Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 34

Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 34
FÓLK|SJÓMANNADAGURINN 06.00-12.00 Vakna milli 6 og 7 með yngsta stráknum, fáum okkur að borða. Vek eldri bræðurna upp úr sjö; sett í töskur, borðað, allir út í bíl og keyrt í skólann. Fer stundum með þeim inn og hlusta á söng- stund. Komin heim um 9. Við taka heimilis- störf, með litla krílið á handlegg. Svo fæ ég einhvern í heimsókn eða fer sjálf. Stundum farið í göngur með öðrum mömmum og teknar léttar æfingar. 12.00-18.00 Heimir, sá yngsti, sefur milli 11 og 14. Þá er tekið til, skúrað, rótað í garðinum eða gengið í önnur heimilisstörf. Farið að ná í strákana í skólann, skutlað á æf- ingar, heimalærdómur, borðað, þvegið og ann- að. Oft eru fleiri börn á heimilinu og mikið tuskast og ærslast, svo það er vanalega handa- gangur í öskjunni. 18.00-00.00 Elda matinn, litli drengurinn svæfður, kem hinum í háttinn. Frágangur og kannski smá afslöppun. Vil helst vera komin í rúmið fyrir 23. 00.00-06.00 Svíf um í draumaland- inu. DAGUR Í LÍFI SJÓMANNSKONU HEIMILIÐ KALLAR 24 TÍMAR Dagurinn byrjar snemma hjá Evu Björgu Sigurðardóttur sem er með heimilið fullt af börnum. Við taka dagleg heimilisstörf ásamt skutli í skóla og víðar. 06.00-12.00 Línan dregin frá fjögur um nótt til svona tíu um morguninn, fisknum komið fyrir og gert að. Þá er gengið frá. Ég fæ mér svo að borða og svo höldum við af stað í land. Erum á siglingu frá tíu til tólf. En þetta er auð- vitað misjafnt eftir því hversu mikið fiskerí er og hve langt er á miðin. 12.00-18.00 Vanalega leggja menn sig á heimleið frá 12- 16. Svo er aflanum landað og gengið frá til 18. 18.00-00.00 Borða og fer í sturtu, kíki á veðurspá og fleira. Lagt af stað á miðin um níuleytið. Fjögurra tíma sigling á miðin. Tíminn nýttur og menn leggja sig enda orðnir vanir að sofa í litlum stubbum. Þó er alltaf einn sem vakir við stýrið. 00.00-06.00 Línan er lögð frá eitt til þrjú. Þá er borðað eitthvað og kaffisopinn teygaður. Frá fjögur er línan dregin, en það fer allt eftir fiskiríi hversu langan tíma það tekur. DAGUR Í LÍFI SJÓMANNS SJÓRINN KALLAR 24 TÍMAR Rafn Franklín Arnarsson rær frá Austur- landi fjarri heimahöfn. Vinnudagurinn getur náð allt að 22 tímum. Þá er unnið út í eitt og sofið í stubbum. Hátíðinni Sjóaranum síkáta, sem hefst í dag, hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár og dagskráin verður glæsilegri með hverju ári sem líður. „Allir ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð, hvort sem það eru börn, unglingar eða eldra fólk. Þetta er sannkölluð fjöl- skylduhátíð og við hvetjum fólk til að renna til Grindavíkur. Það er ekki nema hálftíma akstur frá Reykjavík, svo er um að gera fyrir Sunnlend- inga að keyra Suðurstrandarveginn,“ segir Þorsteinn. BÆJARBÚAR TAKA ÞÁTT Í aðdraganda hátíðarinnar er bænum skipt í fjögur litahverfi; Rautt, blátt, grænt og appelsínu- gult. Í hverju hverfi er starfandi hverfisstjóri og ýmsar nefndir, þar á meðal skreytinganefnd sem sér um almennar skreytingar í hverfunum. Mikill keppnisandi hefur hlaupið í fólk og hugmyndaríkar skreytingar prýða hús og umhverfi. „Bærinn er ótrúlega líflegur að sjá; gínum er stillt upp á þök, sturtuklefar settir út í garða, bátar málaðir og dregnir inn á lóðir, ýmsar uppstillingar, skreyt- ingar og annað skemmtilegt að sjá.“ Á föstudagskvöldið er heljarinnar götugrill þar sem íbúar hverrar götu grilla saman. Að því loknu sameinast íbúar hvers hverfis í skrúðgöngu, öll hverfin mætast svo hjá kirkjunni þar sem gengið er niður að menningar- húsinu Kvikunni niðri við höfnina. „Það er stórbrotið sjónarspil að sjá alla bæjarbúa, unga sem gamla samankomna í litskrúðugum búning- um með óteljandi blöðrur, á bílum og vögnum, traktorum og fleiru að fagna saman.“ KVÖLDSKEMMTANIR Í kvöld mun Raggi Bjarna ásamt einvala liði hljóðfæraleikara halda tónleika þar sem flutt verða gömlu sjómannalögin. Á veitingahúsinu Kantinum verður svo reggýhljóm- sveitin Hjálmar ásamt hljómsveit- inni Funk That Shit sem hitar upp. Á föstudagskvöld er svo götugrill og skrúðganga sem endar með stór- skemmtilegu bryggjuballi niðri við höfn þar sem Páll Óskar mætir, Ingó og Veðurguðirnir, Hreimur og karlakór Sjómannaskólans ásamt listamönnum úr heimabyggð. Í Salt- húsinu spilar Grindvíska hljómsveit- in R.I.P. og á Kantinum verða Úlfur Úlfur og MC Gauti ásamt plötusnúði. Á laugardagskvöldið verður ball með Páli Óskari í íþróttahúsinu, Skítamórall og Blúsmenn Andreu Gylfa verða í Salthúsinu, Geirmund- ur Valtýsson á Kantinum ásamt fleiri uppákomum. Á sunnudagskvöldið mætir hljómsveitin Valdimar og heldur tónleika í Íþróttahúsinu og rennur allur ágóði til björgunarsveit- arinnar Þorbjarnar. „Þessi glæsi- lega dagskrá, utan aðalsviðsins, er sjálfstætt framtak þeirra sem eiga skemmtistaðina hér í bænum. Þetta er því að breytast í eina stærstu tón- listarveislu sem haldin er hér á suð- vesturhorninu.“ FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Nóg er um að vera fyrir yngstu kyn- slóðina og líklegra að hún nái ekki að taka þátt í nema broti af þeim viðburðum og uppákomum sem í boði eru. „Það verða glæsileg atriði á aðalhátíðarsvæðinu við höfnina. Solla stirða og Skoppa og Skrítla mæta á svæðið og sterkustu menn Íslands munu etja kappi. Svo eru hefðbundin leik- og tívolítæki, reykköfun með leikhúsreyk fyrir 14 ára og eldri, veltibíll frá Sjóvá, lazer tag, gokart bílar, ratleikur, báts- ferðir, hestateyming, fornbílasýning, sjópulsa, dorgveiði og brúðubíllinn, ásamt ótal fleiri viðburðum.“ FLOTTASTA TJALDSVÆÐI LANDSINS Vilji fólk gera sér ferð til Grindavíkur og gista á tjaldsvæðinu er það vel búið. „Þeir segja það helstu speking- arnir í þessum málum að þetta sé flottasta tjaldsvæði landsins,“ segir Þorsteinn stoltur. Tjaldvæðið var opnað 2009 og er alls 13.500 fermetr- ar með tveimur leiksvæðum fyrir börn með rólum, tveimur köstulum og kóngulóarneti. Þjónustuhús á tjaldsvæðinu er með fullkomnu eld- húsi fyrir gesti til að elda, þvotta- húsi, sturtum, interneti og fleiru. SJÓMENN HEIÐRAÐIR Aðalhátíðarhöldin eru á sunnudeg- inum enda er það sjómannadagurinn. „Þá eru sjómenn heiðraðir fyrir störf sín og veittar heiðursviðurkenningar. Svo er auðvitað kappróður og kodda- slagur og fleira sem á sér áratuga hefð á sjómannadegi. Þó að hátíðin vaxi er haldið í hefðir og venjur, enda er upp- runa og styrk okkar að finna þar.“ ANNAÐ Á DAGSKRÁ Auk skemmtiatriða á aðalsviðinu er fjöldinn allur af myndlistar-, ljós- mynda- og handverkssýningum víðs vegar um bæinn. Einnig er hand- verksmarkaður á bryggjusvæðinu þar sem hægt er að gera kjarakaup á glæsilegum munum, fatnaði og öðru. „Ekki má gleyma því að það eru haldin Íslandsmót í ýmsu hérna um helgina. Sterkasti maður Íslands, Ís- landsmótið í netagerð, sjómanni og kerlingahlaupi ásamt fleiri keppn- um,“ upplýsir Þorsteinn. Allar nán- ari upplýsingar um Sjóarann síkáta er að finna á heimasíðu Grindavíkur: www.grindavik.is. SJÓARINN SÍKÁTI HEFST Í GRINDAVÍK GRINDAVÍKURBÆR KYNNIR Þorsteinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar, segir að á hátíðinni Sjóaranum síkáta, sem fer fram um helgina, verði fjölbreytt dagskrá með eitthvað fyrir alla. Hann hvetur fólk í nærsveitum og víðar til að líta við. STOLTUR AF HÁ- TÍÐINNI „Þetta er að breytast í eina stærstu tónlistar- veislu sem haldin er hér á suðvesturhorninu.“ LITRÍK SKRÚÐ- GANGA Bænum er skipt upp í fjögur litahverfi sem sameinast svo í skrúð- göngu um bæinn. FJÖLSKYLDAN OG SJÓ- MENNSKAN Fjölskyldulífið hjá Rafni Franklín Arnarssyni og Evu Björgu Sigurðardóttur er kannski ekki eins og það gerist hjá flest- um. Rafn er sjómað- ur og Eva heima- vinnandi húsmóðir og annast þrjá orku- mikla stráka sem þau eiga saman; 1 árs, 7 og 9 ára. HÁLFT ÁRIÐ Í BURTU Rafn rær hálft árið frá Grindavík en frá maí og fram í nóvember fer hann út á land og rær þaðan. Fjarvistir eru því miklar stóran hluta árs. Heimilislífið er mjög breytilegt eftir því hvaðan Rafn rær. Það ríkir þó virðing og skilningur á báða bóga fyrir störfum hvors annars.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.