Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 10
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR10
FRÉTTASKÝRING: Kostnaður við mismunandi Icesave-samninga
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Heildarskuldir og endurheimtur á gengi krónunnar 22. apríl 2009
Heildarforgangskröfur 1.323 1.323 1.323 1.323
Innlán einstaklinga að meðtöldum vaxtakröfum 1.174 1.174 1.174 1.174
Heildsöluinnlán 146 146 146 146
Peningamarkaðsreikningar 4 4 4 4
Heildarendurheimtur 1.389 1.389 1.389 1.389
Skuldir og endurheimtur TIF á gengi krónunnar 7. des. 2011
Skuldbinding TIF* 633 633 633 651
Endurheimtur TIF úr búi LBI 651 651 651 651
Endurheimtuhlutfall 110% 103% 103% 100%
Kostnaður ríkissjóðs á gengi krónunnar 7. des. 2011
Eftirstöðvar af höfuðstól að loknum endurheimtum -18 -18 -18 0
Heildarvaxtakostnaður 291 230 168 79
Eign TIF -21 -21 -21 -21
Hreinn kostnaður ríkissjóðs 253 191 129 59
Hreinn kostnaður ríkissjóðs, núvirtur* 220 124 84 47
Hreinn kostnaður ríkissjóðs, núvirtur** 13,40% 7,60% 5,10% 2,80%
*(á 6% vöxtum) **(á 6% vöxtum) % af VLF 2011
ICESAVE - kostnaðarmat
(ma.kr.)
Icesave I Icesave
II
Icesave
II B
Icesave
III
MoU
2008
Samning-
ur 2009
Tillaga að
samningi
2009
Samning-
ur 2011
6,7%
vextir
5,55%
vextir
5,55%
vextir +
vaxtahlé
3% og
3,3%
vextir
10 ára lán 15 ára lán 15 ára lán Sveigjan-
legt
Hreinn kostnaður vegna Icesave
ásamt öðrum útgjöldum ríkissjóðs
Minnisblað
2008
Skuldabréf
til styrk-
ingar SÍ
Icesave Ia Icesave Ib Fjármagns-
kostnaður
ríkissjóðs
Icesave III
15
10
5
0
16,9%
14,7%
10,6% 10,6%
13,0%
8,4%
8,9%
5,8%
4,2% 3,9%4,2% 3,9%
%
a
f
VL
F
Hefðu Íslendingar sam-
þykkt Icesave-samningana
í seinni þjóðaratkvæða-
greiðslunni hefði hreinn
kostnaður ríkissjóðs orðið
59 milljarðar að mati fjár-
málaráðuneytisins. Allra
versta niðurstaða dómsmáls
fyrir EFTA-dómstólnum
gæti þýtt að minnsta kosti
1.300 milljarða kostnað.
Fjármálaráðuneytið hefur tekið
saman upplýsingar um hvaða
kostnaður hefði fallið á ríkissjóð
við fjórar mismunandi niðurstöð-
ur eða lausnir á Icesave-deilunni.
Greiningin var unnin fyrir Svavar
Gestsson sem fór fyrir samninga-
nefnd Íslands í samningum um
málið árið 2009.
Minnisblað
Ráðuneytið skoðar kostnað við
fjórar mögulegar lausnir. Í fyrsta
lagi áritað minnisblað (Memor-
andum of Understanding) sem
Árni Mathiesen, þáverandi fjár-
málaráðherra, ritaði undir í októ-
ber 2008. Það fól í sér ábyrgð
íslenskra stjórnvalda á tryggðum
lágmarksinnstæðum, um 670 millj-
arða króna. Vaxtagreiðslur skyldu
hefjast í ársbyrjun 2009. Engar
afborganir yrðu fyrstu árin, en þá
tækju við jafnar afborganir í 7 ár.
6,7% vextir reiknast frá ársbyrjun
2009 til 2019.
Icesave Ia
Í öðru lagi Icesave-samningar
Svavarsnefndarinnar frá 2009.
Ólíkt minnisblaðinu var nú gert
ráð fyrir að endurheimtur úr búi
Landsbankans rynnu til afborgana
af höfuðstól skuldbindingarinnar
jafnóðum og greitt væri úr búinu.
Engar afborganir né vaxta-
greiðslur yrðu fyrstu 7 árin, en
næstu 8 árin, frá miðju ári 2016,
yrðu jafnar afborganir og vaxta-
greiðslur. Miðað var við 5,55% frá
ársbyrjun 2009 til 2024.
Icesave Ib
Í þriðja lagi tilboð Breta og Hol-
lendinga um breytingu á samn-
ingnum, en í því var gert ráð fyrir
vaxtahléi út árið 2009. Vextir yrðu
því reiknaðir frá ársbyrjun 2010 í
stað ársbyrjun 2009. Að öðru leyti
eru forsendur þær sömu og við
Icesave Ia. Þessi niðurstaða var
felld í fyrri þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni um Icesave.
Iceasave III
Að síðustu mat ráðuneytið kostn-
að af Icesave-samningnum Buch-
heit-nefndarinnar, sem gerðir voru
árið 2010. Þar var einnig gert ráð
fyrir að endurheimtur rynnu til
afborgana af höfuðstól jafnóðum
og greitt yrði úr þrotabúinu.
Gert var ráð fyrir að afborg-
anir hæfust 2016, en vextir yrðu
greiddir frá og með 2011. Þá var
einnig gert ráð fyrir greiðslu það
ár á uppsöfnuðum vöxtum áranna
2009 og 2010. Vaxtahlé yrði fyrstu
þrjá ársfjórðunga 2009 og vext-
irnir, að meðaltali 3,2%, reiknuð-
ust frá byrjun október 2009 þar til
uppgjöri yrði að fullu lokið.
Greining kostnaðar
Fjármálaráðuneytið greinir eftir-
farandi þætti varðandi kostnað við
hverja lausn fyrir sig:
■ Höfuðstól skuldbindingarinnar
gagnvart Bretum og Hollending-
um og afborganir samkvæmt því
sem umsamið er í hverju tilviki.
■ Áfallna vexti samkvæmt vaxta-
prósentu samningsins og ákvæð-
um um vaxtahlé.
■ Endurheimtur upp í forgangs-
kröfur í þrotabúið samkvæmt upp-
lýsingum frá slitastjórn.
■ Þá fjárhæð sem Tryggingarsjóð-
ur innstæðueigenda hefði greitt út
í forgangskröfur.
Mikið undir
Íslendingum hefur verið stefnt
fyrir EFTA-dómstólinn vegna
málsins. Erfitt er að meta mögu-
legan kostnað, en allra versta nið-
urstaða væri sú að Íslendingar
yrðu dæmdir sekir fyrir mismun-
un samkvæmt þjóðerni. Þá þyrfti
að greiða innstæður að fullu, um
1.300 milljarða króna, væntanlega
með vöxtum.
Icesave III hefði kostað
ríkissjóð 59 milljarða
■ Ónúvirt
■ Núvirt
Við tjöldum því besta
Svefnpoki Nitestar 250 -
þæ ig ndamörk +4°
kr. 10.995 Tilboð
Tigris 600 XL - 6 manna tjald,
gott fortjald, 210cm lofthæð,
4000mm vatnsheldni, eldvarinn dúkur
kr. 112.995 Tilboð
Odyssey 400 - 4 manna tjald,
gott fortjald, 200cm lofthæð,
3000mm vatnsheldni,eldvarinn dúkur
kr. 56.995 Tilboð
Icarus 5 00 - 5 manna tjald,
gott fortjald,195cm lofthæð,
3000mm vatnsheldni,eldvarinn dúkur
kr. 74 9. 95 Tilboð
Beta 350 - 3ja manna tjald,
gott fortjald, 140cm lofthæð,
3000mm vatnsheldni, eldvarinn dúkur
kr. 30.995 Tilboð
Borð og stólar
borð 60x80cm
einnig til 60x120cm
Vindsængur og
í miklu úrvali
dýnur