Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 46
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR34 BAKÞANKAR Friðriku Benónýs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Herra ritstjóri! Þetta er Roger hérna! Hefurðu nokkuð fen...? Roger! Minn maður! Loksins hefurðu sent mér eitthvað sem ég get notað! Já, þetta var mergjað, Roger! Hér hefurðu hitt beint í mark! En hvað finnst þér um söguna? Þá meina ég vínið! Æi! Sama og venjulega! Endilega haltu samt áfram að senda á mig! Ekki séns! Varstu búinn að heyra? Rikki og Anna eru hætt saman! Nemandi mánaðarins Ég skil ekki orð að því sem hann segir. Prófaðu hann á þýsku. Þetta fékk ég þegar ég datt úr trénu. Svo datt ég af hjólinu mínu... ...Og hljóp á vegg. Magnað! Takk! Ég vildi að þú meðhöndlaðir sár eins og meiðsli, en ekki listaverk. Þú ættir að sjá sárið á andlitinu hans Trausta! Það er ótrúlegt! LÁRÉTT 2. fangi, 6. í röð, 8. fyrirboði, 9. pappírsblað, 11. í röð, 12. svíkja, 14. brennivídd, 16. pot, 17. skammstöfun, 18. fálm, 20. samtök, 21. traðkaði. LÓÐRÉTT 1. glaðningur, 3. klaki, 4. úða, 5. læsing, 7. afl, 10. nögl, 13. atvikast, 15. ans, 16. margsinnis, 19. eldsneyti. LAUSN LÁRÉTT: 2. gísl, 6. jk, 8. spá, 9. örk, 11. rs, 12. falsa, 14. fókus, 16. ot, 17. etv, 18. fum, 20. aa, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. gjöf, 3. ís, 4. sprauta, 5. lás, 7. kraftur, 10. kló, 13. ske, 15. svar, 16. oft, 19. mó. Waldorfkennarar óskast Waldorfskólinn Sólstafir í Reykjavík auglýsir eftir waldorfkennurum til bekkjarkennslu fyrir skólaárið 2012-2013. Waldorfskólinn er sjálfstæður grunnskóli sem hefur að leiðarljósi uppeldis og kennslufræði Rudolfs Steiner, þar sem sköpunarkraftur einstaklingsins,listræn framsetning og úrvinnsla námsefnis og heilbrigt félagslegt umhverfi eru sett í forgrunn. Nánari upplýsingar veittar í síma skólans: 577 1110 eða hjá solstafir@waldorf.is. Noregur Kallar!! Bemanning AS óskar eftir að ráða bæði pípulagningamenn og rafvirkja í vinnu. Stöðurnar eru á lausu núna og áhugasamir geta hafist starfa strax. Verkefnin eru á stór-Oslóar svæðinu. Hæfiskröfur: • Sveinspróf eða 10 ára starfsreinsla. (Rafvirkjar verða að hafa sveinspróf) • Starfsreinsla eftir sveinspróf í tvö ár eða meira Við bjóðum upp á: • Góð kjör • 9 tíma vinnudaga, 48 tíma vikur og það er unnið í 4 vikur og 1 vika frí. • Við borgum stóran hluta af ferðakostnaði • Frítt húsnæði • Aðstoð við að skrá sig inn í landið, stofna bankareikning sækja um skattakort m.m. Umsóknir og fyrirspurnir sendist í tölvupósti á post@bemanningas.no fyrir 15. júní. Öllum fyrirspurnum verður svarað og fullum túnaði heitið. Framboð til stjórnar Neytendasamtakanna Skv. 16. gr. laga Neytendasamtakanna auglýsir uppstillinga- nefnd eftir framboðum til stjórnar sem kosin verður á næsta þingi samtakanna laugardaginn 29. september nk. Allir skuld- lausir félagsmenn geta boðið sig fram. Áhugasamir, sem ekki eru nú þegar félagsmenn, geta boðið sig fram ef þeir ganga í Neytendasamtökin og greiða árgjald. Framboð skal tilkynna í síma 545 1200 eða með tölvupósti á ns@ns.is. F.h. uppstillinganefndar Neytendasamtakanna Einar Jón Ólafsson formaður Ég vissi að ég fengi þig til að lesa þennan pistil ef ég setti orðið píka í fyrirsögn. Það er nefnilega svo femínískt og frjálst að tala um píkur. Og merkilegt nokk virðast allir hafa áhuga og skoðanir á því hvernig það líffæri á að líta út og fúnkera. Hver greinin af annarri um það hvernig píkur eigi eða eigi ekki að vera birtist í fjölmiðl- um og allar fá þær massívan lestur og mikil húrrahróp. Ég sem hélt að píkur væru eins misjafnar og þær eru margar og ekkert merkilegri en önnur líffæri. En svo lengi lærir sem lifir. Í FRAMHALDI af vinsældum píkugrein- anna hafa konur og útgefendur kveikt á því að kynlíf kvenna er söluvænlegt. Nú á að safna saman erótískum fant- asíum kvenna og gefa út á bók svo konur geti loksins lesið um kynlíf á eigin forsendum. Á hvaða for- sendum ætli þær hafi lesið um það hingað til? Það er nefnilega engin nýjung að konur skrifi um kynlíf. Það hafa þær gert síðan þær fóru að stinga niður penna. Að halda öðru fram ber annað hvort vott um full- komna vanþekkingu á bókmennta- sögunni eða vísvitandi blekking- ar. Og slíkt ætlum við auðvitað ekki virðulegu forlagi sem ber rétt kvenna til að skrifa og lesa um kynlíf svona mikið fyrir brjósti. RÉTTURINN til að fá borgað fyrir hugverk sín og vinnu er hins vegar ekki samræman- legur þessu kvenfrelsistiltæki. Í væntan- legri bók eiga að birtast kynórar sem konur senda inn nafnlaust og fá ekkert greitt fyrir. Þannig á að koma í veg fyrir að höf- undarnir láti skömmina hefta frásögnina er ástæðan sem gefin hefur verið fyrir því ráðslagi. KYNÓRAR eru sem sagt skammarlegir í hugum kvenna og yfirlýst markmið rit- stjóra og forlags að losa þær við þá skömm. Göfugt markmið og auðvitað sjálfsagt að afsala sér höfundarlaunum fyrir slíka frels- un. Nafnleysinu fylgir hins vegar sá bögg- ull að engin leið er dæma um kyn þess sem hefur skrifað textann, en ritstjóri bókar- innar hefur látið hafa eftir sér að það sé „bara skemmtilegt“ ef karlmenn sendi inn kynóra kvenna ef þeir séu „í réttum anda“. Órarnir verða svo valdir til birtingar út frá skemmtigildi, þ.e. söluvænleika. Það er sko enginn afsláttur gefinn af hugsjónunum að baki þessari femínísku útgáfu. HVAÐ ólaunuð vinna og ókeypis hugmyndir um krassandi kynlíf hafa með femínisma að gera hlýtur að vefjast fyrir fleirum en mér. Lítur miklu fremur út eins og enn ein leiðin til að hafa kynferði kvenna að féþúfu án þess að þær njóti þess sem inn er halað. Er það ekki akkúrat andstæðan við femín- isma? Píka til sölu, kostar eina tölu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.