Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 8

Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 8
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR8 KÖNNUN Þó fimm ný framboð séu nú að búa sig undir kosningar á næsta ári hafa þau ekki náð vopn- um sínum, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Tvö af nýju framboðunum, Björt framtíð og Dögun, myndu ná þrem- ur mönnum á þing hvort yrðu nið- urstöður kosninga í takti við könn- unina. Önnur myndu ekki ná sínu fólki á þing. Rétt er að geta þess að langt er til kosninga og ný framboð ekki farin að kynna stefnu og fram- bjóðendur fyrir kjósendum. Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr með mesta fylgið. Alls segjast 43,7 prósent styðja flokk- inn. Stuðningur við flokkinn hefur lítið breyst frá síðustu könnun Fréttablaðsins, sem gerð var í apríl. Þá sögðust 42,6 prósent styðja flokkinn, sem fékk 23,7 prósenta fylgi í þingkosningunum 2009. Verði niðurstöður kosninga í takt við könnun Fréttablaðsins og Stöðv- ar 2 fengi Sjálfstæðisflokkurinn 31 þingmann, nær tvöfalt fleiri en þá 16 sem flokkurinn hefur á að skipa í dag. Framsóknarflokkurinn nýtur meiri stuðnings en Samfylkingin í könnuninni. Nú segjast 15,8 prósent styðja Framsóknarflokkinn. Það er örlítið meira en í síðustu könnun, þegar 14,6 prósent sögðust styðja flokkinn, sem fékk 14,8 prósenta fylgi í síðustu kosningum. Miðað við þetta fengi flokkurinn 11 þingmenn, en er með 9 í dag. Samfylkingin mælist nú með stuðning 13,6 prósenta, og hefur lækkað úr 14,8 prósentum í síðustu könnun. Fallið er þó mun meira frá kosningunum 2009 þegar 29,8 pró- sent studdu flokkinn. Færu kosningar á sama veg fengi Samfylkingin níu þingmenn, en er með 20 í dag. Hinn stjórnarflokkurinn, Vinstri græn, myndi heldur ekki ríða feit- um hesti frá kosningum ef kosið HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 23. OG 24. MAÍ 2012 Fylgi stjórnmálaflokkanna Kosn- ingar 25.4. 2009 28.7. 2009 15.10. 2009 7.1. 2010 18.3. 2010 23.9. 2010 19.1. 2011 24.2. 2011 5. og 6.4. 2011 8.9. 2011 7. og 8.12. 2011 8. og 9.2. 2012 11. og 12.4. 2012 23. og 24.5. 2012 50 40 30 20 10 0 Samstaða 43,7% ■ Björt framtíð 5,3% ■ Samstaða 5,1% ■ Dögun 2,7% ■ Hægri-grænir 3,9% ■ Lýðfrelsisflokkurinn 0,0% 15,8% 13,6% 9,2% Ný framboð ná ekki vopnum Sjálfstæðisflokkurinn mælist með langmest fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stjórnar- flokkarnir eru samanlagt með stuðning tæps fjórðungs kjósenda. Ný framboð ná alls sex mönnum á þing. PAKISTAN, AP Shakil Afridi, pak- istanski læknirinn sem aðstoðaði bandarísku leyniþjónustuna við að hafa uppi á Osama bin Laden, hlaut ekki 33 ára fangelsisdóm fyrir það heldur fyrir tengsl sín við hryðjuverkasamtök í Pakist- an. Þetta kemur fram í úrskurði dómstólsins, sem ekki birtist opinberlega fyrr en skýrt var frá efnisatriðum hans í pakistanska dagblaðinu Dawn í gær. Þetta gerir væntanlega það að verkum, að Bandaríkjamenn eigi erfiðara með að mótmæla dómn- um, sem upphaflega vakti hörð viðbrögð. Tengsl Pakistans og Bandaríkjanna hafa verið erfið undanfarið, ekki aðeins vegna aðgerða bandarískra sérsveitar- manna á síðasta ári í borginni Abottabad, þar sem ráðist var inn á heimili bin Ladens og hann drepinn, heldur einnig vegna fjöl- margra árása bandaríska hers- ins í Pakistan sem sumar hverjar hafa kostað almenna borgara og pakistanska hermenn lífið. Lögmenn og ættingjar Afridis sögðu fyrr í vikunni að hann væri saklaus og dómnum yrði áfrýjað en sögðust þá ekki hafa séð sjálf- an dómsúrskurðinn. Afridi var um tíma héraðslækn- ir í Khyber þar sem uppreisnarfor- inginn Mangal Bagh og liðsmenn hans njóta víðtæks stuðnings meðal almennings en hafa átt í átökum við pakistanska herinn. Það var dómstóll í Khyber sem dæmdi Afridi fyrir aðstoð við sam- tök Mangal Baghs. - gb Mál læknisins sem bar kennsl á Osama bin Laden verður æ flóknara: Fékk 33 ára dóm fyrir hryðjuverkatengsl ÆTTINGJAR OG LÖGMENN AFRIDIS Höfðu ekki séð dómsúrskurðinn þegar þau mótmæltu dómnum fyrr í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP HEILSA Rúmur fjórðungur ESB-búa yfir 15 ára aldri, 28%, reykir tóbak að staðaldri, og 70% þeirra sem reykja taka upp þann sið fyrir 18 ára aldur. Þetta kemur fram í nýrri könnun Eurobarometer, en þetta er svipað hlutfall og var í sömu könn- un árið 2009. Um helmingur aðspurðra hefur einhvern tíma reykt og um 60% reykingamanna hefur reynt að hætta. Framkvæmdastjóri heilsuvernd- armála hjá ESB segir í yfirlýsingu að þetta séu sannarlega slæm tíð- indi, en þó sé ánægjulegt að sjá að almennur stuðningur sé við hertar reglur um sölu og markaðssetn- ingu á tóbaki. - þj Könnun á reykingum í ESB: Rúmur fjórð- ungur reykir Lokað í laug vegna móts Fram til 2. júní verða takmarkanir á opnun Sundhallar Reykjavíkur vegna sundmóts. Opið verður í potta og sturtur allan daginn. Í dag er lokað milli 11 og 17, á morgun milli 16 og 18 og á laugardag er laugin lokuð frá 13 til 15. REYKJAVÍK SVÍÞJÓÐ 72 ára gömul norsk kona hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa beitt eigin- mann sinn ofbeldi í tugi ára. Maðurinn lést í fyrra. Undirréttur í norðurhluta Nor- egs komst að þeirri niðurstöðu að konan hefði beitt manninn andlegu og líkamlegu ofbeldi frá 1969 til 2010. Börn hjónanna báru vitni um að móðir þeirra hefði oft ráðist á föður þeirra. Málið var fyrst rannsakað eftir að konan sakaði manninn um ofbeldi. Þegar rannsóknin hófst kom hins vegar í ljós að málinu var öfugt farið. - þeb Beitti mann heimilisofbeldi: 72 ára í fangelsi fyrir ofbeldi 1. Hversu stór hluti sjúkrabíla hér á landi stenst ekki kröfur velferðar- ráðuneytisins um gæði og öryggi? 2. Hvaða heimsmeistaramót stendur yfir í Reykjavík? 3. Með hvaða liði spilar fótbolta- konan Fanndís Friðriksdóttir? SVÖR: Frí landslagsráðgjöf til 1. júní BM Vallá ehf. Breiðhöfða 3 110 Reykjavík Komdu til okkar og fáðu hugmyndir fyrir garðinn þ nn. Sími: 412 5050 sala@bmvalla.is b m va ll a .is Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, landslagsarkitekt okkar, veitir viðskiptavinum ráðgjöf og aðstoð við mótun hugmynda og útfærslu. Ráðgjöfin er án endurgjalds til 1. júní nk. Eftir 1. júní eru greiddar 5.000 kr. fyrir ráðgjö Ráðgjöfin fæst endurgreidd ef vörur til fram eru keyptar hjá BM Vallá. Hafðu samband við sölufulltrúa okkar og pantaðu tíma. i fin kv a. æmdanna Hringt var í 1.326 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 23. maí og fimmtudaginn 24. maí. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Alls tóku 60,8 prósent í afstöðu til spurningarinnar. Aðferðafræðin 1. Um helmingur 2. Heimsmeistaramót samkynhneigðra í sundgreinum 3. Breiðabliki yrði nú. Alls sögðust 9,2 prósent styðja flokkinn í könnun Frétta- blaðsins og Stöðvar 2. Það eru held- ur fleiri en í síðustu könnun, þegar 8,6 prósent sögðust styðja flokkinn, en langt undir 21,7 prósenta kjör- fylgi. Vinstri græn fengju sex þing- menn, helminginn af þeim tólf sem flokkurinn er með í dag, yrði þetta niðurstaða kosninga. Björt framtíð nýtur mests fylgis af nýjum framboðum sem standa kjósendum til boða. Um 5,3 pró- sent segjast myndu kjósa flokkinn, heldur færri en í apríl, þegar 7,2 prósent studdu hann. Þetta myndi skila flokknum þremur þingsætum í kosningum. Samstaða fengi svipað fylgi, 5,1 prósent, og sama fjölda þing- manna. Stuðningur við flokkinn er svipaður og í apríl, þegar 6 prósent sögðust styðja flokkinn. Aðrir flokkar myndu ekki ná mönnum á þing. Hægri-græn- ir njóta samkvæmt könnuninni stuðnings 3,9 prósenta og 2,7 pró- sent myndu kjósa Dögun. Enginn af þeim 800 sem tóku þátt í könn- uninni ætlaði að kjósa Lýðfrelsis- flokkinn. brjann@frettabladid.is Líklegt verður að teljast að fylgi Sjálf- stæðisflokksins mælist hærra en það er í raun og veru í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, og sé í raun um 40 prósent, ekki nærri 44 prósent eins og könnunin sýnir. Þetta má sjá sé rýnt í svör þeirra sem þátt taka í könnuninni. Í könnuninni er spurt í þrígang. Þeir sem segjast óvissir eru spurðir tvisvar til við- bótar, eins og fram kemur hér til hliðar. Séu svör þeirra sem sögðust óvissir í fyrstu spurningunni en tóku síðar afstöðu til flokks skoðuð sést að þeir eru mun ólíklegri til að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn en aðra flokka. Sú aðferðafræði sem notuð er við útreikning á niðurstöðum könnunarinn- ar er hönnuð af sérfræðingum Háskóla Íslands. Hún gerir þó ekki ráð fyrir því að svo stór hluti þeirra sem þátt taka, um 40 prósent, gefi ekki upp afstöðu til eins flokks. Með því að greina frekar afstöðu þeirra sem sögðust óákveðnir í fyrstu spurningunni má leiða að því líkur að fylgi Framsóknarflokksins sé um 16 prósent og stuðningur við Sjálfstæðis- flokkinn um 40 prósent. Þá er líklegt að tæplega 16 prósent styðji Sam- fylkinguna og 10 prósent Vinstri græn. Fylgi við Bjarta framtíð er samkvæmt þessu um 6 prósent og Samstaða nýtur 5 prósenta stuðnings. Þá myndu sam- kvæmt þessu 2,7 prósent styðja Dögun og 3,9 prósent Hægri græna. Fylgi Sjálfstæðis- flokksins ofmetið? VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.