Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 32
FÓLK|TÍSKA
Mind Xtra
fyrir konur eins og þig
20% afsláttur
af öllum vörum
þessa helgi
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
25% afsláttur
af öllum vörum
frá X-Two
til 2. júní
Verslunin Belladonna á Facebook
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Tískuhönnuðurinn Jimmy Choo, sem er hvað þekktastur fyrir glæsilega og nýtískulega hælaskó
sína, hefur nú opnað tískublogg. Hann
fékk tískuljósmyndarann Eddie Newton
í lið með sér til að hleypa síðunni Choo
24:7 af stokkunum þar sem götutíska
fær að njóta sín.
Gestir síðunnar eru hvattir til að
senda inn myndir af sjálfum sér sem
eru lýsandi fyrir þeirra persónulega
stíl þar sem þeir eru í Jimmy Choo
skóm eða með fylgihluti frá honum.
Þeir félagar opnuðu síðuna til að
koma til móts við þann mikla fjölda
sem hefur áhuga á götutískuljósmynd-
un og þá félagslegu þörf fólks að miðla
tísku gegnum blogg.
Úrval bestu myndanna birtist á síð-
unni choo247.com þar sem hægt verð-
ur að deila þeim áfram á Facebook,
Twitter og Pinterest. Gestir síðunnar
geta svo smellt á hlekk sem leiðir þá á
heimasíðu hönnuðarins þar sem þeir
geta keypt sambærilega vöru og er á
myndinni.
STÓRLAX Það eru ekki
einungis óbreytt áhuga-
fólk um tísku sem opnar
tískublogg. Jimmy Choo
hefur nú bæst í hópinn.
NORDIC PHOTOS/AFP
■ VIRKNIN NÆR HÁMARKI EFTIR 8-24 TÍMA
Brúnkukrem innihalda efnið dihydroxyacetone (DHA), en einnig eru
til efni sem innihalda svokölluð „bronzers“ sem eru vatnsleysanleg
litarefni.
Þau brúnkukrem sem innihalda DHA verka þannig að
DHA gengur í efnasamband við ákveðnar amínósýrur
sem er að finna í ríkum mæli í efstu lögum húðarinnar.
Við efnahvarfið myndast brún litarefni sem kölluð hafa
verið „melanoidin“. Breytingar á lit húðarinnar koma
fyrst fram um 1 klukkustund og ná hámarki eftir 8-24
klukkustundir. Liturinn dofnar síðan og hverfur á
5-7 dögum. heimild:visindavefur.hi.is
HVERNIG VIRKAR BRÚNKUKREM?
Breytingarnar koma fram eftir eina klukkustund.
Þetta atvikaðist þannig að forráða-menn hins Konunglega Garðyrkju-félags, The Royal Horticultural
Society (RHS), sáu sérsmíði sem ég
hannaði á síðasta ári. Mér var sagt að
það hefði orðið kveikjan að þeirri hug-
mynd að í fyrsta sinn í sögu félagsins
yrði gerður skartgripur fyrir „Chelsea
Flower Show“ sem jafnframt yrði tengdur
Diamond Jubilee, eða 60 ára valdatíð
drottningar. Elísabet hefur opnað þessa
árlegu blómasýningu 48 sinnum í valdatíð
sinni. Í tengslum við sýninguna ár hvert
er efnt til dýrindis galakvöldverðar og ég
var beðinn um að smíða skartgripi sem
minntu á blómið magnolíu. Ég smíðaði
um 300 stykki og tók allt hönnunar- og
vinnuferlið um það bil fjóra mánuði,“ út-
skýrir Kristján.
„Þegar fjórar vikur voru í sýninguna
hafði RHS samband og bað mig að hanna
og smíða nælu handa drottningu sem
gefin yrði í tilefni 60 ára afmælisins. Við
Ivonne vorum jafnframt beðin um að vera
viðstödd þegar forseti RHS gaf drottningu
næluna. Um 5.000 manns voru við opnun
sýningarinnar.“
ÁNÆGÐ MEÐ GJÖFINA
„Drottningin spurði hvort ég hefði smíð-
að þessa nælu. Hún brosti breitt þegar ég
svaraði því játandi og bætti við: „Ég smíð-
aði hana handa þér.“ Hún virkaði ákaflega
ljúf kona. Ég fékk mikið út úr því að sjá
viðbrögð hennar. Hún skoðaði næluna
vandlega og virtist mjög hamingjusöm
með hana,“ segir Kristján ennfremur.
Hann segist hafa skoðað mikið af kon-
unglegu skarti, bæði á söfnum og í bókum
áður en hafist var handa. „Ég fékk löngun
til að gera eitthvað nútímalegt handa
henni en við hönnunina var ég beðinn að
hafa í huga blómið Iris Unguicularis.
Nælan er úr hvítagulli og stílfært ís-
lenskt víravirki myndar mynstur í blöðum
blómsins. Hún ber yfir 100 eðalsteina, þar
á meðal tourmaline, tanzanite, tsavorite
demanta og safíra. Nælan er síðan með
stórum náttúrulegum gulum demanti í
miðju blómsins.“
HEFUR VAKIÐ ATHYGLI
Kristján segir að þessi heiður hafi
mikið gildi fyrir hann sem gullsmið og
fyrirtæki þeirra hjóna. „Verkefnið hefur
fengið mikla fjölmiðlaumfjöllun. Ég hef
unnið mikið að sérsmíði skartgripa en
ég nota aðeins endurunnið gull, silfur
og platínu. Hjá London Assay Office eru
sannreynd gæði þeirra skartgripa sem
framleiddir eru í Bretlandi og ef þeir
standast prófun fá þeir merkingu með
þar til gerðum málmstimpli. Í samvinnu
við þá höfum við hannað og skráð
stimpla sérstaklega fyrir endurunna
málma. Því miður eru námuvinnslur í
heiminum þar sem námuverkamenn
vinna við mannsæmandi aðstæður, ör-
yggi og full mannréttindi ekki nægilegar
margar. Í ljósi þess höfum við ákveðið
að vinna náið með bresku fyrirtæki sem
sérhæfir sig í endurvinnslu og hreinsun
eðalmálma,“ segir Kristján sem er að
undirbúa stóra sýningu, Pavilion, í
Somerset House í hjarta Lundúna, 13.
- 17. júní. Okkur hefur verið boðið að
taka þátt í annarri sýningu í haust sem
kallast Goldsmiths’ Fair svo það er nóg
að gera þessa dagana.“
HANNAÐI NÆLU HANDA
DROTTNINGUNNI
HEIÐUR Kristján Eyjólfsson gullsmiður býr og starfar í Englandi þar sem hann
rekur eigið fyrirtæki ásamt konu sinni, Ivonne. Kristján varð nýlega þess heið-
urs aðnjótandi að hanna og smíða barmnælu fyrir Elísabetu Englandsdrottn-
ingu. Hann var spurður hvernig það hefði komið til.
VEKUR ATHYGLI
Kristján Eyjólfsson, gull-
smiður í Englandi, hefur
vakið mikla athygli fyrir
skartgripi sína.
DROTTNINGARLEG
Nælan sem Elísabet
Englandsdrottning fékk í
tilefni af 60 ára valdatíð
sinni.
ALLTAF FÍN Hér er drottningin
með næluna sem Kristján smíðaði
og hannaði sérstaklega handa
henni.
HÖNNUÐUR MEÐ TÍSKUBLOGG
Skóhönnuðurinn heimsþekkti Jimmy Choo hefur opnað tískublogg, choo247.