Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 37
KYNNING − AUGLÝSING Heimasíðugerð31. MAÍ 2012 FIMMTUDAGUR 3
Stefna er hugbúnaðarhús á Akureyri sem var stofnað árið 2003 og hefur nýver-
ið opnað útibú í Kópavogi. Starfs-
menn Stefnu eru tólf í heildina,
tíu á Akureyri og tveir í Kópavogi.
Áætlað er að bæta við einum til
tveimur starfsmönnum á þessu
ári og þá helst í Kópavogi. „Stefna
hefur farið mjög rólega af stað en
haldið dampi með stöðugri þróun
í gegnum súrt og sætt og komið sér
vel fyrir á Norðurlandi. Þjónustan
okkar og þær vörur sem við höfum
upp á að bjóða hafa verið aðalaug-
lýsingin okkar. Við höfum litlu
eytt í markaðsmál og eytt frekar
í betri þjónustu sem auglýsir sig
sjálf,“ segir Róbert Freyr Jónsson,
sölustjóri Stefnu.
Aðalvaran sem Stefna er með er
vefumsjónarkerfið Moya. Fyrr á
árinu hlotnaðist starfsfólki Stefnu
sá heiður að fá vefinn akureyri.is
viðurkenndan sem „Besta sveitar-
félagsvefinn“. „Það eru margir
hlutir sem verða að vera til staðar
til að fá þessi verðlaun. Fyrir það
fyrsta þá þarf vefurinn að uppfylla
öll tæknileg skilyrði til að verða
meðal þeirra fimm efstu. Eftir
það ræður mannlegi þátturinn
því nefnd fagfólks fer yfir vefinn og
metur hann út frá innihaldi, nyt-
semi, þjónustu og aðgengi. Úttekt-
in náði til 267 vefsíðna ríkisstofn-
ana, ráðuneyta og sveitarfélaga en
úttektirnar fara fram á tveggja ára
fresti,“ segir hann.
Í dag er Stefna með yfir 500 við-
skiptavini af öllum stærðum og
gerðum. Þar á meðal er fjöldinn
allur af skólum, framhaldsskól-
um og háskólum, fyrirtæki eins og
Samherji, Johan Rönning , Höld-
ur og Hekla. „Mikil áhersla hefur
verið hjá starfsmönnum Stefnu að
einbeita sér að því að leysa vanda-
mál. Það hefur skilað sér í mikl-
um fjölda veflausna sem hægt er
að grípa í eftir því sem tækifæri
gefast.“
Stefna hefur einnig smíðað
fjöldann allan af bókunarvélum
fyrir bílaleigur, gistiheimili, pitsa-
staði og ferðabókanir svo eitthvað
sé nefnt. Þá er mikið um tenging-
ar við önnur kerfi og aðlaganir að
umhverfi hvers og eins fyrir tækis.
Lausnir sem Stefna hefur smíðað
fyrir viðskiptavini sína eru allt
frá því að útbúa litla RSS virkni
og upp í að sérsmíða heilt vefum-
sjónarkerfi eins og var gert í tilfelli
Vodafone.
„Vefumsjónarkerfið Moya er
í stöðugri þróun og nýjustu við-
bæturnar, sem eru eyðublaða-
smiður og ný leitarvél, eru bara til
þess fallin að gera kerfið öflugra
og þjálla í notkun, auka notenda-
gildi og sjálfstæði notenda sem og
bæta þjónustuna enn meir,“ segir
Róbert.
Þjónustan og vörurnar besta
auglýsing fyrirtækisins
Stefna er hugbúnaðarhús sem hefur farið rólega af stað en fer ört stækkandi. Fyrirtækið hefur nú yfir 500 viðskiptavini sem koma úr
öllum áttum. Vefumsjónarkerfið Moya er stolt fyrirtækisins en kerfið hýsir meðal annars vef Akureyrarbæjar sem valinn var besti
sveitarfélagsvefurinn 2011.
Róbert og starfsfólk Stefnu hafa yfir 500 viðskiptavini af öllum stærðum og gerðum. Þau hafa meðal annars smíðað fjöldann allan af alls kyns bókunarvélum og sérsmíðað heil
vefumsjónarkerfi. MYNDA/HEIÐA