Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 50
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR38 38
menning@frettabladid.is
Ellert Grétarsson ljósmynd-
ari hefur breyst úr virkj-
unarsinna í náttúrurvernd-
arsinna og nú vekur hann
athygli á fegurð Reykja-
nessins í nýrri bók.
„Ef Reykjanesinu verður breytt í
eina samfellda iðnaðarlóð skerðir
það alla útivistar- og ferðamögu-
leika þar fyrir höfuðborgarbúa,
heimafólk og gesti. Ríflega 80%
erlendra ferðamanna eru hingað
komnir til að upplifa ósnortna nátt-
úru, þeir eru ekki að koma til að
skoða borstæði og háspennulínur,“
segir Ellert Grétarsson, ljósmynd-
ari og stuðningsfulltrúi, sem hefur
gefið út bókina Reykjanesskagi –
Ruslatunnan í Rammaáætlun.
Aðallega er um vefútgáfu að ræða
sem hefur vakið athygli og við-
brögð og er á slóðinni http://issuu.
com/ellertg/docs/nsve1. Í samvinnu
við Landvernd var bókin prentuð í
litlu upplagi og í gær afhenti Ellert
alþingismönnum eintök.
„Mig langar að opna augu
alþingis- og áhrifamanna á þeirri
umhverfisröskun sem áformað-
ar virkjanir á Reykjanesi mundu
valda,“ segir hann og útskýr-
ir nánar. „Í rammaáætlun ríkis-
stjórnarinnar eru nítján virkjunar-
kostir á svæðinu frá Reykjanestá
að Þingvallavatni. Þegar er búið
að nýta fjóra þeirra með Reykja-
nes-, Svartsengis-, Hellisheiðar-
og Nesjavallavirkjunum. Sjö aðrir
kostir eru settir í orkunýtingar-
flokk, fimm í biðflokk en aðeins
þrír í verndarflokk. Þannig gætu
orðið allt að sextán virkjanir eftir
endilöngum skaganum. Undir
þetta fara vinsæl útivistarsvæði
og náttúruperlur og við getum
ímyndað okkur öll þau mannvirki
sem fylgja svona framkvæmdum.
Það verða stöðvarhús, borstæði,
hitaveiturör, háspennulínur, skilju-
hús og línuvegir sem gerbreyta
ásýnd skagans að ekki sé minnst
á brennisteinsmengunina sem
fylgir. Orka frá gufuaflsvirkjun-
um er ekki eins hrein og græn eins
og sumir vilja halda á lofti.“
Ellert kveðst hafa verið fylgj-
andi virkjunum í eina tíð, enda hafi
hann búið á Egilsstöðum þegar
framkvæmdir við Kárahnjúka hóf-
ust. „Ég var á þeirri línu að virkj-
anir væru undirstaða lífs í landinu
og að virkja bæri sem mest og víð-
ast. Hneykslaðist á lattelepjandi
lopapeysukommum sem vildu
helst að við lifðum á fjallagrösum
og ljóðagerð. Svo flutti ég suður
2006 og endurnýjaði kynni mín af
blaðamennsku. Þá voru virkjunar-
mál mikið í umræðunni og til að
vera hlutlaus fannst mér ég verða
að skoða þau svæði sem talað var
um að virkja. Sumarið 2007 stóð ég
uppi á Sveinstindi við Langasjó og
þar bara kom eitthvað yfir mig. Ég
breyttist úr hægri sinnuðum virkj-
anaaðdáanda í vinstri sinnaðan
náttúruverndarmann. Þetta var
svona U-beygja. Síðan hef ég farið
fótgangandi um fleiri væntanleg
virkjunarsvæði og því meira sem
ég kynnist þeim því harðari verð
ég í afstöðu minni. Ég er ekki orð-
inn alveg eins og Ómar Ragnars-
son en það stefnir í það.“
gun@frettabladid.is
FRAMTÍÐARSÝNIN
BREYTTIST Á SVEINSTINDI
Á SVEIFLUHÁLSI Móbergshryggir eins
og Sveifluháls, sem hafa orðið til við
sprungugos undir jökli, finnast hvergi
nema á Íslandi.
VIÐ TRÖLLADYNGJU Sog er gil sem háhitinn hefur sett svip sinn á. MYND/ELLERT GRÉTARSSON
Í KRÝSUVÍK Á hverasvæðinu í Seltúni er
einstök litasinfónía. Þangað komu um
120 þúsund ferðamenn á síðasta ári.
MYND/ELLERT GRÉTARSSON
ARNARVATN ER FORN ELDGÍGUR Fyrir liggur tillaga um lagningu háspennustrengs yfir Sveifluhálsinn fram hjá Arnarvatni
sunnanverðu. MYND/ELLERT GRÉTARSSON
ELLERT GRÉTARSSON NÁTTÚRULJÓSMYNDARI „Það er eins og pólitísk hrossakaup
hafi átt sér stað og Reykjanesinu sé fórnað fyrir einhver önnur svæði,“ segir Ellert um
rammaáætlun ríkisstjórnarinnar í virkjunarmálum.
Leikritið Bastards – fjölskyldu-
saga eftir Gísla Örn Garðarsson
og bandaríska handritshöfundinn
Richard Lagravenese verður sýnt
í Borgarleikhúsinu á föstudags- og
laugardagskvöld. Verkið er sam-
starfsverkefni Borgarleikhússins,
Vesturports, borgarleikhússins í
Malmö og Teater Får302 í Kaup-
mannahöfn.
Sýningarnar í Borgarleikhús-
inu eru norræn uppfærsla verks-
ins en hlutverkin verða í höndum
danskra, sænskra og íslenskra
leikara.
Þaðan fer sýningin til Malmö
og Kaupmannahafnar þar sem
sýnt verður í leikhústjaldi sem
tekur 690 manns í sæti. Sýningin
verður svo frumsýnd á íslensku á
næsta leikári í Borgarleikhúsinu
með íslensku leikaraliði.
Bastards á svið
SÍÐASTA SÝNING að sinni á Ævintýrum Múnkhásens verður í kvöld klukkan sex. Hægt
er að kaupa ósóttar pantanir við dyrnar. Sýningin, sem sýnd er í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði,
hefur fengið frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda og er þetta 24. sýning verksins.