Fréttablaðið - 31.05.2012, Side 16

Fréttablaðið - 31.05.2012, Side 16
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR16 Umsjón: nánar á visir.is R eginn hefur verið starfandi frá árinu 2009. Helgi segir félagið hafa verið stofnað til að taka við fasteignum og fasteignafélögum sem Landsbank- inn eignaðist í kjölfar fullnustu- aðgerða. „Fyrsti stjórnarformað- ur Regins, Ásmundur Stefánsson, markaði mjög skýra sýn fyrir félagið í upphafi. Það átti að rekast algjörlega á viðskiptalegum for- sendum og vera aðgreint frá bank- anum. Þessi sýn kom sér vel þegar við vorum að undirbúa skráningu félagsins. Hluti af því ferli var að aðlaga eignasafnið þannig að það hentaði skráningu. Það höfum við til dæmis gert með því að selja allar eignir sem teljast þróunar- og uppbyggingareignir aftur til dótt- urfélags í eigu Landsbankans. Nú eru einungis vel tekjugefandi eign- ir inni í félaginu. Það er strax hæft til að skila góðum arði og hagnaði af leigutekjum.“ Skiptist í þrjár einingar Reginn skiptist í þrjár einingar: Smáralind, Egilshöll og önnur atvinnuhúsnæði. Að sögn Helga er Smáralind mjög gott félag með 98 leigutaka og 98 prósent útleigu- hlutfall. „Þar er langstærsti leigu- takinn Hagar, skráð félag sem er ráðandi á sínum markaði. Við eigum í mjög góðu samstarfi við Haga. Við höfum auk þess lagt mikla áherslu á að styrkja Smáralind og réðumst í markaðsátak í fyrra til að styrkja félagið með nýjum leigutökum, sem tókst afar vel. Við ætlum að halda því áfram, að stækka inn á við. Við ætlum ekki að fara að byggja við, enda er búið að byggja nóg af verslunar- fermetrum á Íslandi fyrir næstu árin.“ Næststærsta eignin í safni Reg- ins er Egilshöllin. Þar er stærsti leigutakinn Reykjavíkurborg sem leigir hluta hússins undir alls kyns íþróttastarfsemi, dag- heimili fyrir fatlaða og ýmis- legt annað. Auk þess leigja Sam- bíóin, Keiluhöllin og World Class aðstöðu í Egilshöllinni. Helgi segir að útleiguhlutfallið í Egils- höll hafi verið núll prósent þegar eignin var færð inn í Regin. Nú er það 100 prósent. „Þarna er 30 þúsund manna byggð í næsta nágrenni, nánast öll í hjólafæri. Við erum núna að fá 3.500 manns inn í húsið daglega.“ Þýðir ekki að þenja sig Þriðja stoðin í Regin er annað blandað atvinnuhúsnæði. Í þeirri stoð er útleiguhlutfallið lægra en í hinum og segir Helgi það skýrast að mestu af því að þar eru nýjar eignir sem félagið hefur enn ekki komið í útleigu. Hann telur félagið hafa náð gríðarlegum árangri við að koma eignum í útleigu, sérstak- lega í samstarfi við leigutaka. „Í dag ræðst enginn í fjárfestingar nema að hafa tryggt sér tekjur. Það er þannig með allt okkar húsnæði. Við ráðumst aldrei í fjárfestingar í því nema að hafa tryggt okkur tekjur. Í mörgum tilvikum höfum við gert það í samstarfi við leigutakana og það hefur gengið vel. Það er nauðsyn- legt að sýna hógværð á markaðn- um. Það þýðir ekki að þenja sig út í nýtingu og fjárfestingum. Það eru bara aðrir tímar.“ Miklir vaxtarmöguleikar Að sögn Helga eru um 80 pró- sent af leigusamningunum sem Reginn hefur gert nýir. Þeir voru Reginn ætlar sér að vaxa hratt Fasteignafélagið Reginn, sem er að fullu í eigu Landsbankans, verður skráð á hlutabréfamarkað um miðjan júní. Um er að ræða aðra nýskráningu félags frá bankahruni og fyrsta fasteignafélagið sem fer aftur á markað. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá miklum vaxtarmöguleikum, samkeppni og slæmum fjárfestingum í geiranum fyrir bankahrun. VILJA VAXA „Áætlanir miða við að eignasöfnin okkar geti vaxið um 30 prósent á næstu tveimur árum án þess að félagið þurfi að leita nýs hlutafjár,“ segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Allt hlutafé Landsbankans í Regin verður selt í útboði dagana 18. og 19. júní næstkomandi. 65 prósent þess verður selt til fagfjárfesta og verður tilboðsgengið 10,9 til 14,1 króna á hlut. 35 prósenta hlutur verður síðan seldur á útboðsgengi eða tilgreindu hámarksgengi í gegnum áskriftir að kaupverði á bilinu 100 þúsund til 50 milljónir króna. Því mun Landsbankinn ekki selja hlut til kjölfestu- fjárfestis eins og gert var með Haga, fyrsta nýskráða félagið eftir hrun. Helgi segir það hafa verið ákvörðun eigandans, Landsbankans, að fara þessa leið. „Það hefur oft verið leitað eftir kjölfestufjárfestum, með mjög mis- jöfnum árangri. Við þekkjum það fyrir hrun hvernig það fór. Í okkar tilviki á markaðurinn að vinna vinnuna sína og það munu í kjölfarið örugglega myndast einhverjir kjölfestuaðilar, til dæmis lífeyrissjóðir, sem gætu unnið saman í að styrkja svona félag og koma að stjórn þess samkvæmt þeim leikreglum sem gilda á hlutabréfamark- aði. Það þarf að heyrast í eigendum og þeir þurfa að vera sterkir bakhjarlar. Það er hins vegar ekki síður mikilvægt að tryggja hagsmuni smærri hluthafa. Landsbankinn er þarna að sýna gott fordæmi og að hann þorir að hugsa öðruvísi með því að leita ekki að kjölfestufjárfesti heldur að fara með allt í útboð.“ Ætla ekki að selja hlut til kjölfestufjárfestis Lykilstærðir hjá Regin Fjöldi fasteigna 30 Fjöldi leigutaka 174 Útleiguhlutfall 94% Meðallengd leigusamninga 8,4 ár Áætlaðar rekstrartekjur 2012 3,3 ma kr. Vaxtaberandi skuldir 17,9 ma. kr. Virði fjárfestingaeigna 25,7 ma. kr. Handbært fé 2,1 ma. kr. Áætlað virði hlutafjár* 15-18,3 ma. kr. *Samkvæmt verðmati sem fyrirtækjaráðgjöf Virðingar vann. gerðir eftir hrun. „Margir þeirra eru því á mjög lágu verði. En í því felast líka tækifæri fyrir vöxt og auknar tekjur. Eiginfjárhlutfall okkar í dag er 35 prósent. Í fjár- festingastefnu félagsins segir að það ætli að vaxa og á vaxtartíma- bilinu ætlar Reginn að viðhalda því hlutfalli yfir 25 prósentum. Við erum því þegar með sveigjan- leika til að fjárfesta í nýjum eign- um. Félagið á lausafé upp á tvo milljarða króna, það skilar góðum arði á hverju ári og við ætlum að nýta það fé til að vaxa. Áætlan- ir miða við að eignasöfnin okkar geti vaxið um 30 prósent á næstu tveimur árum án þess að félagið þurfi að leita nýs hlutafjár.“ Hann telur mikil tækifæri liggja í því að stækka eignasafnið ef tækifæri gefast og jafnvel taka yfir önnur fasteignafélög sem eru sum hver löskuð eftir bankahrun- ið og hafa ekki gengið í gegnum þá endurskipulagningu sem þau hafa þurft á að halda. „Við erum næststærsta félagið í dag. Reitir, samkeppnisaðili okkar, er stærsta félagið. Það er búið að endur- skipuleggja allt eignasafnið hjá okkur og bókfært virði eigna er allt samkvæmt stöðlum. Það er mjög varfærið mat. Reitir eiga eftir að fara í gegnum endur- skipulagningu. En við teljum að það sé rúm fyrir þrjú öflug félög á markaðnum. Fasteignafélög þurfa að vera sterk og því þarf að sækja fram. Það verður þó að horfa svakalega vel á arðsemi verkefna. Það má ekki ráðast í fjárfesting- ar sem ekki skila tekjum. Það var eitt af því sem olli þessu hruni hjá okkur, það var fjárfest án þess að til væru tekjur á móti.“ Mikil samkeppni Ljóst er að mikil samkeppni verð- ur á næstunni á milli félaga og sjóða sem sérhæfa sig í kaupum á atvinnuhúsnæði. Hún kemur til af tvennu; miklu framboði af slíkum fasteignum og litlu fram- boði af fjárfestingartækifærum fyrir fagfjárfesta. MP banki til- kynnti til að mynda um stofnun Fasteignasjóðs Íslands fyrr í þess- um mánuði, Stefnir, sjóðstýring- arfyrirtæki í eigu Arion banka, hefur sett á fót framtakssjóð sem fjárfestir í atvinnuhúsnæði og Íslandsbanki tilkynnti í gær um stofnun fasteignafélagsins FAST- 1 í samvinnu við lífeyrissjóði og Tryggingamiðstöðina. Helgi hræðist ekki samkeppn- ina. „Það er lykilatriði fyrir fast- eignamarkaðinn að félag eins og okkar sé skráð á markað. Það vinnur að eðlilegri samkeppni. Ég sé samt ekki hvernig sum þessara félaga eiga að ganga með góðu móti. Það er ekki nóg að taka eignasöfn inn í sjóði. Það þarf að reka þessar fasteignir, sinna við- haldi og svo framvegis. Þetta er flókinn rekstur. Ég sé ekki alveg fyrir mér hvernig fyrirkomulagið á að vera í þessum fasteignasjóð- um. Það þarf að reka fasteignirn- ar með alvöru félögum til að fast- eignasöfnin skili sem mestum árangri.“ MILLJARÐA hagnaður varð á rekstri Íslandsbanka á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Eigið fé bankans nam 129,4 milljörðum í lok tímabilsins og hækkaði um fimm prósent á ársfjórðungnum.5,6

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.