba. Nóg sé þar um að vera. „Það
er mjög mikið um ofboðslega góð
matreiðslunámskeið, maður lærir
að elda karrírétti og alls konar hrís-
grjónarétti. Það er líka mikið um
jóga og dans, sem og ofboðslega fal-
legar gönguleiðir.“
Tobba lýsir allt öðruvísi hugar-
fari á Balí en á Íslandi. Hún sagði til
dæmis upp vinnunni á Íslandi þegar
hún sat í núðlusjoppu því henni leið
eins og hún þyrfti að vinna minna
og njóta meira. „Fólk endurmetur
oft líf sitt á Balí því þar er allt öðru-
vísi hugsunarháttur. Það skiptir ekki
máli hvað þú átt heldur hvernig þú
hagar þér og hvað þú ætlar að fá út
úr lífinu. Þarna gerirðu bara það sem
þú nennir að gera og ef það gleymist
þá bara gleymist það.“
Margir sem Tobba hefur aðstoðað
hafa farið í fæðingarorlof til Balí.
Hún bendir fólki á sem hefur áhuga
á að fara þangað að það þurfi að fara
í ákveðnar sprautur áður og því ekki
mælt með að börn fari fyrr en eftir
sex mánaða skoðun. Einnig sé snið-
ugt að taka með ákveðinn barnamat
héðan þar sem tíðkast mest að börn
borði avókadó og banana úti. Svo sé
mjög sniðugt að panta sér barnarúm
fyrirfram fyrir langa flugið út, en það
er oft í boði í stærri vélum. „Ég myndi
svo mæla með að fólk nái að redda
sér Deet spreyi út af moskítóflug-
unum.“
Að lokum bendir Tobba á að þó
að lítið mál sé að vera í lengri tíma
á Balí fái maður bara 30 daga leyfi í
einu þar. „Til að vera lengur þarftu
annaðhvort að redda þér vísa eða
fljúga til Singapúr sem tekur 1,5 tíma
og dvelja þar í nokkra daga og koma
svo aftur.“
Mælir með að heimsækja hinar
eyjarnar
Þórhildur Þorkelsdóttir, fréttakona á
Stöð 2, fór í þrjár vikur til Indónesíu
í byrjun 2016 og ferðaðist um með
vinkonu sinni. Hún var hrifin af Balí
en hvetur fólk eindregið til að skoða
aðrar eyjar Indónesíu.
„Við fórum til Balí og vorum á
nokkrum stöðum þar en fórum svo
á aðrar eyjar líka. Mig var búið að
langa til að fara til Balí mjög lengi, ég
hafði heyrt fólk tala vel um eyjuna og
veðrið og landslagið heillaði mig,“
segir Þórhildur.
Hún segir staðinn hafa algjör-
lega staðist væntingar. „Mér fannst
gaman á Balí en mér fannst hinar
eyjarnar samt meira ævintýri, sér-
staklega Lombok. Þar er brimbretta-
paradís og þar er hægt að fara í
skemmtilegar göngur og skoða
afskekkt svæði.
Eyjarnar í kring um Balí stóðu í
rauninni upp úr hjá okkur. Það er
auðvelt að fara þangað, það eru bara
nokkurra klukkustunda bátsferðir,“
segir Þórhildur.
„Ég hef ferðast dálítið um Suð-
austur-Asíu og helsti munurinn á
þeim löndum og Balí er að fólkið
er svo yndislegt á Balí. Þeir trúa
að þeir verði verðlaunaðir fyrir
hvernig þeir koma fram við náung-
ann. Það er svo gott fólk þarna og
ef maður hefur áhuga á því er auð-
velt að kynnast innfæddum,“ segir
Þórhildur.
Hún lenti í því að týna veskinu
sínu á bar á Gili-eyjum og þegar hún
kom aftur tveimur dögum seinna var
henni skilað því með öllum kortum
og peningum ofan í. „Barþjónninn
spurði mig bara hvar ég hefði verið
og sagðist vera búinn að bíða eftir
mér þar sem ég hefði týnt veskinu.“
Þórhildur segir eitt mest spenn-
andi við svæðið vera hve fjölbreytt
afþreying sé í boði. „Það er hægt að
fara í svaka jógaafslöppunarferð eða
vera mjög aktívur, fara í fjallgöngur,
alls konar göngur, í kajakróður og að
snorkla. Svo er hægt að vera í algjörri
afslöppun og með börn þarna.“
Köfun við strendur Balí þykir
magnað ævintýri.
Davíð Sigurþórsson kafari er hrifinn af köfun við Balí.
Friðsæld við ströndina.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25L A U G A R D A G U R 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7