Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 31. maí 2012 13 LAUGAVEGUR 77 Byggingarreitur er á baklóðinni. SKIPULAGSMÁL Óskað hefur verið eftir heimild til að byggja hótel á Laugavegi 77, þar sem meðal annars Landsbankinn hefur verið til húsa um árabil. Í umsögn skipulagsstjóra Reykjavíkur um erindið er bent á að í deiliskipulagi fyrir nýbygg- ingu á umræddri lóð séu skilmál- ar um verslanir, þjónustustarf- semi, skrifstofur og íbúðir. Lagt er til að skilmálum verði breytt þannig að hótel eða íbúðir verði á efri hæðum en verslanir og slíkt á jarðhæðinni í væntan- legri nýbyggingu. - gar Breytingar á Laugavegi 77: Vilja reisa hótel á bankabaklóð DANMÖRK Danskur maður er nú fyrir dómi í Óðinsvéum ákærð- ur fyrir að aðstoða helsjúkan föður sinn við að binda enda á líf sitt. Í dönskum miðlum segir að slík dómsmál séu afar fáheyrð, en fyrir fram er búist við því að sonurinn muni játa sekt. Hann er kærður fyrir að hafa blandað 94 morfíntöflum út í jógúrt sem faðir hans lagði sér svo til munns og lést í fram- haldinu. Enn er ósannað með ótvíræðum hætti að lyfin hafi dregið föðurinn til dauða. Síðasta álíka mál kom upp árið 1993 þegar maður fékk hálfs árs skilorðsbundið fang- elsi fyrir að aðstoða foreldra sína við að stytta sér aldur. - þj Dani fyrir rétti í Óðinsvéum: Hjálpaði föður við sjálfsmorð ATVINNULÍF Fyrstu fjóra mánuði ársins voru 407 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta, sem er fækkun um 23 prósent frá árinu 2011. Í apríl urðu 54 fyrirtæki gjaldþrota, flest þeirra í bygg- ingastarfsemi og mannvirkja- gerð. Þetta kemur fram í gögn- um Hagstofu Íslands. Í apríl voru skráð 126 ný einkahlutafélög og er það örlít- ið minna en í sama mánuði í fyrra þegar 145 ný einkahluta- félög voru skráð. Á fyrstu fjór- um mánuðum ársins hafa hins vegar verið nýskráð jafn mörg félög og í fyrra, eða 586. - kóp Nýskráning stendur í stað: Fjórðungi færri gjaldþrot ÞVOTTAEFNI FYRIR HVERT TILEFNI STÓRÞVOTTUR FRAMUNDAN? HAFÐU ÞAÐ FÍNT NÚ ER ÞAÐ SVART Ekkert jafnast á við Neutral Storvask til að komast til botns í þvottakörfunni. Hentar fyrir þvott af öllu tagi. Silkihönskum, ullarteppum og dúnúlpum hæfir 30 til 40 gráðu þvottur í höndum eða vél með Neutral Uld- og finvask. Neutral Sort vask varðveitir svartan glæsileikann svo hann tapi ekki lit sínum. Upplitað er bara ekki í tísku þessa dagana. Fyrir alla muni, ekki láta þennan lenda í hvíta þvottinum. Létt er að flokka litríka sokka. NÚ ER ÞAÐ HVÍTT HALTU LÍFI Í LITUNUM Ensímin í Neutral Hvid vask losa þig við erfiða bletti og óhreinindi. Það skilar sér í björtum og hvítum þvotti. Fljótandi Neutral leysist vel upp og hentar því líka vel í handþvottinn. Settu svolítið af Neutral Color í hólfið og njóttu þess að fá þvott inn jafn litríkan úr vélinni aftur. Þetta er kröftugt, þú notar bara lítið af dufti í hverja vél. Fljótandi Neutral Color endist líka og endist. Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum frá Neutral Dönsku astma- og ofnæmissamtökin ÍS LE N SK A S IA .I S N AT 5 99 44 0 5. 20 12 NÁNARI UPPLÝSINGAR Á NEUTRAL.IS DÓMSMÁL Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttardómari hyggst stefna Þorvaldi Gylfasyni fyrir dóm vegna greinar sem hann skrifaði og birti í ritröð háskólans í München í Þýskalandi í mars. Jón Steinar telur að Þorvaldur hafi með henni vegið að æru hans. Jón Steinar ritaði grein um málið í Morgunblaðið í gær. Það snýst um greinina From Collapse to Constitu- tion – The Case of Iceland, þar sem Þorvaldur fjallar meðal annars um þá ákvörðun Hæstaréttar að ógilda kosninguna til stjórnlagaþings. Í greininni segir Þorvaldur að orðrómur gangi meðal íslenskra lögfræðinga um að einn af dóm- urum Hæstaréttar, sem hafi verið staðfastur flokksmaður áður en hann var skipaður dómari og þá tekinn fram yfir þrjá hæfari umsækjendur, hafi lagt drög að einni af kærunum sem Hæstirétt- ur, með sama dómara í broddi fylk- ingar, tók til meðferðar og endaði með ógildingu kosninganna. „Það er ljóst af textanum að þessu skeyti prófessorsins er beint að mér,“ skrifar Jón Steinar. Fram- ferðið sem hann sé sakaður um sé áreiðanlega refsivert og hlyti að varða embættismissi. Hann neyð- ist því til að höfða meiðyrðamál á hendur Þorvaldi og muni krefjast ítrustu refsingar og miskabóta. - sh Hæstaréttardómarinn Jón Steinar Gunnlaugsson ósáttur við grein í Þýskalandi: Stefnir Þorvaldi fyrir meiðyrði JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON ÞORVALDUR GYLFASON STJÓRNSÝSLA 4.244 íslensk vega- bréf voru gefin út af Þjóðskrá Íslands í aprílmánuði. Til saman- burðar voru gefin út 3.882 vega- bréf í apríl 2011. Útgefnum vega- bréfum fjölgar því um rúm níu prósent milli ára. Þessi aukning skýrist meðal annars af því að hinn 23. maí 2006 styttist gildistími almennra vegabréfa úr tíu árum í fimm þegar örgjörva var bætt í öll nýútgefin vegabréf. Í maí á síðasta ári runnu fyrstu vegabréfin með örgjörva út. - þj Þjóðskrá Íslands: Fleiri vegabréf útgefin í ár HLÉBARÐI ÚR SJÁLFHELDU Þessi hlé- barði átti ekki í vandræðum með að fara upp stiga, sem hafði verið settur niður til hans svo hann kæmist upp úr vatnstanki á Indlandi. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.