Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 18
18 31. maí 2012 FIMMTUDAGUR
N
ýverið samþykkti aðalfundur Bakkavarar Group að heimila
bræðrunum Ágústi og Lýð Guðmundssonum að eignast allt
að fjórðung í félaginu að nýju. Þeir sem samþykktu þetta
voru aðrir kröfuhafar og hluthafar félagsins. Þorri þeirra
eru íslenskir lífeyrissjóðir og íslenskir bankar. Heildarvirði
Bakkavarar er talið vera mun hærra en það verð sem bræðurnir þurfa
að greiða fyrir hlutinn. Gangi endurskipulagning Bakkavarar Group
eftir eru því allar líkur á því að þeir muni hagnast á samkomulaginu.
Samkomulagið er gert til að vinda ofan af nauðasamningi frá árinu
2010 sem gekk út á að viðhalda einhverju bókfærðu virði á skuldum
félagsins. Sá samningur, sem var byggður á óraunhæfum draumórum,
tryggði bræðrunum meirihluta í stjórn Bakkavarar Group og stjórnar-
taumana í undirliggjandi rekstrar-
félögum fram á mitt ár 2014. Inn
á þetta gengust forsvarsmenn líf-
eyrissjóðanna.
Þetta samþykktu lífeyrissjóðirnir
þrátt fyrir að félög tengd bræðr-
unum hefðu kostað þá meira en
nokkur annar. Þeir voru nefnilega
einnig aðaleigendur Existu, sem
var stærsti eigandi Kaupþings fyrir hrun. Í nýlegri úttekt á lífeyris-
sjóðunum í aðdraganda bankahrunsins kom fram að sjóðirnir hefðu
tapað samtals 170,9 milljörðum króna á hlutabréfum og skuldabréfum
sem útgefin voru af Existu og tengdum aðilum. Hlutdeild þessara aðila
í heildartapi lífeyrissjóðanna vegna slíkra bréfa var 44 prósent. Við-
skiptablokkin var því sú sem olli lífeyriskerfinu mestu tjóni.
Þetta samþykktu lífeyrissjóðirnir þrátt fyrir að skuldabréf Bakka-
varar Group hafi líkast til verið ein svívirðilegasta misnotkun á trúgirni
og barnalegheitum sjóðanna sem átti sér stað fyrir hrun. Bréfin voru
seld á tóma skel, enda voru allar undirliggjandi eignir Bakkavarar
Group veðsettar upp í topp hjá öðrum kröfuhöfum.
Þetta samþykktu lífeyrissjóðirnir þrátt fyrir að stjórn Existu, sem
bræðurnir stýrðu, hafi selt 39,6 prósenta hlut í Bakkavör út úr Existu
þann 10. október 2008, daginn eftir að skilanefnd var skipuð yfir Kaup-
þing, stærstu eign Existu. Kaupandinn, sem lagði ekki fram neitt eigið
fé, var félag í eigu bræðranna. Í hluta af samkomulaginu sem samþykkt
var á aðalfundinum í síðustu viku fólst að þeir voru látnir skila þessum
hlut til Klakka (áður Existu) sem nú hefur verið tekið yfir af kröfu-
höfum. Á meðal þeirra eru lífeyrissjóðir.
Þetta samþykktu lífeyrissjóðirnir þrátt fyrir að bræðurnir hafi fram-
kvæmt ólögmæta hlutafjáraukningu í Existu í desember 2008 þar sem
allir aðrir hluthafar, meðal annars lífeyrissjóðir, voru þynntir út. Í
henni fólst að hlutafé í félaginu var aukið um 50 milljarða króna og
einn milljarður greiddur fyrir það allt. Kaupandinn var félag í eigu
bræðranna.
Þetta samþykktu lífeyrissjóðirnir þrátt fyrir að salan á Bakkavarar-
hlutnum og hin ólögmæta hlutafjáraukning séu enn til rannsóknar hjá
embætti sérstaks saksóknara. Þrátt fyrir að sú rannsókn hafi leitt af
sér yfirheyrslur og húsleitir í tveimur löndum. Þrátt fyrir að grunur sé
um ætluð brot á almennum hegningarlögum og hlutafélagalögum sem
við liggur áralöng fangelsisvist.
Lífeyrissjóðirnir réttlæta aðgerðir sínar ugglaust með því að segjast
vera að hámarka endurheimtur eigna sinna. Ljóst er að á þeirri vegferð
hafa þeir kosið, ásamt íslenskum bönkum, að strjúka þeim sem fóru
verst með þá. Þeir eru eins og gísl sem fellur fyrir kvalara sínum. Þeir
eru haldnir Stokkhólmsheilkenni.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi sjávar-útvegsráðherra, setur fram staðhæf-
ingar um jákvæð áhrif af framsali kvóta.
Opinber gögn sýna hins vegar að fullyrð-
ingar Þorsteins eru rangar.
Núverandi löggjöf um stjórn fiskveiða
hefur yfirskuldsett sjávarútveginn, fært
fáum gífurleg auðævi og komið í veg fyrir
hagræðingu og framfarir sem ætíð verða
í eðlilegu samkeppnisumhverfi.
Óvíða í heiminum hefur einkavæðing
almannaverðmæta gengið svo langt sem
hér á landi undanfarna tvo áratugi.
Allir vita, segir Þorsteinn, að skuldir
útgerða eiga fyrst og fremst rætur í fjár-
festingum í nýjum skipum og tækjum
og viðbótaraflaheimildum. Staðreyndin
er önnur. Rannsóknar- og þróunarmið-
stöð Háskólans á Akureyri (RHA) segir
í skýrslu frá maí 2010 að fjárfesting í
varanlegum rekstrarfjármunum hafi frá
2003 ekki hækkað skuldir í sjávarútvegi.
RHA telur að 40-50% af nærri 400
milljarða króna skuldaaukningu frá 1997
til 2008 sé vegna fjárfestinga í rekstri
ótengdum sjávarútvegi og vegna gjald-
eyris- og afleiðuviðskipta. Rúmur helm-
ingur skuldaaukningarinnar er vegna
kaupa á aflaheimildum á uppsprengdu
verði. Verð á þorskkvóta fimmtánfaldað-
ist frá 1995 til júní 2008, en féll þá í einu
vetfangi um ríflega helming. Allir vita,
nema Þorsteinn, að fáir tugir kvótahafa
fengu að selja veiðiréttinn til langrar
framtíðar á tilbúnu verði og færðu and-
virðið í eigin vasa.
Allir vita, segir Þorsteinn, að skulda-
aukningin hefur leitt til betri nýtingar
og arðsemi. Skýrsla RHA segir að engin
framleiðniaukning hafi orðið í veiðum frá
1991 til 2008. Fiskiskipaflotinn hefur elst
síðan framsalið var lögleitt og meðalald-
ur togaraflotans er nú 27 ár samkvæmt
upplýsingum Hagstofu Íslands. Þrátt
fyrir að verð á íslenskum sjávarafurðum
hafi frá 1991 til 2009 hækkað um 20% að
raunvirði og þrátt fyrir að óverulega hafi
verið fjárfest í skipum og búnaði á sama
tíma segir RHA að efnahagsleg staða
sjávarútvegsins hafi stórversnað.
IFS Greining segir í nýlegri skýrslu
að stór hluti útgerðarfélaga virðist vera
yfirskuldsettur og þurfi á fjárhagslegri
endurskipulagningu að halda. Þetta er
reynslan af 20 ára framsali Þorsteins
Pálssonar. Fáir hafa efnast mikið og þjóð-
in á að borga með því að neita sér um bætt
lífskjör.
Allt rangt hjá Þorsteini
Sjávar-
útvegsmál
Kristinn H.
Gunnarsson
fv. alþingismaður
Breytum eftir þörfum
Guðbjartur Hannesson velferðarráð-
herra var harður á því í samtali við
Fréttablaðið í gær að staðið yrði við
þær kröfur sem gerðar eru til öryggis
sjúkrabíla. „Það er alveg klárt að við
fylgjum þeim öryggiskröfum sem
við setjum okkur sjálf,“ sagði ráð-
herrann ákveðið. Reyndar kæmi
til greina að slaka á aldurskröfum
varðandi bílana og því hve mikið
þeir mættu verða eknir. Það er
ekkert sérstaklega erfitt að fylgja
öryggiskröfum þegar þeim
er einfaldlega breytt til
að óbreytt ástand rúmist
innan þeirra.
Lilja fyrir rangri sök
Á þessum stað var í gær sagt að Lilja
Mósesdóttir hefði setið hjá við van-
trauststillögu á ríkisstjórnina í apríl
2011. Það er rangt, hún studdi til-
löguna. Beðist er velvirðingar á þeim
mistökum. Lilja sat hins vegar
hjá við tillögu um þingrof
og kosningar, sem kosið
var um sama dag.
Nýyrðasmíðin
Íslendingar eru einkar
lagnir við nýyrða-
smíð og fáir
lagnari en
Vigdís
Hauksdóttir. Í umræðum um IPA-
styrki ESB, á þingi í gær, var deilt
um hvort styrkirnir væru hluti af
aðlögunarferli Íslands eður ei. Vigdís
vildi svar við því strax, ef frumvarpið
yrði samþykkt væri „Ísland sam-
kvæmt íslenskum lögum að gerast
hér aðlögunarþegi að þessu,“
sagði hún, og vísaði til ESB.
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra stóð á gati:
„Þekking mín á íslensku máli
er ekki nógu djúp til að ég skilji
orðið aðlögunarþegi.“
kolbeinn@frettabladid.is
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
SKOÐUN
Í kvöld á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
Lífeyrissjóðirnir eru með Stokkhólmsheilkenni:
Að elska kvalarann