Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 6
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR6
ALÞINGI Heimildir til handa fjöl-
miðlanefnd og Samkeppniseftirliti
til að takmarka eignarhald á fjöl-
miðlum er að finna í nýjum fjöl-
miðlalögum sem eru til umfjöll-
unar á Alþingi. Pétur H. Blöndal,
Sjálfstæðisflokki, kallaði í gær
eftir því að upplýst yrði í hörgul
um eignarhald á 365, sem meðal
annars gefur út Fréttablaðið.
„Mér finnst að þeir sem þykj-
ast eiga fjölmiðla, það kemur
náttúrlega fram hvaða hlutafélög
eiga í hlutafélaginu, annaðhvort
upplýsi í hörgul um eignarhaldið
niður í einstaklinga eða þeir hafi
ekki atkvæðis-
rétt. Þeir hafi
hreinlega ekki
atkvæðisrétt
eða jafnvel ekki
arðsrétt í við-
komandi fjöl-
miðlafyrirtæki
til að útiloka að
einhverjir duld-
ir aðilar geti átt
þetta í skjóli einhverra fyrirtækja
á Seychelleseyjum, í Lúxemborg, á
Cayman-eyjum eða hvað þetta heit-
ir allt,“ sagði Pétur.
Hann spurði Katrínu Jakobs-
dóttur menntamálaráðherra að
því hvort hún væri sátt við að vita
ekki um eignarhaldið á 365 og
hvort gera ætti skarpari kröfu um
upplýsingar um eignarhald. „Mér
finnst mikilvægt fyrir lýðræðis-
ríki að eignarhald á fjölmiðlum sé
upplýst en ég tel hins vegar að það
þurfi að skerpa á þeim ákvæðum,“
sagði ráðherra.
Katrín sagðist vonast til þess að
allsherjar- og menntamálanefnd
lyki umfjöllun sinni um fjölmiðla-
lögin svo hægt væri að skerpa á
heimildum til að krefjast upplýs-
inga um eignarhald. - kóp
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallaði eftir upplýsingum um eignarhald 365 á Alþingi í gær:
Takmarkað eignarhald verði skoðað
PÉTUR BLÖNDAL
Hefur þú sótt tónlistarviðburð í
Hörpu?
JÁ 35%
NEI 65%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú með frjókornaofnæmi?
Segðu skoðun þína á Visir.is
„Mér finnst mikilvægt fyrir
lýðræðisríki að eignarhald á
fjölmiðlum sé upplýst en ég
tel hins vegar að það þurfi að
skerpa á þeim ákvæðum.“
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
BRETLAND, AP Þótt æðsti dómstóll
Bretlands hafi í gær staðfest
úrskurð lægra setts dómstóls um
að framselja skuli Julian Assange,
stofnanda Wikileaks, til Svíþjóð-
ar, þá dregst málið enn á langinn
á meðan Dinah Rose lögmaður
hans kynnir sér forsendur dóm-
aranna.
Nicolas Phillips forseti hæsta-
réttar hafði vart lokið máli sínu í
gær þegar Rose gerði þá athuga-
semd að úrskurður hæstaréttar
væri að stórum hluta reistur á
túlkun dómaranna á framsals-
löggjöf Evrópusambandsins frá
árinu 2003.
Rose segist aldrei hafa fengið
tækifæri til að kynna sér þessa
túlkun og áskilur sér allan rétt til
að krefjast þess að hæstiréttur
taki málið upp að nýju fari svo að
hún telji sig þurfa að gera efnis-
legar athugasemdir við túlkun
dómaranna.
Dómarar hæstaréttar viður-
kenndu að málið hefði ekki verið
einfalt viðureignar og þeir voru
reyndar ekki á einu máli því
minnihluti dómaranna féllst ekki
á túlkun meirihlutans á ákvæð-
inu.
Phillips veitti henni tveggja
vikna frest til að kynna sér betur
efni Evrópusambandslaganna,
þannig að Assange verður áfram
í stofufangelsi í Bretlandi að
minnsta kosti fram í miðjan júní.
„Þetta er mjög óvenjulegt,“
hefur AP-fréttastofan eftir Karen
Todner, lögmanni sem starfar hjá
lögmannafyrirtæki sem tekið
hefur að sér fjölmörg framsals-
mál í Bretlandi. „Ég veit ekki til
þess að þeir hafi nokkurn tímann
tekið mál upp að nýju.“
Assange gæti reyndar fengið
enn lengri frest, fari svo að hæsti-
réttur láti úrskurð sinn standa.
Þetta gæti hann með því að leita
til Mannréttindadómstóls Evr-
ópu, en Todner segir ólíklegt að
það myndi skila Assange nokkru,
nema því aðeins að hann geti sýnt
fram á að líkamlegri eða andlegri
heilsu sinni sé hætta búin í Sví-
þjóð.
Ákvæðið í Evrópusambandslög-
gjöfinni, sem deilt er um, snýst
um það hvort saksóknari í Sví-
þjóð geti talist hæfur til að gefa út
framsalskröfu því samkvæmt lög-
unum þarf „dómsvald“ til að gefa
út slíka kröfu. Sænsk yfirvöld
segja það tíðkast víða í Evrópu-
löndum að saksóknarar hafi eins
konar dómsvald á sinni könnu í
málum af þessu tagi.
Sænski saksóknarinn vill fá að
yfirheyra Assange út af ásökun-
um um kynferðisbrot gegn tveim-
ur konum. Engin ákæra hefur enn
verið gefin út á hendur honum.
gudsteinn@frettabladid.is
KJÖRKASSINN
Ég veit ekki til þess
að þeir hafi nokkurn
tímann tekið mál upp að
nýju.
KAREN TODNER
LÖGMAÐUR
Framsal Assange
bíður enn um sinn
Julian Assange verður ekki framseldur til Svíþjóðar fyrr en í fyrsta lagi um
miðjan næsta mánuð, þrátt fyrir úrskurð hæstaréttar í Bretlandi. Lögmaður
hans fékk tveggja vikna frest til að kynna sér lagatæknileg álitaefni.
FRAMSALI MÓTMÆLT Stuðningsmenn Julians Assange minna á að sannleikurinn sé
fyrsta fórnarlambið í hverju stríði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍTALÍA, AP Tveir stórir jarðskjálftar með níu daga
millibili eru mikið áfall fyrir íbúana á norðanverðri
Ítalíu, sem kemur beint ofan í óvenju erfitt efnahags-
ástand mitt í skuldakreppu evrulandanna.
Mario Monti forsætisráðherra lofar að ríkisstjórnin
beiti sér af alefli við uppbyggingu á jarðskjálftasvæð-
inu. Meðal annars hefur ríkisstjórnin þegar ákveðið
að hækka bensínverð í landinu um 0,02 sent á lítra, en
afraksturinn verður notaður til að hefja endurbygg-
ingu íbúðarhúsa, fyrirtækja og sögulegra bygginga á
svæðinu, þar á meðal margra kirkna.
Jarðskjálftinn á þriðjudag mældist 5,8 stig og kost-
aði 17 manns lífið, en níu dögum fyrr varð jarðskjálfti
upp á 6,0 stig skammt frá og kostaði hann sjö manns
lífið.
Margar þeirra bygginga sem hrundu í jarðskjálft-
anum á þriðjudag höfðu skemmst í fyrri skjálftanum
og voru því orðnar veikari fyrir.
Báðir skjálftarnir urðu á svipuðum slóðum, skammt
suður af bænum Mirandola í Modena-héraði.
Fjölmargir íbúar, sem misstu heimili sín í fyrri
skjálftanum, höfðust enn við í tjöldum þegar seinni
skjálftinn reið yfir. Áfallið er enn meira fyrir þær
sakir, að jarðskjálftahætta hefur ekki verið talin ýkja
mikil á þessu svæði. - gb
Alls létu sautján manns lífið í jarðskjálftanum á norðanverðri Ítalíu í vikunni:
Monti lofar hraðri uppbyggingu
Í RÚSTUNUM Fólk virðir fyrir sér hrunið hús í bænum Cavezzo
á norðanverðri Ítalíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP