Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 1

Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 1
veðrið í dag NÝSKÖPUN Þörungaiðnaður á Íslandi felur í sér gríðarlega möguleika. Um mannaflsfrek- an milljarðaiðnað er að ræða ef rétt verður haldið á málum. Hins vegar vantar sárlega fjármagn til að halda áfram rannsóknum á auðlind sem liggur óhreyfð í fjörum landsins. Hörður G. Kristins- son, sviðs- og rann- sóknastjóri Matís, segir að stofnunin sé þegar búin að stunda rannsóknir á mögu- leikum þörungaiðnað- ar í ýmsu samhengi. „Þetta er gullpottur sem við sitjum á án þess að gefa honum gaum. Matís hefur rannsakað aðferðir til að vinna virk efni úr þörungum lengi og við erum komin á það stig að við gætum hafið framleiðslu.“ Hörður segir að til þess að koma iðnaði á koppinn þurfi tvennt: Fjárfesta til að nýta þá þekkingu sem er fyrir- liggjandi og hins vegar rannsókna- og þróun- arfé. „Ég vil að gerð verði nýtingaráætlun byggð á hugsun um sjálfbærni; að gert verði átak líkt og í fiskiðnaði,“ segir Hörður. Mikið er til af hráefni hér á landi og það er lítið nýtt. Núna er það aðeins Þörungaverksmiðjan sem nýtir þang og fáeinir einka- aðilar sem þurrka þang til mann- eldis. Þá hefur Bláa lónið náð eft- irtektarverðum árangri við að nýta þörunga í snyrtivörur. Hörður segir að bæta megi þör- ungum í matvæli til að gera þau næringarríkari og bragðbetri. Þörungar eru notaðir í fæðubót- arefni, eins og Frakkar og Írar hafa gert. Norðmenn sjá þörunga í samhengi við framleiðslu á líf- rænu eldsneyti. „Tækifæri okkar hérna á Íslandi eru fjölbreyttari en víðast hvar vegna hreinnar náttúru. Þangið okkar býr við erfið skilyrði og hefur þróað með sér efni sem hægt er að nota í læknisfræði- legum tilgangi. Efnin sem eru eftirsóknar- verð eru í stuttu máli í meiri styrk en ann- ars staðar. Það vekur áhuga erlendis frá en eftirspurn eftir þess- um vörum er miklum mun meiri en framboð- ið á heimsvísu,“ segir Hörður. Þegar hafa erlend fyrirtæki lýst yfir áhuga við Matís á að nýta ódýra orku til framleiðslu í stórum stíl á smáþörungum í gróðurhúsum. „Það eru ákveðnir þörungar sem eru fullir af mjög dýrum efnum og ég sé fyrir mér að innan fárra ára verðum við komin með til landsins nokkur erlend fyrirtæki í þessari fram- leiðslu, enda getum við alltaf bent á að við þessa framleiðslu sé nýtt græn orka. Við það getur ekkert annað land keppt.“ Þörungaiðnaður er mann- aflsfrekur á öllum stigum fram- leiðslu, og krefst jafnt menntaðs og ómenntaðs starfsfólks. - shá MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur skoðun 18 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Heimasíðugerð 31. maí 2012 126. tölublað 12. árgangur J ón Birgir Eiríksson er 19 ára gamall píanisti sem stundar nám við Versl-unarskóla Íslands. Jón er mikill smekkmaður en veikleiki hans er, eins og margra annarra, Converse-skór. Jón kaupir mikið af fötum á netinu þar sem honum þykir verðlagið í verslunum hér á landi allt of hátt. Hann verslar mest í Urban Outfitters og American Apparel en stíllinn hans einkennist af hettu-peysum, litríkum bolum og auðvitað Converse-skóm. Jón Birgir er ekki bara smekkheldu lík sýnt er í Gaflaraleikhúsinu. Jón byrjaði að æfa á píanó aðeins 5 ára gamall en þurfti að hætta fyrir ári vegna anna. „Ég gæti vel hugsað mér að starfa við tónlist í framtíðinni, það er þó ekkert ákveðið,“ segir Jón inntur eftir fram-tíðarplönum. „Mig langar þó að vinna í eitt ár eftir menntaskóla og ferðast.“ Í sumar ætlar Jón hins vegar að vinna á hóteli og í kosningamiðstöð Ólafs Ragn- ars Grímssonar. Jón Birgir s i KAUPIR SÉR ALLTAF CONVERSE-SKÓHÆFILEIKARÍKUR PÍANISTI Jón Birgir Eiríksson er ungur píanóleikari með Converse-áráttu. Hann hefur náð langt í tónlistinni á árinu. VERSLAR Á NETINUJón Birgir verslar mest á netinu enda finnst honum verðlagið á Ís-landi hátt. MYND/GVA ALLIR Í SANDALANAFlatir sandalar verða áberandi í sumar líkt og í fyrrasumar. Gladíatorstíllinn heldur sér enda sló hann algerlega í gegn í fyrra. Létt fylltur og glæsilegur í B, C skálum á kr. 5.500,- buxur í stíl á kr. 1.995,- GLÆSILEGUR Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga Vertu vinur okkar á Facebook Tilboðsverð frá 14.390 kr Gott úrval og fallegir litir í stærðum 36-52. 20% afsláttur af ÖLLUM vattjökkum! Verð: 7.950 kr. Fjölþrepa Teygir á hrygg og bakvöðvum Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is HEIMASÍÐUGERÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 Kynningarblað Vefumsjónarkerfi, leitarvélar, internetráðgjöf o.fl. Þegar við byrjuðum í þessum geira sáum við að það kost-aði annan handlegginn að koma sér upp og viðhalda heima- síðu. Við teljum okkur hafa breytt því og nú er á allra færi að opna heimasíðu eða netverslun,“ segir Sæþór Orri Guðjónsson, eigandi Smartmedia. „Við höfum til dæmis boðið upp á staðlaðar vefsíður, netversl- anir og bókunarsíður án stofn- gjalds. Viðskiptavinurinn getur þannig komið sér upp heimasíðu með 0 króna útborgun gegn 18 mánaða bindisamningi við okkur. Enn fremur getur viðskiptavin- urinn valið um fjölda útlita sem öll eru hönnuð af starfsmönnum Smartmedia,“ segir Sæþór. Allar staðlaðar vefsíður fyr- irtækisins fara einnig í gegn- um hönnunarferli og eru mót- aðar í takt við hugmyndir hvers viðskiptavinar. Sæþór segir net- verslanir vinsælastar af stöðluð- um síðum Smartmedia. „Við sérhönnum einnig vef- síður fyrir okkar viðskiptavini og höfum jafnframt verið mikið í því að setja upp útlit sem hafa komið frá grafískum hönnuðum og auglýsinga- og markaðsstof- ó Gaman að þróa nýjar lausnirSmartmedia er framsækið margmiðlunarfyrirtæki sem einbeitir sér að vefsíðugerð og sérlausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Smartmedia er einnig áttundi stærsti hýsingaraðilinn á .is lénum á Íslandi. Starfsmenn Smartmedia hafa yfir að búa áralangri reynsl í f íð ð Sumartilboð Fosshótela! SJÁ NÁNAR Á FOSSHOTEL.IS EX PO • w w w .e xp o. is BÓKABÚÐ FORLAGSINS - FISKISLÓÐ 39 Milljarðatugir fólgnir í þara Þörungaiðnaður gæti skilað miklum verðmætum. Efni úr þara má nýta í matvæli, fæðubótarefni og snyrtivörur. Þörungaiðnaður er mannaflsfrekur. Erlend fyrirtæki horfa til nýtingar ódýrrar orku. Tíu lönd á sex vikum Brynja Bjarnadóttir og Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir flökkuðu um Evrópu og héldu tónleika. popp 58 HINSEGIN Í SUNDI Heimsmeistaramót samkynhneigðra í sundíþróttum fer nú fram í Reykjavík og eru þátttakendur um 450 talsins. Þessi maður sýndi stórkostleg tilþrif í dýfingakeppninni sem fram fór í Sundhöllinni í Reykjavík. FRÉTTBLAÐIÐ/STEFÁN. SJÁVARÚTVEGUR Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi næstu fimm fiskveiðiár eru rúmlega 90 milljarðar króna, standist áætl- anir stjórnvalda um aflabrögð. Almennt veiðigjald verður alltaf 4,5 milljarðar á tímabilinu en sérstakt veiðigjald verður stighækkandi úr tólf upp í rúm- lega átján milljarða. Árlega kemur til ívilnun vegna kvóta- skulda útgerðarfyrirtækja fyrir 1,5 milljarða á ári, samkvæmt breytingartillögum meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis við frumvarp sjávarútvegsráðherra. Landssamband íslenskra útgerðarmanna hafnar því alfar- ið að breytingarnar skipti máli. Eftir sem áður sé um ofurskatt- lagningu að ræða sem lama muni fyrirtæki jafnt sem sveitarfélög. Búist var við því í gærkvöldi að atvinnuveganefnd myndi klára vinnu sína við frumvarpið um veiðigjöld fyrir nóttina. Breyt- ingartillögur við frumvarpið um stjórn fiskveiða verða kynntar og ræddar áfram í dag. - shá Standist áætlanir gefa veiðigjöld 15 til 21 milljarð í árlegar tekjur til 2016/17: Áætluð veiðigjöld 90 milljarðar „Tækifæri okkar hérna á Íslandi eru fjölbreyttari en víðast hvar vegna hreinnar náttúru.“ HÖRÐUR G. KRISTINSSON RANNSÓKNARSTJÓRI HJÁ MATÍS í kvöld Opið til 21 E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 6 2 7 E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 6 2 7 HÆGVIÐRI Í dag verður yfirleitt hæg austlæg eða breytileg átt. Bjartviðri en sums staðar þoka við ströndina. Hiti 10-20 stig, mildast V-til. VEÐUR 4 7 12 13 14 10 20 Hyggst veiða í 50 daga Gústaf Gústafsson heldur úti vídeóbloggi um veiði og hefur háleit markmið. veiði 54 milljarð króna áætlar ríkið að fá í tekjur af veiðigjöld- um fiskveiðiárið 2016/2017 21 EM-vonin lifir Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann frábæran sigur á Spáni í gær. sport 50

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.