Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 2
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR2
Tryggvi, getur þú núna hætt
að metast?
„Það verða aðrir að meta það. Það
er bara kalt mat.“
Tryggvi Guðmundsson, framherji ÍBV,
skoraði sitt 127. mark í efstu deild á
dögunum og á nú markametið eftir
áralangan eltingaleik.
SPURNING DAGSINS
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Grillosturinn bráðnar betur en aðrir ostar og
hentar því einstaklega vel á hamborgara eða
annan grillaðan mat.
alveg grillaður!
SKIPULAGSMÁL Hinn heimsþekkti
listamaður Santiago Sierra vill
gefa Reykjavíkurborg listaverkið
Svörtu keiluna sem er minnisvarði
um borgaralega óhlýðni. Sierra
setur það sem skilyrði að verk-
inu verði varanlega komið fyrir
á Austurvelli. Alþingi leggst gegn
málinu.
Listasafn Reykjavíkur mælir
með því að gjöf Sierra verði þegin.
Verkinu var í janúar komið fyrir
gegnt anddyri Alþingishússins
en Hafþór Yngvason safnstjóri
leggur til að framtíðarstaður
þess verði norðar á Austurvelli,
nær Landsímahúsinu. Þar myndi
Svarta keilan ekki trufla opin-
bera viðburði segir Hafþór í bréfi
til menningar- og ferðamálaráðs
Reykjavíkur.
„Gjöf Sierra er rausnarleg,“
undirstrikar Hafþór í bréfinu til
menningarráðs og bendir á að
höfundarlaunin sem Sierra gefi
eftir séu jafnvirði um 25 millj-
óna króna. Áætlað sé að það kosti
um sex hundruð þúsund að koma
Svörtu keilunni fyrir á nýjum stað.
Menningarráðið leggur til að borg-
in þiggi verkið og að það verði á
Austurvelli. Ráðið vísar málinu til
umsagnar hjá skipulagsráði þar
sem það er nú til skoðunar.
Spánverjinn Santiago Sierra er
víðkunnur listamaður sem leggur
áherslu á verk um þjóðfélagslegt
óréttlæti. Nafnið Svarta keilan
vísar til hatta sem hinn alræmdi
Spánski rannsóknarréttur lét
fórnarlömb sín bera. Verkið er úr
íslensku grágrýti,
„Austurvöllur er mikilvæg
staðsetning fyrir minnisvarðann
vegna nálægðar hans við helsta
tákn lýðræðishugtaksins á Íslandi,
Andvíg listaverki um
óhlýðni á Austurvelli
Forsætisnefnd, forseti og varaforsetar Alþingis leggjast eindregið gegn því að
listaverki um borgaralega óhlýðni sem Santiago Sierra vill gefa Reykjavíkurborg
verði komið varanlega fyrir við Alþingi. Það raski heildarmynd Austurvallar.
SVARTA KEILAN Lokahönd
lögð á verk Santiagos Sierra
um borgaralega óhlýðni
á Austurvelli 20. janúar
á þessu ári. Á verkinu er
skjöldur með tilvitnun í
yfirlýsingu franska þingsins
frá 1793. „Þegar ríkisstjórn
brýtur á rétti þegnanna, þá
er uppreisn helgasti réttur
og ófrávíkjanleg skylda
þegnanna sem og hvers
hluta þjóðarinnar.“
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁSTA RAGNHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
Forseti Alþingis
og allir varafor-
setarnir vilja
ekki Svörtu
keiluna til
frambúðar
á Austur-
velli.
NOREGUR Norski stjórnmálamaður-
inn Tove Ovesen í Strandflokkn-
um hefur fengið á sig harða gagn-
rýni síðustu daga fyrir ummæli
á Facebook-síðu sinni. Þar sagði
hún að Norðmenn ættu að hætta
að senda „Rússa, Afríkubúa, Svía
og Írani“ til að keppa í Euro vision
fyrir hönd landsins. Þátttakan
ætti að endurspegla norsk gildi og
menningararf.
Söngvarinn Tooji tók þátt í
keppninni í ár og lenti í síðasta
sæti. Hann er frá Íran en flutt-
ist ársgamall til Noregs með fjöl-
skyldu sinni. - þeb
Norskur stjórnmálamaður:
Enga útlendinga
í Eurovision
SVÍÞJÓÐ Stokkhólmsbúar eyða
meiri tíma á ári í að ferðast til og
frá vinnu með almenningssam-
göngum en þeir eyða í fríi. Þetta
eru niðurstöður nýrrar rannsóknar
í Svíþjóð.
Að meðaltali eru Stokkhólmsbú-
ar 34 mínútur hvora leið frá
úthverfum borgarinnar. Bent er á
það í rannsókninni að almennings-
samgöngur séu að meðaltali á 20
kílómetra hraða á meðan bílar á
sömu leið fari á 36 kílómetra hraða
á klukkustund.
Rannsakendurnir segja að nauð-
synlegt sé að stækka neðanjarðar-
lestakerfi borgarinnar til að stytta
ferðatíma borgaranna. - þeb
Stokkhólmsbúar á leið í vinnu:
Meiri tími í
strætó en fríið
Alþingishúsið. Austurvöllur er sá
staður þar sem óbreyttir lands-
menn koma saman til að mótmæla
þegar þeim þykir ríkisvaldið beita
þá óréttlæti,“ útskýrir safnstjór-
inn í bréfi sínu.
Hafþór leitaði umsagnar Alþing-
is vegna staðsetningar listaverks
Sierra um borgaralega óhlýðni.
„Það er afstaða forsætisnefnd-
ar, forseta og allra varaforseta,
að staðsetning listaverksins raski
heildarmynd Austurvallar og
leggst því forsætisnefnd eindreg-
ið gegn því að listaverkinu verði
komið varanlega fyrir á Austur-
velli,“ er svar Alþingis.
gar@frettabladid.is
DÓMSMÁL Guðgeir Guðmundsson,
sem stakk framkvæmdastjórann
Skúla Sigurz margsinnis á lög-
mannsstofunni Lagastoð í byrjun
mars, er sakhæfur. Þetta er nið-
urstaða geðrannsóknar, að því er
fram kom á Vísi í gær.
Þar segir að yfirlæknir á
Kleppi hafi unnið matið en að það
sé svo dómara við Héraðsdóm
Reykjavíkur að taka endanlega
ákvörðun um sakhæfið.
Guðgeir mun koma fyrir hér-
aðsdóm á morgun og taka afstöðu
til ákæruefnisins. - sh
Yfirlæknir vinnur geðmat:
Guðgeir er met-
inn sakhæfur
SAKHÆFUR Guðgeir er sakhæfur sam-
kvæmt niðurstöðu geðrannsóknar sem
hann gekkst undir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN Mitt Romney tryggði
sér endanlega útnefningu Repú-
blikanaflokksins fyrir kosning-
arnar í haust með sigri í prófkjöri
í Texas á þriðjudag. Hann hefur
nú fengið 1.191 kjörmenn, en 1.144
þarf til að hljóta útnefningu sem
fram fer á flokksþingi síðsumars.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti hringdi í Romney í gær til
að óska honum til hamingju með
áfangann. Baráttan milli þeirra
hófst fyrir nokkrum vikum eftir
að ljóst þótti í hvað stefndi og aðrir
repúblikanar drógu sig í hlé.
Obama hefur forskot á Romney í
nýlegum skoðanakönnunum.
Forsetakosningar vestanhafs:
Obama hringdi
í keppinautinn
ÚTNEFNING Í HÖFN Mitt Romney hefur
tryggt sér nægilegan fjölda kjörmanna til
að hljóta útnefningu Repúblikanaflokks-
ins fyrir forsetakosningarnar í haust.
NORDICPHOTO/AFP
UTANRÍKISMÁL Framkvæmdastjórn ESB segir Íslend-
inga hafa getað haft áhrif á stærð og umfang banka-
hrunsins og því sé ekki hægt að tala um óviðráðan-
legar aðstæður. ESB vísar, máli sínu til stuðnings, í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Munnlegur málflutningur í Icesave-málinu fer
fram 18. september fyrir EFTA-dómstólnum. Fram-
kvæmdastjórnin skilaði greinargerð í málinu fyrir
viku og tekur þar undir sjónarmið ESA, Eftirlits-
stofnunar EFTA, en hafnar rökstuðningi Íslendinga.
Íslendingar hafa haldið því fram að tilskipun ESB
um innstæðutryggingu hafi ekki gilt við þær aðstæð-
ur sem hér sköpuðust í bankahruninu. Um óviðráðan-
legar aðstæður hafi verið að ræða (force majeur).
Ekki sé hægt að ætlast til þess að lönd komi sér upp
tryggingum sem ráði við hrun heils fjármálakerfis.
Framkvæmdastjórnin hafnar þessu sjónarmiði.
„Þrátt fyrir að fjárhagskreppa heimsins hafi ekki
átt uppruna sinn á Íslandi, er það skilningur fram-
kvæmdastjórnarinnar, sem hún byggir á skýrslu
Rannsóknarnefndar Alþingis, að ástæður íslenska
bankahrunsins hafi ekki verið utanaðkomandi,“ segir
í greinargerðinni, í þýðingu blaðamanns.
Framkvæmdastjórnin vitnar til skýrslunnar um að
hið mikla umfang hruns bankanna hafi orðið vegna
skorts á fyrirbyggjandi aðgerðum í bankageiranum
og „mistaka og vanrækslu“ íslenskra stjórnvalda.
Þá er vísað til þess að ekki hafi verið gripið til ráð-
stafana þó að efnahagsreikningur bankanna hafi
vaxið í það að verða níföld þjóðarframleiðsla Íslend-
inga. Strax árið 2006 hafi verið vakin athygli á því
að bankarnir hafi vaxið Seðlabankanum yfir höfuð.
Ekkert hafi hins vegar verið gert. - kóp / Sjá síðu 10
Framkvæmdastjórn ESB segir hrun bankanna ekki hafa verið óumflýjanlegt:
Rannsóknarskýrslan notuð gegn Íslandi
MIKIL SKÝRSLA Páll Hreinsson kynnir skýrslu rannsóknarnefnd-
arinnar. ESB notar hana nú gegn Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVÍÞJÓÐ Virk handsprengja
fannst í garði í miðborg Malmö
í gærmorgun. Sprengjusér-
fræðingar sprengdu hana eftir
að svæðið í kringum hana hafði
verið rýmt.
Garðurinn tilheyrði bæði
blokk og skóla og voru á milli
fjörutíu og fimmtíu manns látin
rýma svæðið.
Lögreglan í Malmö segir að
mögulega hafi handsprengjunni
verið kastað inn í garðinn úr bíl,
og mögulega hafi hún verið þar í
nokkra daga. - þeb
Þurfti að rýma byggingar:
Virk hand-
sprengja í garði
KOSNINGAR Það var þétt setið í
fundarsal Iðnó í gærkvöldi þegar
frambjóðendurnir sjö til embættis
forseta Íslands komu fram sameig-
inlega í fyrsta sinn á borgarafundi.
Sagnfræðingurinn Guðni Th.
Jóhannesson stýrði fundinum, sem
var á vegum Stjórnarskrárfélags
Íslands. þar var sérstaklega rætt
um forsetaembættið í tengslum við
fyrirhugaðar breytingar á stjórn-
arskránni.
Innanríkisráðuneytið mun í dag
auglýsa forsetakosningarnar, sem
haldnar verða laugardaginn 30.
júní næstkomandi. - sh
Þétt setið í Iðnó þegar forsetaframbjóðendurnir sjö komu saman í fyrsta sinn:
Frambjóðendur ræddu stjórnarskrá
SAMAN Í FYRSTA SINN Frambjóðendurnir sjö, Þóra Arnórsdóttir,
Herdís Þorgeirsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Andrea Ólafs-
dóttir, Ástþór Magnússon, Ólafur Ragnar Grímsson og Hannes
Bjarnason, komu saman í pallborði í fyrsta sinn í Iðnó í gærkvöldi.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N