Fréttablaðið - 31.05.2012, Side 26

Fréttablaðið - 31.05.2012, Side 26
26 31. maí 2012 FIMMTUDAGUR Ekkert er t.d. verið að upplýsa fólk um að eitt af meginmark- miðum ESB, með því að ná samning- um um innlimun Íslands, er að ná yfirráðum yfir stórum hluta Norð- ur-Atlantshafsins með aðgengi að Norður-Íshafinu. Án þessa aðgeng- is getur Evrópusambandið aldrei orðið það stórveldi sem það vill vera í alþjóðlegu tilliti.“ Undanfarandi línur eru skrif- aðar af ritstjóra Bændablaðsins, Herði Kristjánssyni, en blaðið kom út þann 16. maí síðastliðinn. Það er í raun með ólíkindum að lesa orð sem þessi, frá manni eins og Herði, árið 2012. Það er að Evrópusambandið ætli sér að innlima Ísland, til þess að seilast til áhrifa á Norðurslóð- um. Reyndar er þetta svo algerlega út í bláinn, að þetta er í raun ekki svara vert. En það er hins vegar grafalvarlegt þegar maður eins og Hörður, sem gegnir stöðu ritstjóra blaðs, sem gefið er út af samtökum, sem rekin eru að mestu leyti fyrir almannafé, lætur frá sér ósannindi sem þessi. Því ég er nánast 100% viss um að Hörður veit betur. ESB hefur engar áætlanir um að innlima Ísland og ESB hefur EKKI innlimað neitt land, sem gerst hefur aðildar- ríki sambandsins. Hörður ætti að spyrja íbúa einhvers nágrannaríkja okkar; Svíþjóðar, Bretlands, Dan- merkur eða Finnlands, um hvort þau hafi verið innlimuð í ESB! Bret- ar eiga sína olíu, Finnar sína skóga og Svíar sitt járngrýti. En hann getur hins vegar talað við íbúa Eystrasaltsríkjanna um það hvernig var að búa undir járnhæl Sovétríkjanna, eftir að Jósef Stalín innlimaði þau á tímum seinni heims- styrjaldar. Öll Eystrasaltsríkin gengu í ESB, í kjölfar hruns komm- únismans upp úr 1990, og gerðust þar með aðilar að samstarfi 27 lýð- ræðisríkja Evrópu. Þess vegna verða ummæli Harðar að skrifast á tilfinningar, rétt eins og annað „innlimunartal“ annarra andstæðinga ESB. Bændablaðið, sem segir sig vera „málgagn bænda og landsbyggðar“ getur líka bætt við frasanum „og andstöðu gegn ESB“ því umfjöllun Bændablaðsins er nánast alfarið á neikvæðum nótum varðandi ESB- málið. Bændablaðið finnur ESB hreinlega allt til foráttu. Blaðinu er dreift ókeypis og kemur stundum út í allt að 60.000 eintökum. Þá er því einnig stundum dreift með Morgun- blaðinu, sem berst jú af alefli gegn ESB. Hins vegar er margt á huldu varðandi rekstur Bændablaðsins og hvergi er t.d. hægt að finna opin- berar upplýsingar um rekstur blaðs- ins, hvað þá ársreikninga. Hvers vegna er það svo? Blað á borð við Bændablaðið, sem ekki birtir opin- berlega ársreikninga sína, getur varla talist lýðræðislegur miðill. Í lok greinarinnar segir Hörð- ur að Íslendingar eigi mikið af auðlindum, vatni og öðru slíku, sem er alveg rétt. Svo segir hann: „Við erum með öll bestu trompin á hendi og hvers vegna ættum við að afhenda þau stjórnmálamönnum úti í Brussel.“ Það stendur hins vegar ekki til og hefur aldrei staðið til! Hvers vegna í ósköpunum ættum við að gera það? Ísland er sjálfstætt og fullvalda ríki og hefur fullan yfirráðarétt yfir sínum auðlindum. ESB getur ekki og ætlar sér ekki að hrifsa þau frá okkur, hvorki með innlimun né öðrum aðferðum. Innlimun hvað? Á bloggsíðu Egils Helgasonar heldur Hrafnhildur Ragnars- dóttir, formaður Kvennahreyfing- ar Samfylkingarinnar, því fram að Rósa Erlingsdóttir, sem einnig situr í Kvennahreyfingu Samfylk- ingarinnar, sé að skrifa fræðigrein um pólitík og að greina orðræðu í kosningabaráttu Ólafs Ragnars Grímssonar í grein sem birtist á Visir.is undir fyrirsögninni Orð forsetans um „skrautdúkku“. Grein Rósu Erlingsdóttur er uppfull af fordómum og niðurlæg- ing fyrir kynjaða orðræðugrein- ingu ef það er sú staða sem á að gefa þessari grein. Ég vil fyrst nefna að þótt orðið skrautdúkka sé stelpulegt orð þá geta karlar verið skrautdúkkur ekki síður en konur. Vissulega geta hugtök verið karl- læg eða kvenlæg en það þýðir ekki að merkingin verði eingöngu yfir- færð á annað kynið. Orðið klapp- stýra er líka kvenlægt hugtak sem hefur verið notað í gildishlöðnum tilgangi um forsetaframbjóðanda en Rósa sér ekki ástæðu til þess að rýna í áhrif þess. Lítið fer fyrir eiginlegri orðræðu greiningu í greininni og ekki sýnt fram á réttmæti álykt- ana sem í henni eru dregnar með rökum eða gögnum. Fullyrðing- in „Hér dylst engum að átt er við Þóru Arnórsdóttur sem sam- kvæmt skoðanakönnunum er helsti áskorandi Ólafs Ragnars“ virð- ist vera helsta niðurstaða grein- arinnar. Orðalag af þessu tagi þykir almennt ekki vera til sóma í fræðaheiminum en hvað það er sem engum dylst er að öllum jöfnu ekki aðgengilegt fræðimönnum. Rósa leitar í búðir Styrmis Gunnarssonar þegar hún velur að draga upp mynd af þjóðinni sem er stjórnmálamönnum og fjöl- miðlum hugleikin. En það er þjóð sem klofin er í herðar niður. Þessi lýsing á íslensku þjóðinni tilheyr- ir orðræðu auðræðis og valdhafa sem fara fram með tvíhyggjuna að vopni þegar mikið liggur á að hræða þjóðina til fylgis við mál- efni. Blæbrigðum mannlegs skiln- ings er fórnað á altari einhæfninn- ar. Vissulega eru til málefni sem hafa valdið deilum og ófriði en yfirleitt er þetta ekki svart/hvítt heldur hafa málefnin á sér margar hliðar s.s. félagslegar, lögfræðileg- ar, efnahagslegar og síðast en ekki síst margþætta hagsmuni. Ófrið- urinn stafar þó fyrst og fremst af því að sífellt er gengið á rétt þjóð- ar og einstaklinga fyrir sérhags- muni valdhafa og auðræðis. Rósa segir um Vigdísi Finnboga- dóttur og EES-samninginn: „Í dag nýtur samningurinn og nauðsyn aðildar Íslands að EES almenns samþykkis. Ekki heyrast lengur þær raddir að Vigdís hafi gert mis- tök með undirritun sinni“. Umræða um embættisafglöp Vigdísar Finn- bogadóttur er tabú á Íslandi. Vigdís fylgdi valdhöfum af þægð og sneri baki við þjóðinni en Rósa víkur að þessu þegar hún segir: „hart var tekist á um samþykki EES samn- ingsins árið 1993. Þá var þrýsting- ur gríðarlegur á Vigdísi Finnboga- dóttur að skrifa ekki undir lög um samninginn sem heimilaði afsal á fullveldi þjóðarinnar“. EES-samningurinn er frum- forsenda hrunsins og það voru að mínu mati alvarleg stjórnarfars- mistök að bera samninginn ekki undir þjóðina. Í ofangreindum málflutningi Rósu má einnig lesa að friður geti skapast um það að stjórnvöld fari fram með ofbeldi gagnvart þjóðinni. Það að „ekki heyrist lengur þær raddir“ lítur hún á staðfestingu um almenna ánægju en spyr ekki hvort það stafi af þöggun. Frjálst flæði fjár- magns er baráttumál auðræðisins sem ræður fjölmiðlum í landinu. Þöggunin um hlut EES-samnings- ins í hruni efnahagskerfisins er gott dæmi um þá skoðanakúgun sem ástunduð er af fjölmiðlum og stjórnmálamönnum. Rósa lætur sig ekki muna um að taka forræði yfir því sem „ljóst er“ þegar hún segir: „Ljóst er að töluvert hefur áunnist í jafnréttis- málum þau rúmu 30 ár sem liðin eru frá kjöri Vigdísar Finnboga- dóttur“. Ég veit ekki á hvern hátt þessi setning varpar einhverju ljósi á kynjaða orðræðu forset- ans. Í þessari setningu speglast þó sú snobbaða sýn að ef einhverjar konur komist á toppinn þá hlýtur öllum konum að líða betur jafnvel þótt dritað sé yfir þær á vinnustöð- um, lífsviðurværi þeirra og frelsi ógnað með láglaunastefnu kvenna- stétta og að þeim sé almennt haldið í skefjum í þjóðmálaumræðunni. Vissulega óska ég eftir því að fá sterka konu í forsetaembættið. Ég vil sjá konu í embættinu sem af heilindum berst fyrir mann- réttindum, kvenfrelsi og lýðræði. Ég vil ekki sjá konu í embætti for- seta Íslands sem er teflt fram af körlum sem hyggja á að nýta sér kynjaða vitund kvenna til þess að koma annarri konu í forsetaemb- ættið sem hlýðir kalli valdhafanna. Fordómar úr Kvenna- hreyfingu Samfylkingar Ég er bara 5 ára og kenna á því fæ,“ söng skáldið um árið. Reglulega kemur upp umræða um 5 ára börn í leik- skólum. Því miður sprettur sú umræða sorglega oft upp vegna hagræðingaraðgerða sveitar- félaga og þ.a.l. gleymist oft að ræða hvað er 5 ára börnum fyrir bestu. Sveitarfélög standa í einhverj- um tilfellum frammi fyrir því að framboð á leikskólarými annar ekki eftirspurn á meðan grunn- skólabörnum fækkar og hús- næði stendur ónýtt. Þá kemur upp spurningin hvort byggja á nýjan leikskóla, stækka þá sem fyrir hendi eru eða nýta það húsnæði sem fyrir hendi er. Í ljósi efnahagsástandsins virðist það borðleggjandi að nýta tómt grunnskólahúsnæði fyrir leik- skóladeildir. Það má hins vegar spyrja sig hvort hagkvæmasta lausnin sé alltaf sú besta til lengri tíma litið. Hlutirnir ganga ekki endi- lega best upp þar sem ákvarð- anir eru teknar eingöngu út frá einum sjónarhóli, þ.e. hags- munum pyngjunnar, þar sem markmiðið er að þétta í rifur og stoppa í göt. Þá ræður skamm- tímahugsun og þekkingarleysi ríkjum en ekki hugmyndafræði menntunar og skólaþróunar. Dæmi um slíkt er að taka 5 ára börn úr leikskólanum og færa inn í tóma kennslustofu í grunnskól- anum án þess að hafa fengið svör við eftirfarandi spurningum: 1. Eru það hagsmunir barnanna sem eru hafðir að leiðarljósi? Leikskólagangan er 4-5 ár, grunnskólagangan er 10 ár. Í leik- skólanum er lagður grunnur að öryggi og tengslum í umhverfi sem er hannað með það í huga að þétt utanumhald sé um hvert barn. Færri börn eru á forsjá hvers kennara og áhersla lögð á að koma til móts við þarfir hvers og eins á forsendum barnanna. 2. Hver á að kenna börnunum? Grunnskólakennari hefur ekki réttindi til þess að kenna leik- skólabörnum og leikskólakenn- ari hefur ekki réttindi til þess að kenna í grunnskóla. Félag leik- skólakennara semur ekki fyrir leiðbeinendur í grunnskóla og öfugt. Kjarasamningar eru auk þess afar ólíkir hvað varðar vinnutíma og ýmsar starfsað- stæður. Hvað með undirbúning og skipulagsdaga í viðkomandi deild? Er 5 ára deildin opin í jólafríinu og yfir sumartímann? Er ekki ýmislegt sem þarf að samræma til að 5 ára deild geti verið „eðlilegur“ hluti af starf- semi grunnskólans og þarf sú samræming ekki að eiga sér stað fyrst? 3. Hvað og hvernig á að kenna börnunum? Á starfsemin að vera skv. aðalnámskrá, skipulagi og hugmyndafræði leikskóla eða grunnskóla? Þegar börn fara úr leikskól- anum yfir í grunnskólann verða mikil umskipti í lífi þeirra. Þau tilheyra stærri hópum í grunn- skólanum og kennsluaðferð- irnar eru um margt ólíkar. Leik- og grunnskólar byggja að mörgu leyti á ólíkri uppeldis- og kennslufræðilegri hefð. Leik- skólastarf byggir á barnhverfri hugmyndafræði þar sem þroski og þarfir barnsins eru í fyrir- rúmi. Leikurinn er meginnáms- leið barnsins og kennslutæki leik- skólakennarans. Grunnskólinn byggir á kennslumiðaðri hugmyndafræði þar sem formlegt nám barnsins er í brennidepli. Fimm ára börnin í leikskól- anum eru, ásamt sex ára börnun- um í grunnskólanum, á mörkum skólastiga. Þroski þeirra og þekk- ingaröflun beinist að því að und- irbúa þau undir lífið. Á síðasta ári leikskólans finna börnin fyrir sérstöðu sinni. Sú sérstaða birtist í þeirri ábyrgð og þeim réttind- um sem felast í því að vera elstur. Börnin upplifa sig sem fyrir- myndir og mikilvæg fyrir skóla- starfið og yngri börnin. Þessi til- finning byggir upp sjálfstyrk og ábyrgðarkennd sem er eitt besta veganesti út í lífið sem til er. Það gefur auga leið að þessarar sér- stöðu njóta þau ekki innan veggja grunnskólans. Ákvarðanir um menntun þurfa umfram annað að byggjast á fag- legum sjónarmiðum um hvernig börn/fólk lærir best og mest á viðkomandi aldursskeiði. Undir- rituð hvetja yfirvöld skólamála til að leita svara við þeim spurn- ingum sem reifaðar eru hér að ofan, áður en ákvarðanir eru teknar sem geta verið fordæmis- gefandi. Skammtímahugsun má ekki ráða þegar nám barnanna á í hlut heldur verður skýr stefna, fagmennska og framtíðarsýn að ráða ferðinni. „Ég er bara 5 ára…“ ESB-aðild Gunnar Hólmsteinn Ársælsson stjórnmálafræðingur Menntamál Ingibjörg Kristleifsdóttir formaður Félags stjórnenda leikskóla Björk Óttarsdóttir varaformaður Félags stjórnenda leikskóla Haraldur Gíslason formaður Félags leikskólakennara Fjóla Þorvaldsdóttir varaformaður Félags leikskólakennara Forsetaembættið Jakobína Ingunn Ólafsdóttir stjórnsýslufræðingur Lítið fer fyrir eig- inlegri orðræðu- greiningu í greininni og ekki sýnt fram á réttmæti ályktana sem í henni eru dregnar með rökum eða gögnum. Menntastoðir er tilvalin námsleið fyrir þá sem vilja hefja nám að nýju. Námið hentar þeim sem eru í fullri vinnu. Skráning stendur yfir í síma 580 1800 Ofanleiti 2 - 103 Reykjavík - Sími: 580 1800 - www.mimir.is Langar þig í háskóla en hefur ekki stúdentspróf?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.