Fréttablaðið - 29.07.2017, Page 53
Brandarar Lestrarhestur vikunnar
Aurora Nótt
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til
sumarlesturs meðal barna. Á bókasafninu skrifa þau nafn á áhuga-
verðri bók sem þau hafa lesið á bókarkjöl ásamt nafni, aldri og síma-
númeri. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf og í lok
sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
KRAKKAR
Hekla Fönn Vilhelmsdóttir er þret-
tán ára og er nýkomin af stóru hand-
boltamóti í Svíþjóð. En með hvaða
félagi æfir hún handbolta og í hvaða
flokki er hún?
Ég æfi handbolta með HK og er í
fimmta flokki.
Hvar varstu að keppa úti og á
hvaða móti? Ég var að keppa í
Gautaborg í Svíþjóð á handbolta-
mótinu Partille Cup.
Spiluðuð þið marga leiki? Við spil-
uðum sex leiki.
Hvernig gekk? Það gekk ágætlega
og ég lærði fullt af þessu.
Ertu búin að æfa handbolta lengi?
Ég er búinn að æfa í fimm ár.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
handboltann? Allt!
Er hægt að æfa handbolta úti? Já,
það er hægt en á Íslandi er alltaf
spilað inni. Á Partille Cup spiluðum
við úti á gervigrasi.
Stefnir þú á atvinnumennsku? Já,
það væri skemmtilegt að geta spilað
handbolta alla daga.
Áttu þér önnur áhugamál og þá
hver? Já, að ferðast og að fara á skíði
á veturna.
Hvar finnst þér mest gaman að
ferðast? Ég elska að ferðast um
Ísland.
Hvað langar þig mest að verða
þegar þú verður stór? Ég veit það
ekki alveg en það kemur margt til
greina.
Vildi helst
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Mér finnst eins og ég
geti gert allt sem krakkarnir í
bókunum gera.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Karíus og Baktus,
hún er um tannálfa, tannlækna
og tannskemmdir.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Bók um
álfa, hún heitir Dísa ljósálfur.
Hvernig bækur þykir þér
skemmtilegastar? Ævintýra-
bækur.
Í hvaða skóla gengur þú? Hraun-
vallaskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Já,
oftast í hverjum mánuði.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Dansa, syngja, íþróttir og fótbolti.
Aurora Nótt Alexöndrudóttir, átta
ára með verðlaunin sín.
Það er hægt að spila handbolta utan dyra, að sögn Heklu Fannar sem er ný-
komin frá Svíþjóð þar sem hún spilaði úti – á gervigrasi.
Gestur á veitingahúsi: „Þjónn. Ég
vil gjarnan fá það sem maðurinn
þarna er að borða.“
Þjónninn: „Ég skal reyna að ná disk-
inum af honum en ég er ekki viss
um að hann verði ánægður með
það.“
Gunnar: „Pabbi, er Kyrrahafið alltaf
kyrrt?“
Pabbi: „Geturðu ekki spurt að ein-
hverju gáfulegra?“
Gunnar: „Jú, hvenær dó Dauða-
hafið?“
Skúli: „Nú get ég varið mig ef ein-
hver ræðst á mig. Ég er byrjaður að
æfa karate og er þegar búinn að
brjóta múrstein með hnefanum.“
Stebbi: „Það er flott hjá þér, en er
ekki frekar sjaldgæft að múrsteinar
ráðist á fólk?“
Málfræðikennarinn var að reyna að
útskýra muninn á nútíð og þátíð
fyrir Júlíusi og vildi ekki gefast upp.
„Júlíus minn,“ sagði hann. „Hvaða
tíð er „ég borða““?
Júlíus: „Það er pottþétt máltíð.“
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
260
„Jæja þá, tvær sudoku-gátur,“
sagði Kata glottandi. „Nú er ég
orðin svo góð í að leysa sudoku-
gátur að við skulum koma í
kapp um hver verður fyrstur til
að leysa þær,“ bætti hún við.
Konráð horfði á gáturnar. „Allt
í lagi,“ sagði hann. „Til er ég.“
Lísaloppa var líka góð í að leysa
sudoku-gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við
þær báðar og þá kemur í ljós
hversu klár þú ert orðin,“ sagði
hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En
ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún. montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessar sudoku-gátur hraðar en Kata?
?
?
?
spila handbolta
alla daga
ÉG VAR AÐ KEPPA Í
GAUTABORG Í SVÍÞJÓÐ
Á HANDBOLTAMÓTINU PART-
ILLE CUP.