Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 12
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR12 12 hagur heimilanna KRÓNUR var meðalverðið á kílói af tekexi í maí samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Verðið er næstum það sama og í maí 2006, sem var 510 krónur. Taka á tillit til líkams- þyngdar og hlaupastíls þegar hlaupaskór eru keypt- ir. Skaði getur hlotist af ef hlaupaskórnir eru orðnir of gamlir eða eru ekki réttrar gerðar. Nokkurra mínútna hlaup í sérstöku greiningar- tæki í verslun gefur ekki endilega til kynna hvort þörf er á innan- eða utanfót- arstuðningi. Norski sjúkraþjálfarinn Hege Godheim, sem hefur sérhæft sig í fótameiðslum, segir í viðtali á vef viðskiptablaðsins Dagens Næringsliv að ein af algengustu ástæðunum fyrir hlaupameiðslum sé vegna þess að keyptir eru skór sem ekki passa. Godheim dregur í efa ágæti þess að kaupa skó eftir nokkurra mínútna hlaup í greiningartæki í verslun. Hún segir að þá hlaupi viðskiptavinurinn aðeins í nokkr- ar mínútur. Það sé auðvitað betra en ekkert. Hins vegar sýni bæði rannsóknir og reynslan að röng lending komi betur í ljós eftir hálfrar klukkustundar hlaup eða þegar menn eru farnir að þreyt- ast. Sjúkraþjálfarinn segir það mikilvægt að velja skó eftir eigin hlaupastíl en ekki eftir því hvern- ig menn vilji hlaupa. Það geti verið erfitt og tímafrekt að breyta um stíl. „Maður á að segja frá því í versluninni ef maður er ekki léttur á fæti og verður þreytt- ur eftir 15 til 20 mínútna hlaup,“ segir hún. Jafnframt sé nauðsyn- legt að greina afgreiðslumanni frá þeim meiðslum sem hlotist hafa við hlaup. Við kaupin eigi að hafa í huga hvort hlaupið sé á malbiki eða möl, hver líkamsþyngdin er, hvernig lendingin er eftir helm- ing vegalengdarinnar, hversu oft er hlaupið og hversu langt. Á fréttavef norska ríkisút- varpsins bendir Joakim Særheim sjúkraþjálfari á að mikilvægt sé að reima hlaupaskóna rétt til þess að koma í veg fyrir meiðsl. Reima eigi skóna fast en ekki þannig að það sé óþægilegt. Einnig eigi að reima skóna eins hátt upp á ristina og mögulegt er þar sem það dregur úr álaginu á fótinn. Tor Fauske, framkvæmdastjóri verslanakeðjunnar Löplabbet, ráðleggur þeim sem ætla að kaupa nýja hlaupaskó að taka þá gömlu með sér í verslunina. Þeir geti gefið vísbendingu um hlaupastíl- inn. Hann bætir því við að skórn- ir eigi að vera þægilegir strax í fyrsta skokktúrnum. Godheim segir ekki skynsam- legt að kaupa hlaupaskó á laugar- dögum þar sem þá sé oft við störf afleysingafólk sem mögulega hafi ekki jafnmikla reynslu og þekk- ingu og aðrir starfsmenn. ibs@frettabladid.is Skór sem ekki passa valda meiðslum SKOKKAÐ Þeir sem hlaupa oftar en þrisvar í viku ættu að eiga fleiri en eitt par af hlaupaskóm til þess að þeir endist betur, að því er segir á vef verslanakeðjunnar Löplabbet. NORDICPHOTOS/GETTY Munnskol inniheldur oft bakteríu- drepandi efni og séu þau tekin inn í of miklum mæli getur myndast þol gegn sýklalyfjum. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Anne Scheie, prófessors og tannlæknis, sem greint er frá á vef danska ríkisútvarpsins. Scheie varar við notkun munnskols. Hún segir að heilbrigðir einstaklingar þurfi ekki að nota slíka vöru. Þeir eigi í staðinn að læra að nota tannbursta og tannþráð rétt. ■ Heilsa Munnskol getur skaðað heilsuna GÓÐ HÚSRÁÐ Geymið salatið í eldhúspappír Salat sem er selt í pokum blotnar fljótt og verður ólyst- ugt sé það geymt í umbúð- unum. Til þess að koma í veg fyrir slíkt er gott að geyma sal- atið í eldhúspappír í íláti. Örk af pappírnum er sett neðst í ílátið og salat ofan á. Síðan er önnur örk af pappír sett ofan á og salat þar ofan á. Með þessari geymsluaðferð fer vökvinn í salatinu í pappírinn og salatið helst betur ferskt. 515 Bestu kaup sem Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi Í svörtum fötum Eurovision-fari, hefur gert um ævina eru tveir Skoda Octavia Diesel- bílar. Spurður hvers vegna segir hann þá einfaldlega framleiða eldsneyti. „Þeir eyða ekki eldsneyti, það þarf að tappa af þeim!“ Þessir bílar eru fjölskyldubíl- arnir á heimili Jónsa og hafa reynst þeim mjög vel. „Þetta eru alveg dýrindis bifreiðar, bila aldrei og „lúkka“ æðislega.“ Jónsi fer að hlæja þegar hann er spurður hver hans verstu kaup séu. „Ég held að það hafi verið BMW-bifreið. Sú gerði sér lítið fyrir og stútaði gírkassa sem kostaði helminginn af virði bílsins.“ Þann bíl átti Jónsi í tvö ár áður en hann seldi hann og keypti Skoda Octavia. „Og í dag á ég tvo þannig.“ NEYTANDINN: JÓN JÓSEP SNÆBJÖRNSSON SÖNGVARI Skoda Octavia bifreið Jónsa framleiðir eldsneyti Aðalfundur Klakka ehf. 8. júní 2012 Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn föstudaginn 8. júní 2012 að Ármúla 3, 5. hæð, Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 13:00. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2011. 2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2011 ásamt skýrslu endur- skoðenda lagður fram til staðfestingar. Ákvörðun um greiðslu arðs og jöfnun taps fyrir síðastliðið reikningsár. 3. Kosning stjórnar. 4. Kosning endurskoðunarfélags. 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 6. Tillaga stjórnar um að samþykkja starfskjarastefnu Klakka ehf. 7. Önnur mál. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar félagsins skal berast skriflega til stjórnar eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á aðalfundardegi frá kl. 12:30 á fundarstað. Reykjavík, 31. maí 2012. Stjórn Klakka ehf. Klakki ehf. Síðumúla 28 108 Reykjavík Sími 550 8600 www.klakki.is Samfélagsstyrkir Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Landsbankinn veitir 10 milljónir króna í samfélagsstyrki, til 20 verkefna í fyrri úthlutun fyrir árið 2012. Nánari upplýsingar á landsbankinn.is. Umsóknarfrestur til 4. júní.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.