Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 38
KYNNING − AUGLÝSINGHeimasíðugerð FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 20124
EINN FYRSTI VEFUR LANDSINS
Einn fyrsti almenni vefurinn sem fór í loftið hérlendis var Uppskrifta-
WWWefurinn (eldhus.is). Hann hefur starfað óslitið frá vorinu 1995 og
var lengi vel eini uppskriftavefur landsins. Upphafsmenn vefsins voru
Ingimar Róbertsson og Sigurður Eggertsson sem báðir voru nemendur
við Háskóla Íslands. Uppskriftavefurinn var tilraun hjá þeim til að forrita
fyrir vefinn sem var á þeim tíma nýtt og spennandi fyrirbæri. Þeim þótti
tilvalin hugmynd að setja í loftið uppskriftavef enda báðir miklir mat-
menn. Í upphafi var ákveðið að vefurinn yrði sjálfbær þannig að lesendur
síðunnar myndu bæta sjálfir við uppskriftum, í stað þess að þeir væru
sífellt að vinna við vefinn. Afraksturinn er því samvinnuverkefni þeirra
beggja og áhugamanna um mat. Uppskriftir síðunnar bera því flestar
þau merki að vera viðráðanlegar fyrir flesta heimiliskokka á öllum aldri.
Uppskrifta WWWefurinn
stendur enn fyrir sínu
þrátt fyrir aldurinn og
fær nokkrar þúsundir
heimsókna á mánuði.
Lesendur síðunnar eru
stöðugt að bæta inn
nýjum uppskriftum þótt
hann sé mest not-
aður til að fletta
í gömlum upp-
skriftum.
Finnist vefur fyrirtækis ekki á netinu í dag er fyrirtækið ekki til í hugum flestra viðskiptavina. Því er góður
vefur orðinn jafn sjálfsagður og símanúmer
fyrirtækis,“ segir Sigrún Eva Ármannsdótt-
ir, forstöðumaður veflausna hjá Advania.
Meðal viðskiptavina Advania eru mörg
stærstu og öflugustu fyrirtæki og stofnan-
ir landsins.
„Advania sérhæfir sig í gerð flottra vefja
fyrir fyrirtæki og stofnanir og má nefna vefi
stóru bankanna þriggja sem dæmi um vef-
síður í LISA-vefumsjónarkerfinu frá Ad-
vania. Einnig erum við mikið í að hanna og
smíða vefverslanir, þjónustuvefi og öpp,“
upplýsir Sigrún Eva.
Hún segir nú mikið rætt um öpp og vef-
síður í smátækjum, líkt og símum og snjall-
tölvum.
„Gott dæmi um símavef er m.reebokfit-
ness.is og dæmi um app er Bensínvaktin
frá Advania fyrir Android-stýrikerfið. Þá er
mikið farið að hanna og útfæra vefsíður í því
sem kallast á ensku Responsive Design en
slíkir vefir aðlaga sig að skjástærð móttöku-
tækja,“ segir Sigrún Eva og nefnir til skoð-
unar einn frægasta Responsive Design vef-
inn sem er Bostonglobe.com.
„Vefir og öpp eru kjörin viðbótarþjón-
ustuleið fyrir fyrirtæki til að nálgast við-
skiptavini sína og komast nær kúnnanum.“
Advania vinnur einnig að gerð þjónustu-
og vefverslunarvefja sem flestir eru tengd-
ir bakendakerfum. „Með tengingu
við bakendakerfi losna starfs-
menn fyrirtækja við að tvíslá
inn gögn og vefurinn því eins og
framlenging af viðskiptakerf-
inu. Dæmi um góða slíka vefi
af ýmsum stærðum og gerðum
og með mismunandi tækni-
legu flækjustigi eru www.ey-
mundsson.is, w w w.skor.is,
www.lindesign.is, www.orkan.
is, www.stod2.is og www.sun-
film.is,“ útskýrir Sigrún Eva.
Advania heldur einnig úti
vefversluninni www.velkom-
in.is.
„Þar geta lítil og nýstofnuð
fyrirtæki fengið litla og staðl-
aða vefi á góðu verði í sjálfs-
afgreiðslu. Í júní verða freist-
andi tilboð í gangi en þá eru
vefir á w w w.velkomin.is
kynntir sem vara mánaðar-
ins með helmingsafslætti af
stofnkostnaði.“
Besta leiðin að
viðskiptavininum
Að hafa góðan vef er fyrirtækjum í dag jafn sjálfsagt og að hafa
símanúmer. Veflausnir Advania eiga heiðurinn af mörgum
flottustu og öflugustu vefsíðum landsins. Í júní gefst tækifæri
fyrir lítil og nýstofnuð fyrirtæki að fá staðlaða vefi á hálfvirði í
vefverslun Advania www.velkomin.is.
App Bensínvaktar-
innar frá Advania fyrir
Android-stýrikerfið.
Vefsíða Reebok er flott, fersk og öflug.
Sigrún Eva Ármannsdóttir er forstöðumaður veflausna hjá Advania sem er eitt
stærsta upplýsingatæknifyrirtæki Norðurlanda. MYND/VILHELM
Í tilefni þess að jólin nálgast bjóðum við upp á
einstakan Magento vefverslunarpakka.
Pakkinn inniheldur fullkomna Magento vefverslun,
uppsett Facebook App til að geta sett upp leiki á
löglegan hátt og iPhone App sem viðskiptavinirnir
þínir nota til að versla hjá þér með farsímanum.
Allur þessi pakki kostar aðeins kr. 499.990,- án/vsk
- Þú velur sniðmát á vefverslunina. Hægt er að velja um
margvíslegar útfærslur og litasamsetningar.
- Þú getur sett upp kynningar og safnað áskrifendum
eða vinum án þess að hafa áhyggjur af því að Facebook
síðunni þinni verði lokað.
- Þú færð uppsett iPhone App með þínum litum og
lógói sem þú getur boðið öllum endurgjaldslaust.
Magento er vefverslunarlausn á heimsmælikvarða
- Fyrir minna en þú heldur.
Nú er tækifærið fyrir
Vefverslun
Facebook App
iPhone App
www.ik.is