Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 37
KYNNING − AUGLÝSING Heimasíðugerð31. MAÍ 2012 FIMMTUDAGUR 3 Stefna er hugbúnaðarhús á Akureyri sem var stofnað árið 2003 og hefur nýver- ið opnað útibú í Kópavogi. Starfs- menn Stefnu eru tólf í heildina, tíu á Akureyri og tveir í Kópavogi. Áætlað er að bæta við einum til tveimur starfsmönnum á þessu ári og þá helst í Kópavogi. „Stefna hefur farið mjög rólega af stað en haldið dampi með stöðugri þróun í gegnum súrt og sætt og komið sér vel fyrir á Norðurlandi. Þjónustan okkar og þær vörur sem við höfum upp á að bjóða hafa verið aðalaug- lýsingin okkar. Við höfum litlu eytt í markaðsmál og eytt frekar í betri þjónustu sem auglýsir sig sjálf,“ segir Róbert Freyr Jónsson, sölustjóri Stefnu. Aðalvaran sem Stefna er með er vefumsjónarkerfið Moya. Fyrr á árinu hlotnaðist starfsfólki Stefnu sá heiður að fá vefinn akureyri.is viðurkenndan sem „Besta sveitar- félagsvefinn“. „Það eru margir hlutir sem verða að vera til staðar til að fá þessi verðlaun. Fyrir það fyrsta þá þarf vefurinn að uppfylla öll tæknileg skilyrði til að verða meðal þeirra fimm efstu. Eftir það ræður mannlegi þátturinn því nefnd fagfólks fer yfir vefinn og metur hann út frá innihaldi, nyt- semi, þjónustu og aðgengi. Úttekt- in náði til 267 vefsíðna ríkisstofn- ana, ráðuneyta og sveitarfélaga en úttektirnar fara fram á tveggja ára fresti,“ segir hann. Í dag er Stefna með yfir 500 við- skiptavini af öllum stærðum og gerðum. Þar á meðal er fjöldinn allur af skólum, framhaldsskól- um og háskólum, fyrirtæki eins og Samherji, Johan Rönning , Höld- ur og Hekla. „Mikil áhersla hefur verið hjá starfsmönnum Stefnu að einbeita sér að því að leysa vanda- mál. Það hefur skilað sér í mikl- um fjölda veflausna sem hægt er að grípa í eftir því sem tækifæri gefast.“ Stefna hefur einnig smíðað fjöldann allan af bókunarvélum fyrir bílaleigur, gistiheimili, pitsa- staði og ferðabókanir svo eitthvað sé nefnt. Þá er mikið um tenging- ar við önnur kerfi og aðlaganir að umhverfi hvers og eins fyrir tækis. Lausnir sem Stefna hefur smíðað fyrir viðskiptavini sína eru allt frá því að útbúa litla RSS virkni og upp í að sérsmíða heilt vefum- sjónarkerfi eins og var gert í tilfelli Vodafone. „Vefumsjónarkerfið Moya er í stöðugri þróun og nýjustu við- bæturnar, sem eru eyðublaða- smiður og ný leitarvél, eru bara til þess fallin að gera kerfið öflugra og þjálla í notkun, auka notenda- gildi og sjálfstæði notenda sem og bæta þjónustuna enn meir,“ segir Róbert. Þjónustan og vörurnar besta auglýsing fyrirtækisins Stefna er hugbúnaðarhús sem hefur farið rólega af stað en fer ört stækkandi. Fyrirtækið hefur nú yfir 500 viðskiptavini sem koma úr öllum áttum. Vefumsjónarkerfið Moya er stolt fyrirtækisins en kerfið hýsir meðal annars vef Akureyrarbæjar sem valinn var besti sveitarfélagsvefurinn 2011. Róbert og starfsfólk Stefnu hafa yfir 500 viðskiptavini af öllum stærðum og gerðum. Þau hafa meðal annars smíðað fjöldann allan af alls kyns bókunarvélum og sérsmíðað heil vefumsjónarkerfi. MYNDA/HEIÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.